Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2016 37
ir hann að hafi enn fremur valdið því
að erlendir ferðamenn þekki vöru-
merkið. Þeir sækist í auknum mæli
eftir því að líta við í Steðja á ferð um
landið. „Fólki þykir áhugavert að hér
hafi bændur gerst bjórbændur, vilja
gjarnan koma og smakka. Þetta hef-
ur aðdráttarafl á ferðamenn sem kalla
mikið eftir svona „lókal“ vöru og eru
almennt mjög áhugasamir um hvers
kyns matargerð úr héraði,“ bætir
hann við.
Aðspurður segir Dagbjartur að
nýjungar séu væntanlegar frá Brugg-
húsi Steðja en vill ekkert gefa upp
um það nánar. „Bjórunnendur fá að
heyra frá því þegar þar að kemur, en
ég lofa því að þær eru mjög athygl-
isverðar og spennandi,“ segir Dag-
bjartur að lokum. kgk
Háskólinn á Hólum
Hagnýtt háskólanám
• Ferðamálafræði
• Viðburðastjórnun
• Fiskeldisfræði
• Reiðmennska og reiðkennsla
Tækifærin eru í okkar greinum
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
ný
pr
en
t
0
2
/2
0
16
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
w
w
w
.h
ol
ar
.is
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Þessa dagana standa yfir framkvæmdir
við Brugghús Steðja í Borgarfirði, en
um 150 fermetrar hafa verið byggðir
aftan við sjálft brugghúsið. Þó nóg sé
að gera í bjórframleiðslu segir Dag-
bjartur Arilíusson í Steðja að ekki sé
verið að stækka brugghúsið. „Þetta
er einfaldlega gert til að við getum
betur tekið á móti stórum hópum
sem sækjast í auknum mæli eftir því
að koma hingað í bjórsmökkun og
kynningar,“ segir hann í samtali við
Skessuhorn. Hann segir slíkar ferðir
verða stöðugt vinsælli, ekki síst meðal
Íslendinga. „Það eru helst vinnustað-
ir sem fjölmenna hingað í skemmti-
ferðir en einnig er nokkuð um að
ferðamenn komi hingað í hópum,“
segir Dagbjartur. Eftirspurnin eftir
slíkum ferðum er orðin slík að hann
hafi séð sig knúinn til að stækka. „Þó
við auglýsum það ekki þá höfum við
alltaf tekið á móti hópum sé þess ósk-
að. Nú er töluvert bókað í slíkar ferð-
ir í sumar og stórir hópar væntanleg-
ir,“ segir hann. „Hingað til höfum
við tekið á móti hópum í brugghús-
inu sjálfu. Það fer mjög vel um 25-30
manns þar í einu en þegar hóparnir
eru farnir að telja nær 50 manns þá
fer að verða þröngt á þingi, ég tala nú
ekki um þegar þeir eru stærri,“ segir
Dagbjartur og bætir því við að hann
hafi oft þurft að skipta fjölmenn-
um hópum í tvennt. Með tilkomu
betri aðstöðu eigi slíkt að heyra sög-
unni til. „Þegar þetta verður komið í
gagnið geri ég ráð fyrir að hér verði
leikandi hægt að taka á móti hundrað
manna hópum þannig að vel fari um
alla,“ segir hann. Rýmið mun einnig
nýtast sem lager að einhverju leyti og
segir Dagbjartur að framkvæmdum
ljúki á næstu vikum.
Salan gengur vel og
nýjungar væntanlegar
Að sögn Dagbjartar vekur bjórinn frá
Steðja stöðugt meiri athygli og ekki
síst utan landsteinanna. Þar hefur
kannski sitt að segja að bruggmeist-
arar Steðja hafa aldrei verið smeyk-
ir að fara sínar eigin leiðir og bjóða
upp á óvenjulegar tegundir. „Hvala-
bjórinn kom okkur náttúrulega á
kortið á sínum tíma. Hann var val-
inn einn af mest spennandi bjórum
í heimi af fleiri en einu og fleiri en
tveimur tímaritum úti í heimi. Síð-
an þá höfum við aukið útflutning á
okkar vörum til muna og það gengur
prýðilega. Einnig höfum við komið
léttölinu okkar í verslanir hér á landi
og það hefur gengið gríðarlega vel,“
segir Dagbjartur. Sú athygli sem
hvalabjórinn fékk á sínum tíma seg-
Bjórbændur í Steðja undirbúa
móttöku stórra hópa
Dagbjartur Arilíusson í Steðja.
Steypuvinna í fullum gangi þar nú er risin viðbyggingin. Við anddyri hennar hefur
verið komið fyrir barstólum úr viði og borðum úr stórgrýti.
Vinna í veiðihúsi
Við leitum að lífsglöðu og duglegu
starfsfólki frá byrjun júní 2016 til og
með byrjun september 2016
Líflegt og skemmtilegt sumarstarf úti á
landi í kringum laxveiði við veiðihúsið í
Norðurá í Borgarfirði.
Starfið felur í sér að stærstum hluta
þjónustu við gesti ásamt þrifum og
ræstingu
Nánari upplýsingar eru veittar á
veidihusnordura@gmail.com eða í síma
842-2821
Umsóknarfrestur er til 31. mars 2016
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6