Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201620
Rúm 120x200
Kr 93.520,-
Hverju keyptu fermingarrúmi
fylgir sæng og koddi að
verðmæti 6.980,-
Fermingartilboð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
„Hvað langar þig að fá í
fermingargjöf?“
(Spurt í Hvalfjarðarsveit)
Bjarki Rúnar Ívarsson:
„Mig myndi langa í ferð til
Brasilíu.“
Gabríel Trausti Bjarkason:
„Myndavél.“
María Björk Ómarsdóttir:
„Mig langar í rúm, úlpu eða
nýjan síma.“
Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir:
„Síma.“
Spurningin
Á síðasta ári fermdust rúm-
lega tvöhundruð ungmenni
á Vesturlandi. Í þeim hópi
voru Akurnesingurinn Arnar
Daði Sigurðsson og Sigrún
Ósk Jóhannesdóttir frá
Búðardal. Skessuhorn tók
þau tali og forvitnaðist um
hvernig fermingardagurinn
hafi verið. Dagurinn fannst
þeim báðum góður og eftir-
minnilegur.
Ánægður með daginn
Arnar Daði Sigurðsson fermdist í
Akraneskirkju 12. apríl 2015. Hann
segist hafa vaknað snemma á ferm-
ingardaginn til að gera sig tilbú-
inn, enda hófst athöfnin klukkan
10:30. Dagurinn gekk áfallalaust
fyrir sig og Arnar Daði var sátt-
ur með fermingardaginn. „Þetta
var mjög skemmtilegur dagur. Allt
gekk vel og ég var mjög ánægður
með daginn,“ segir Arnar Daði. Í
framhaldi af athöfninni var hald-
in vegleg fermingarveisla í Jóns-
búð á Akranesi. Áður en í veisluna
var haldið fékk Arnar Daði að kíkja
heim, þar sem hann fékk ferming-
argjöfina frá foreldrum sínum. „Ég
fékk tölvu og skjá, sem ég var bú-
inn að óska mér í nokkur ár. Hún
hefur nýst mér mjög vel síðan ég
fékk hana,“ segir hann. Aðspurður
um hvað hafi komið mest á óvart
við ferminguna segir hann að það
hafi komið á óvart að fermingar-
fræðslan hafi ekki verið erfið, bara
mátuleg. „Ég lærði helling þar. Við
fórum líka í eina ferð og skoðuð-
um Skálholt þar sem við sáum stóra
kirkju og fleira. Ég var reyndar að-
eins feiminn í fermingarveislunni
og það var svolítið erfitt að bjóða
fólkið velkomið og að segja gjörið
svo vel,“ segir hann.
Hefur meira að gera
Í veislunni var boðið bæði upp á
mat og kökur, sem fermingarbarnið
fékk að velja. Salurinn var skreytt-
ur og þar sem Arnar Daði hefur æft
keilu til fjölda ára var keilukúla not-
uð sem skreyting á borðinu. „Ég
reyndi að hjálpa til eins og ég gat,
ég fór og setti skreytingar á borð-
in og hjálpaði auðvitað við að velja
matinn. Ég gat samt ekki hjálpað til
við að elda, ég kann ekkert að elda,“
segir hann. Arnar Daði segir tölu-
vert af fólki hafa komið í veisluna.
Hann fékk ýmsa fallega og nytsam-
lega hluti í fermingargjöf. „Ég fékk
svolítið mikinn pening en ég fékk
líka Gopro myndavél og mjög mik-
ið af hlutum.“ Hann segir lífið hafa
breyst svolítið eftir ferminguna.
„Þegar maður er kominn með
svona mikið af hlutum, þá hefur
maður miklu meira að gera,“ segir
Arnar Daði hress að endingu.
Myndi vilja gera
þetta aftur
Sigrún Ósk Jóhannesdóttir fermd-
ist Í Hjarðarholtskirkju í Dölum á
páskadag í fyrra. Fermingarathöfn-
in sjálf var um miðjan dag en Sig-
rún Ósk tók daginn snemma. „Ég
þurfi að vakna frekar snemma til að
fara í hárgreiðslu og allt það. Það
skipti samt engu máli því ég var svo
rosalega spennt. Þetta fór allt vel og
var rosalega gaman. Þetta var lítil
og kósí ferming, rosalega skemmti-
legur dagur. Ég myndi alveg vilja
gera þetta aftur,“ segir Sigrún Ósk
í samtali við blaðamann. Hún segir
fræðsluna einnig hafa verið óvenju
skemmtilega. „Ég hafði aldrei haft
neinn áhuga á kirkjum eða kristni
en ákvað að prófa þetta. Það kom á
óvart hvað presturinn náði að gera
þetta áhugavert og skemmtilegt.
Hún náði alveg til mín,“ segir hún.
Bakaði sjálf
Fermingarveislan var haldin í
Dalabúð sama dag og var salurinn
skreyttur í tilefni dagsins. „Við röð-
uðum upp borðum og settum fullt
af litlum barnamyndum af mér um
allan salinn. Svo settum við skraut
á borðin og lítil páskaegg af því að
þetta var á páskadag,“ útskýrir hún.
Mörgum var boðið til ferming-
arinnar en Sigrún segir einhverja
hafa forfallast. „Það voru frekar
margir sem komust ekki en marg-
ir af vinum mínum komu, sem var
skemmtilegt.“ Sigrún Ósk hjálpaði
heilmikið til við undirbúning veisl-
unnar. Boðið var upp á kjötsúpu
sem móðir hennar gerði og köku
sem keypt var hjá bakara. Restina af
kökunum bakaði Sigrún Ósk sjálf.
„Það var ekkert erfitt. Ég var að
vinna á kaffihúsi á þessum tíma og
þetta var kaka sem ég gerði á hverj-
um degi þar. Ég bakaði því nokkr-
ar svoleiðis,“ segir hún. Aðspurð
um hvað hafi verið eftirminnilegast
við daginn segir Sigrún: „Ég held
að það hafi verið þegar eldri systk-
ini mín sungu fyrir mig. Það stóð
upp úr.“
Sigrún Ósk fékk fjölda gjafa líkt
og flest fermingarbörn. „Ég fékk
pening, myndavél, rúm og hillur.
Svo fékk ég alveg nokkur páskaegg
og risastóra súkkulaði kanínu. Ég
var að borða páskaegg og afgang af
kökunum alveg fram á vor,“ segir
hún hlæjandi að endingu. grþ
Fermingardagurinn var góður og
eftirminnilegur
Arnar Daði Sigurðsson fermdist á Akranesi í fyrra. Hann fór í fermingarmynda-
töku til Guðmundar Bjarka Halldórssonar og er hér í stúdíói með keilukúluna og
verðlaunagripi.
Sigrún Ósk Melsteð Jóhannesdóttir fór í fermingarmyndatöku til Steinunnar Matthíasdóttur í Búðardal sama dag og hún fór í
prufugreiðslu, nokkrum dögum fyrir ferminguna.