Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201612
íslensk hönnun . íslensk framleiðsla
Ármúli 17a . Reykjavík . sími: 588 9933 . fax: 588 9940 | Miðás 9 . Egilsstaðir . sími: 470 1600 . fax: 471 1074 | www.brunas.is
* Flytjandi ytur vöruna á þá
stöð sem næst er viðskiptavini
FRÍR FLUTNINGUR
Hvert á land sem er*
Komdu í sýningarsali okkar og fáðu faglega þjónustu
og ráðgjöf innanhússarkitekta við val á Brúnás innréttingum
Íslandsmeistaramótið í tíu dönsum
(meistaraflokkur) fór fram í Laug-
ardalshöllinni í Reykjavík um liðna
helgi og áttu Vestlendingar að sjálf-
sögðu sína fulltrúa á mótinu.
Í meistaraflokki dansaði Borgfirð-
ingurinn Daði Freyr Guðjónsson
með Mörtu Carrasco og hrepptu
þau annað sætið á Íslandsmótinu.
Arnar Þórsson dansaði með Re-
bekku Rós Ragnarsdóttur og lentu
þau í fimmta sæti. Með árangri sín-
um hefur Daði Freyr Guðjónsson
tryggt sér þátttökurétt á heims- og
Evrópumeistaramótum og heims-
og Evrópubikarmeistaramótum.
Þessi pör tóku einnig þátt í DSÍ
Open Standard og DSÍ Open Latin
um liðna helgi. Þar sigruðu Daði og
Marta í standard og höfnuðu í öðru
sæti í latin. Arnar og Rebekka höfn-
uðu í fimmta sæti í standard og því
níunda í latin. Þriðji Borgfirðingur-
inn, Elís Dofri G Gylfason, hafnaði
í sjötta sæti í latin ásamt Anítu Rós
Kingo Andersen, dansfélaga sínum.
Grunnsporamót
Samhliða Íslandsmeistaramótinu var
haldið almennt grunnsporamót. Í
flokknum Börn II gerðu Rósa Krist-
ín Hafsteinsdóttir og Tristan Sölvi
Jóhannsson frá Akranesi sér lít-
ið fyrir og sigruðu í bæði standard-
og latindönsum. Fast á hæla þeirra
fylgdu Demi van den Berg og Al-
mar Kári Ásgeirsson, sem hrepptu
annað sætið í sömu dönsum. Í þriðja
sæti lentu Jóel Thor Jóhannesson
og Aldís Thea Daníelsdóttir og þá
höfnuðu Ellert Kári Samúelsson og
Fura Claxton í fimmta sæti. Einnig
kepptu Mateusz Kuptel og Margret
Björt Pálmadóttir á mótinu í flokkn-
um Börn II, sem og Júlíus Alexander
Rúnarsson og Íris Embla Andradótt-
ir, en þau náðu ekki verðlaunasæti.
Í flokknum Unglingar II kepptu
Helgi Reyr Helgason og Heiður
Dís Kristjánsdóttir og hrepptu þau
þriðja sætið.
Geta má þess að danspörin Rósa
Kristín og Tristan Sölvi og Demi og
Almar Kári stefna á keppni á móti í
Blackpool í Englandi í lok marsmán-
aðar. Í tilefni þess ætla þau að halda
danssýningu í Tónbergi, sal Tón-
listarskólans á Akranesi þriðjudag-
inn 22. mars næstkomandi klukkan
19:30. Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyr-
ir fullorðna og 500 kr. fyrir börn og
rennur allur ágóði í ferðasjóð kepp-
endanna.
kgk
Dansarar gerðu það gott um helgina
Helgi Reyr Helgason og Heiður Dís
Kristjánsdóttir höfnuðu í þriðja sæti í
flokknum Unglingar II.
Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og Tristan Sölvi Jóhannsson (t.h.) sigruðu í standard
og latindönsum í flokknum Börn II en Demi van den Berg og Almar Kári Ásgeirsson
hrepptu annað sætið. Þessi pör keppa á móti í Englandi í lok mánaðarins.
Verðlaunahafar í meistaraflokki á Íslandsmeistaramótinu í tíu dönsum. Með árangri sínum þar tryggði Daði Freyr Guðjónsson
sér þáttökurétt á heims- og Evrópumeistaramótum og heims- og Evrópubikarmeistaramótum.
Jóel Thor Jóhannesson og Aldís Thea Björnsdóttir, Mateusz Kuptel og Margrét Björt
Pálmadóttir, Ellert Kári Samúelsson og Fura Claxton, og Júlíus Alexander Rúnarsson
og Íris Embla Árnadóttir kepptu í Börn II.