Skessuhorn - 16.03.2016, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201626
Gott að spjalla
Þráinn segir einstaklega skemmti-
legt að vinna með fermingarbörn-
unum. Þau séu áhugasöm og jákvæð
gagnvart fermingarfræðslunni.
„Þau eru á ákveðnu skeiði þar sem
þau eru að upplifa sínar eigin til-
finningar og tilveru og fermingar-
fræðslan hittir því í mark á þessum
tíma. Við notum bókina um Jesú
sem grundvöll, þar er farið yfir
ævi Jesú, hvað hann gerði og hvað
hann kenndi. Samhliða erum við
með ýmis verkefni sem stuðla að
því að krakkarnir kynnist Biblíunni
og kirkjunni.“ Hann bætir því við
að einnig séu lögð fyrir verkefni
sem tengjast sjálfsmynd ferming-
arbarnanna og framtíðardraum-
um þeirra. „Það er gott að spjalla
líka. Þau eru full af spurningum og
fá svör við þeim. Í unglingamenn-
ingunni er heilmargt sem fullorð-
ið fólk áttar sig ekki almennilega á
og við þekkjum ekki. Við þurfum
að velta fyrir okkur ýmsum hlut-
um sem skipta máli, eru jafnvel
feimnismál og taka ábyrgð á því að
leiða hugann að ákveðnum hlutum
og hjálpa þeim að sjá hvað er rétt,“
útskýrir Þráinn.
Fermast ekki
vegna gjafanna
Yfir hundrað prósent fermingar-
hlutfall er í Akranessókn. Sent er
bréf til allra þeirra á svæðinu sem
eru á fermingaraldri og skráðir eru
í Þjóðkirkjuna. Þráinn segir flest-
alla á þeim lista fermast og oft-
ast bætist einhverjir við sem skýr-
ir þá staðreynd að hlutfallið fari
yfir 100%. Hann telur flest ferm-
ingarbarna kjósa að fermast út af
boðskapnum og trúnni. Hann seg-
ir flesta hafa heyrt um börnin sem
fermast fyrir gjafirnar eða bara af
því að allir hinir gera það. „En
þetta er ekki mín upplifun. Meiri-
hluti fermingarbarna er áhugasam-
ur og mér finnst neikvætt að draga
upp mynd af þeim sem ósjálfbjarga
einstaklingum sem eru bara að
fylgja hjörðinni og fá gjafir. Það er
leitt að sú mynd er oft markvisst
dregin upp af fermingarbörnum
og skautað framhjá öðru. Auðvit-
að hlakka þau til þess að fá gjafir,
það er bara eðlilegt.“ Þráinn bend-
ir réttilega á að brúðhjón fái yfir-
leitt fleiri gjafir en fermingarbörn.
„Það dettur samt fáum í hug að
spyrja brúðhjón að því hvort þau
gifti sig bara fyrir gjafirnar,“ segir
hann og hlær við.
Sótt inn á þetta svið
Áður en Þráinn lauk námi starfaði
hann um tíma sem ráðgjafi á legu-
deild á BUGL, barna- og unglinga-
geðdeild. Hann segir það starf hafa
mótað sig mikið. Lokaritgerð hans
í guðfræðinni fjallaði um sálgæslu
með unglingum, um samskipti við
unglinga og hvernig á að taka á móti
þeim. „Ég hef sótt inn í þetta svið.
Buglið þrýsti svolítið á það. Þegar
maður kemur úr kirkjunni og inn á
unglingageðdeild, þá er það heimur
sem maður þekkir ekki. Mér fannst
ég aldrei hafa hitt svona börn áður
en svo fór ég að hugsa. Börn með
geðræna erfiðleika eru auðvitað alls
staðar. Maður er bara ekki alltaf
með augun opin,“ segir hann. Þrá-
inn segir geðsjúkdóma barna vera
falið vandamál, enda beri börnin
sjúkdómana ekki utan á sér. „Þetta
er lítið rætt, sem er slæmt. Krakk-
arnir myndu fá betri þjónustu víða
ef fólk væri meðvitaðra um ástand-
ið,“ segir hann.
Búa til minningar
Áður en Þráinn tók við embætti á
Akranesi starfaði hann hjá öðrum
stærsta söfnuði Noregs. Hann segir
Norðmenn skilgreina störfin inn-
an kirkjunnar betur en Íslending-
ar. „Þar geturðu jafnvel menntað
þig sérstaklega sem fermingarfræð-
ara. Við vorum með um 250 ferm-
ingarbörn. Þar eru farnar margar
leiðir í fermingarfræðslunni. Henni
er skipt upp í alls konar hópa, svo
sem íþróttahópa, helgarhópa og
útihópa. Svo velja fermingarbörn-
in sér hóp,“ útskýrir Þráinn. Hann
var með þrjátíu börn í sínum hópi
og var lögð áhersla á útiveru. Ferm-
ingarfræðslan endaði til að mynda
með útilegu í aprílmánuði á eyju,
þrátt fyrir kulda og rigningu. Hann
segir fermingarfræðsluna hérlendis
hafa mikið vera byggða á bóklegum
lærdómi til þessa. „Það er nauð-
synlegt að horfa meira í aðrar átt-
ir. Við þurfum að hafa upplifun og
búa til minningar. Við þurfum að
spyrja okkur að því hvað við skilj-
um eftir í minningum og upplifun.
Þetta er hluti af því að skila börn-
unum út í meiri þroska, þetta er veg-
ferð í því.“ Hann segist einnig leggja
áherslu á að fara með unglingunum
út í kirkju og enda á rólegri stund.
„Það þarf að kenna þeim að upp-
lifa og vera með, kenna þeim þolin-
mæði. Þau læra að meta það enda er
mikið áreiti í kringum þau dagsdag-
lega og mikill hraði á öllu. Þau finna
ákveðið skjól í kirkjunni. Krakkarn-
ir þurfa að læra að það er ekki allt
sem við gerum skemmtilegt. En það
er ekki þar með sagt að það sé leið-
inlegt og það getur verið gott fyrir
mann,“ segir Þráinn og brosir.
Uppbygging er
langhlaup
Töluvert æskulýðsstarf hefur ver-
ið í Akraneskirkju í gegnum tíð-
ina. Á undanförnum árum hefur
þó margt breyst, enda er mikið í
boði fyrir börn og unglinga. „Það
er auðvitað ekki hægt að vera í
öllu. Það getur verið erfitt að finna
tíma þar sem það er ekki ann-
að í gangi,“ segir Þráinn. Í dag er
æskulýðsstarfið unnið í samstarfi
við KFUM og KFUK á Akra-
nesi og boðið upp á sunnudaga-
skóla fyrir yngstu kynslóðina, starf
fyrir sex til níu ára og tíu til tólf
ára. „Við höfum ekki verið með
þetta vikulegt heldur einu sinni í
mánuði. Það er svo mikið annað í
gangi og þetta hefur gengið ágæt-
lega. Áður var miðað við vikulega
samveru en þetta var tilraun sem
gekk vel.“ Þá er einnig boðið upp
á vikulega fundi fyrir fermingar-
börnin. „Við erum að byggja þetta
upp og vonandi verða fundir fyr-
ir alla unglingadeildina næsta vet-
ur. Við þurfum að búa til vitund,
að sýna krökkunum að þetta er
skemmtilegt. En uppbyggingin er
langhlaup,“ segir Þráinn og hefur
orð á því að það sé án efa gott að
vera barn á Akranesi. „Það er mjög
mikið í boði fyrir börn og unglinga
á Akranesi, sem er jákvætt fyrir
samfélagið í heild. Íþróttafélagið
er til dæmis mjög sterkt.“
Hann segir kirkjuna stefna að
því að bjóða upp á starf sem hentar
öllum, líka þeim sem standa höll-
um fæti félagslega. „Þú þarft nefni-
lega ekki að vera góður í neinu til
að geta notið þín í æskulýðsstarfi.
Kirkjan er fyrir alla. Ekki bara full-
orðið fólk og það er mikilvægt fyr-
ir börn og unglinga að taka þátt
í einhverju starfi, óháð því hvaða
starf það er. Það leiðir mann til
þroska.“ Þráinn bendir á að æsku-
lýðsstarfið geti einnig verið skjól
frá erfiðum tilfinningum og van-
líðan og jafnvel skólanum eða
heimilinu. „Maður á að geta ver-
ið maður sjálfur og fengið að njóta
þess. Það sama gildir um ferming-
arfræðsluna. Þetta starf snýst ekki
bara um hvað maður gerir með
börnunum, heldur líka það sem
maður er. Í þessu starfi getur mað-
ur verið góð fyrirmynd og verið til
staðar.“
Breytingar á næsta ári
Fermingarbörn á Akranesi fóru
í fyrsta sinn saman í Vatnaskóg í
vetur. Áður hefur verið farin dags-
ferð í Skálholt en nú var um að
ræða sólarhringsferð. Þráinn seg-
ir ferðina hafa verið eftirminni-
lega og vel heppnaða. „Við höfð-
um þar sambland af fræðslu, leik
og skemmtun. Þetta var mjög
skemmtileg ferð.“ Stefnt er að því
að slíkar ferðir verði árlegur hluti
fermingarfræðslunnar. Þá verða
töluverðar breytingar gerðar á fyr-
irkomulagi fermingarfræðslunnar
á Akranesi næsta vetur. „Við ætl-
um að halda fjögurra daga nám-
skeið í ágúst, þar sem þau verða
hálfan dag í senn. Svo verður
fræðslan einu sinni í mánuði og í
tvo tíma í senn í stað 40 mínútna
tíma sem nú eru vikulega.“ Hann
segir marga hafa þennan hátt á,
með góðum árangri. „Með þess-
um hætti kynnist maður krökkun-
um vel á þessari fyrstu viku. Við
höfum þá líka möguleika á því að
fara út fyrir rammann í tímun-
um yfir veturinn, getum til dæmis
hist úti og gert fleira en þegar við
erum bundin við skólastofu í stutt-
an tíma,“ segir Þráinn Haraldsson
prestur á Akranesi.
grþ
„Skiptir oft meira máli að vera en að gera“
- segir Þráinn Haraldsson prestur á Akranesi
Þráinn Haraldsson prestur á Akranesi hefur mikla reynslu af
starfi með börnum og unglingum. Hann hefur haft umsjón
með fermingarfræðslunni á Akranesi í vetur ásamt sr. Eðvarð
Ingólfssyni og segir alltaf jafn gaman að vinna með krökk-
unum. Þráinn byrjaði sjálfur snemma í æskulýðsstarfi, fyrst
um sinn sem leiðtogi hjá KFUM í Vatnaskógi og í æskulýðs-
starfi í Hjallakirkju í Kópavogi. „Æskulýðsstarf snýst að hluta
til um það sem maður gerir og hins vegar um það sem maður
er. Það skiptir nefnilega oft meira máli að vera en að gera.
Í þessu starfi er maður meðal annars að bjóða börnum og
unglingum að eiga samtöl við fullorðið fólk og maður er að
byggja upp ákveðna sýn. Þá skiptir máli hver maður er fyrir
unglingunum, bæði þeim sem sækja æskulýðsstarf og þeim
sem eru að fara að fermast,“ segir Þráinn í samtali við Skessu-
horn. Hann segir fermingarfræðsluna að vissu leyti nátengda
æskulýðsstarfinu. „Hún snýr líka að því að búa til upplifun og
minningar. Að krakkarnir eigi jákvæða upplifun af vetrinum.
Og þegar maður er að vinna með unglingum þá er maður að
hluta til að koma þeim áfram til þroska. Æskulýðsstarfið helst
í hendur við það,“ segir hann.
Hluti fermingarbarnanna á Akranesi í Vatnaskógi í vetur. Ljósm. Þráinn Haraldsson.
Þráinn hefur mikla reynslu af starfi með börnum og unglingum.