Skessuhorn - 16.03.2016, Side 32
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201632
Á þessu herrans ári fermast
tæplega tvöhundruð ung-
menni í landshlutanum í tólf
prestaköllum. Einnig fermast
sjö börn borgaralegri ferm-
ingu á vegum Siðmenntar og
fimm ungmenni munu taka
siðmálum að heiðnum sið.
Skessuhorn fór á stúfana og
hitti þrettán ungmenni sem
ganga til fermingar í vor. Þau
voru meðal annars spurð að
því hvers vegna þau ætla
að fermast, hvað sé mikil-
vægast við fermingardag-
inn, hvað verði gert í tilefni
dagsins og hvort þau aðstoði
við undirbúninginn. Það stóð
ekki á svörum. Öll hlakka
þau til stóra dagsins og eru
sammála um að mikilvægt sé
að fermingardagurinn verði
ánægjulegur í faðmi fjöl-
skyldu og vina.
Stór hlutur í lífinu
að fermast
Jón Viðar Hlynsson og Kristín
Kristinsdóttir eru bæði frá Ólafsvík.
Þau hafa gengið saman til ferming-
arfræðslu hjá sr. Óskari Inga Inga-
syni í vetur þó þau fermist ekki á
sama tíma og ekki í sömu kirkju. Jón
Viðar fermist 24. mars næstkomandi
í Ingjaldshólskirkju. „Ég fermist út
af trúnni og upplifun hennar,“ seg-
ir Jón Viðar. Honum finnst mikil-
vægt að ná að hafa gaman af ferm-
ingardeginum með fjölskyldu og
vinum og að maturinn verði góð-
ur. „Ég neita því ekki að ég er smá
kvíðinn fyrir deginum. Þetta er stór
hlutur í lífinu og ég vil því gera því
góð skil og hafa daginn sem bestan
svo allir verði ánægðir og glaðir,“
segir Jón Viðar. Aðspurður hvern-
ig fermingardagurinn er skipulagð-
ur svarar hann að það verði haldin
veisla og að hann hjálpi til með und-
irbúninginn eins og hann geti. „Svo
fæ ég ferð til Bandaríkjanna með
fjölskyldunni þannig að þetta verður
bara gaman.“ Kristín Kristinsdóttir
fermist nokkru seinna en Jón Við-
ar. „Ég fermist þann 15. maí í Ólafs-
víkurkirkju og er að fermast fyrir
trúna,“ segir hún. Kristín vonast til
að allt gangi vel á fermingardaginn
og að veður verði gott. „Ég er ekkert
stressuð fyrir deginum. Það verð-
ur haldin veisla og ég hjálpa til við
undirbúninginn með því að skreyta
og hjálpa til við það sem þarf,“ seg-
ir hún.
Vonast eftir hesti í
fermingargjöf
Berghildur Björk Reynisdóttir
fermist í Borgarneskirkju á skírdag,
24. mars næstkomandi. „Ég ákvað
að fermast af því að ég trúi á Jesú
og Guð og hef gaman af að læra um
kristni í fermingarfræðslunni,“ seg-
ir Berghildur í samtali við blaða-
mann. Hún segist vera örlítið
stressuð fyrir stóra daginn. „Ég vil
til dæmis ekki detta í athöfninni,“
segir hún og hlær. „Mér finnst mik-
ilvægt að þetta gangi allt vel og að
allir verði í góðu skapi,“ bætir hún
við. Fermingarveisla Berghild-
ar verður haldin í félagsheimilinu
í hesthúsahverfinu en fermingar-
barnið hefur verið í hestamennsku
frá unga aldri. „Ég held að veisl-
an verði haldin þar svo að hægt
sé að koma með fermingargjöfina
mína. Ég vonast nefnilega til þess
að fá hest í fermingargjöf sem pabbi
minn á, ég hef keppt mikið á hon-
um. Þá er hægt að koma með hann
í veisluna,“ segir hún. Berghildur
býst við fjölda fólks í veisluna. Þar
verður boðið upp á mexíkóska kjúk-
lingasúpu og tertur. „Ég valdi súp-
una sjálf, mér finnst hún svo góð.
Við skreytum með fjólubláu, hvítu
og hestaþema og ég fæ að velja allt.
Ef mér finnst eitthvað ekki flott, þá
sleppum við því,“ segir Berghildur
Björk sem hlakkar mikið til ferm-
ingardagsins.
Vill staðfesta skírnina
Bjarki Rúnar Ívarsson úr Hval-
fjarðarsveit fermist í Innra-
Hólmskirkju á hvítasunnudag.
Hann segist hafa hugsað svolítið
um hvort hann ætlaði að fermast
áður en hann tók ákvörðun. „Ég
ætlaði fyrst ekki að láta ferma mig
og var meira að hugsa um borg-
aralega fermingu. En svo vildi ég
láta staðfesta skírnina og ákvað því
að fermast í kirkju,“ segir hann.
Bjarki hlakkar til að hitta alla ætt-
ingjana og hefur engar áhyggjur
af fermingardeginum. „Við ætl-
um að halda veislu í Fannahlíð og
þar koma margir ættingjar og vin-
ir mínir líka. Ég ætla að hjálpa til
við undirbúninginn, sérstaklega
daginn fyrir fermingardaginn. Þá
hjálpa ég til við að skreyta salinn
og svona.“
Syngur á
fermingardaginn
Elva Björk Jónsdóttir fermist
hjá sr. Aðalsteini Þorvaldssyni í
Grundarfjarðarkirkju sunnudaginn
17. apríl. „Mig langar til að ferm-
ast til að fræðast meira um trúna
og út af gjöfunum,“ segir hún og
brosir. Henni finnst mikilvægast
við áfangann að ná að fagna degin-
um með ættingjum og vinum og að
staðfesta trúna. „Ég er alls ekkert
stressuð fyrir daginn. Ég er meira
að segja að fara að syngja í athöfn-
inni og einnig í veislunni. Ég finn
ekki fyrir neinu stressi,“ segir Elva
Björk. Hún segist taka mikinn þátt
í fermingarundirbúningnum, velji
meðal annars fötin og skreyting-
ar ásamt móður sinni. Fermingar-
veislan verður haldin sama dag og
athöfnin á Grand Hótel í Reykja-
vík. „Þar ætlum við að borða góð-
an mat. Ég ætla svo bara að syngja
fyrir veislugesti og fagna degin-
um.“
Smá stressuð
fyrir athöfnina
Tanja Lilja Jónsdóttir er ein þeirra
sem fermist í Grundarfjarðarkirkju
á hvítasunnunni. Hún segist hafa
ákveðið að fermast til að staðfesta
trú sína. Hún vonast til þess að
dagurinn verði sérstakur og hlakk-
ar til að fagna með fjölskyldu og
vinum. „Ég er samt smá stressuð
fyrir athöfnina í kirkjunni,“ seg-
ir hún. „Það verður haldin veisla í
Reykjavík með ættingjum og vin-
um daginn eftir ferminguna. Ég
vel skreytingarnar, litinn og þess
háttar. Ég stjórna, mamma aðstoð-
ar,“ segir hún hlæjandi.
Allir koma saman
„Ég fermist í Stykkishólmskirkju
á hvítasunnudag, 15. maí,“ seg-
ir Gróa Hinriksdóttir. Hún seg-
ist alveg hafa verið ákveðin í því
að fermast. „Margir sem ég þekki
hafa sagt mér hvað fermingar-
dagurinn og undirbúningurinn
er skemmtilegur. Í fyrra fermdist
frænka mín og ég fékk að hjálpa til
við ýmislegt. Það var mjög gam-
an að taka þátt í því.“ Þó Gróa
hlakki mikið til viðurkennir hún
að hún sé örlítið stressuð. „Samt
er ég aðallega spennt fyrir degin-
um. Það sem er skemmtilegt við
ferminguna er að allir koma sam-
an, öll fjölskyldan og vinirnir. Við
verðum með veislu í félagsheim-
ilinu Skildi í Helgafellssveit. Ég
hef tekið þátt í undirbúningnum
og komið með mínar óskir þótt
mamma og pabbi sjái um að skipu-
leggja þetta. Við mamma erum t.d.
að fara að skreyta kerti og búa til
gestabók. Svo sé ég um að skreyta
salinn með þeim. Ég fékk líka að
ráða kökunni með frænda mínum
sem er bakari,“ segir Gróa Hin-
riksdóttir.
Fermist með
frændsystkinum
Örvar Sigurðsson frá Stykkishólmi
fermist á annan í hvítasunnu í
Helgafellskirkju. „Við erum nokkur
frændsystkin sem fermumst saman
og erum öll ættuð frá Helgafelli,“
segir hann. Örvar segist hafa val-
ið að fermast vegna þess að hefð sé
fyrir því í fjölskyldunni. „Það mikil-
vægasta við ferminguna finnst mér
vera sjálf fermingarathöfnin, auð-
vitað, og svo kemur öll fjölskyld-
an saman og vinir okkar og fagna
með mér þessum degi. Það verð-
ur ábyggilega gaman. Sérstaklega
vegna þess að Gauti frændi minn
frá Noregi kemur og fermist með
okkur. Hann er sonur tvíburasyst-
ur mömmu og hefur alltaf búið í
Noregi. Við verðum svo með sam-
eiginlega veislu á hótelinu,“ útskýr-
ir Örvar. Hann segir foreldra sína
hafa séð um undirbúninginn að
mestu leyti. „En þau hafa líka tek-
ið mark á því sem ég hef lagt til,
eins og t.d. að við frændurnir yrð-
um saman í þessu. Við erum nú að
fara til Noregs eftir nokkra daga í
heimsókn til Gauta frænda míns.
Það er hluti af því að halda upp á
ferminguna þótt hún verði ekki fyrr
en eftir tvo mánuði.“
Hefur lært dálítið mikið
Guðrún Karítas Hallgrímsdótt-
ir fermist í Hvanneyrarkirkju um
hvítasunnuna. Hún segir ákvörð-
unina ekki hafa vafist fyrir henni og
fermist vegna trúar sinnar á Guð.
Fermingarfræðslan kom henni á
óvart. „Sérstaklega sagan og hvað
gerðist. Ég er búin að læra dálít-
ið mikið um þetta, mest um ævi
Jesú og af hverju kristin trú er til.“
Guðrún Karítas segir fræðsluna
hafa verið fróðlega en skemmtileg-
ast þótti henni að horfa á fræðslu-
mynd. „Við fórum líka upp í Reyk-
holt í einn dag. Þar voru prest-
ar og krakkar frá nokkrum sókn-
um og við vorum að læra um ævi
Jesú og alls konar tákn.“ Ferming-
arveisla Guðrúnar Karítasar verðu
haldin heima hjá henni á Hvann-
eyri og verður um 60 manns boð-
ið. „Við verðum með kökur og ein-
hvern mat. Ég ætla að reyna að taka
þátt í undirbúningnum, kannski að
hjálpa til við að baka og skreyta,“
segir hún.
Rætt við fermingarbörn á Vesturlandi um stóra daginn
Jón Viðar Hlynsson fermist 24. mars.
Ljósm. af.
Berghildur Björk Reynisdóttir langar í
hest í fermingargjöf. Ljósm. grþ.
Bjarki Rúnar Ívarsson tók ákvörðun
um að fermast eftir góða umhugsun.
Ljósm. grþ.
Elva Björk Jónsdóttir fermist í
Grundarfjarðarkirkju sunnudaginn 17.
apríl. Ljósm. tfk.
Kristín Kristinsdóttir fermist í Ólafs-
víkurkirkju. Ljósm. af.
Tanja Lilja Jónsdóttir segist hafa
ákveðið að fermast til að staðfesta trú
sína. Ljósm. tfk.
Gróa Hinriksdóttir hlakkar mikið til
fermingardagsins. Ljósm. eb.
Örvar Sigurðsson fermist í Helgafells-
kirkju ásamt frændsystkinum sem öll
eru ættuð frá Helgafelli. Ljósm. eb.
Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir fermist
í Hvanneyrarkirkju um hvítasunnuna.