Skessuhorn - 16.03.2016, Side 45
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2016 45
Nýfæddir Vestlendingar
9. mars. Drengur. Þyngd 3.670 gr.
Lengd 51 sm. Foreldrar: Svala
Konráðsdóttir og Viðar Örn
Línberg Steinþórsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
Borgarbyggð - fimmtudagur 17. mars
Félagsvist í safnaðarheimilinu Félagsbæ,
Borgarnesi kl. 20. Lokakvöldið í þriggja
kvölda keppni. Góð kvöld- og lokaverð-
laun. Veitingar í hléi. Allir velkomnir.
Borgarbyggð - fimmtudagur 17. mars
Föstuguðsþjónusta í Borgarneskirkju
kl. 20. Organisti: Steinunn Árnadóttir.
Prestur: Þorbjörn Hlynur Árnason.
Reykhólahreppur - föstudagur 18. mars
Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Ballið á
Bessastöðum. Þetta er fjölskyldusýning,
verk sem er unnið upp úr samnefndri
bók Gerðar Kristnýjar, en Bragi Valdimar
Skúlason samdi tónlistina. Lífleg sýning
og ávísun á góða skemmtun fyrir fólk
á öllum aldri. Sýnt verður í Félags-
heimilinu á Hólmavík. Sýningin hefst
kl. 20. Einnig verður sýnt sunnudag kl.
14, þriðjudag kl. 18, páskadag kl. 20 og
fimmtudaginn 31. mars kl. 18.
Borgarbyggð - laugardagur 19. mars
Vorjafndægrablót í Einkunnum kl. 18.
Blótið verður helgað vönum, vættum
vorsins og goðmögnum gróandans.
Lyftum horni, fögnum lengri sólargangi
og komandi vori! Til Einkunna liggur 3,5
km vegur af þjóðvegi nr. 1 við hesthúsa-
hverfið ofan Borgarness. Upplýsingar
hjá Jónínu K. Berg Þórsnessgoða í síma
865-2581. Allir velkomnir.
Dalabyggð - laugardagur 19. mars
Markaður í Leifsbúð frá kl. 14 til 16.
Á markaðnum verða söluborð með
alls konar varningi. Hægt er að panta
söluborð í síma 849-5684 eða á hann-
alind89@gmail.com. Slysavarnadeildin
verður með veitingar til sölu. Sjáumst
hress og kát.
Dalabyggð - laugardagur 19. mars
Torfi og ljáirnir á Byggðasafni Dala-
manna. Kl. 15 mun Bjarni Guðmunds-
son á Hvanneyri koma á sögustund á
Byggðasafni Dalamanna og fjalla um
Torfa í Ólafsdal og ljáina, það er fyrstu
heyskaparbyltinguna hérlendis. Bjarni
verður og með nokkrar bækur í fartesk-
inu til sölu og áritar. Aðgangseyrir er
sem fyrr 500 kr. fyrir 18 ára og eldri, frítt
fyrir börn. Kaffi á könnunni. Sælingsdals-
laug er síðan opin kl. 14-18 fyrir þá sem
það vilja. Byggðasafn Dalamanna er á
Laugum í Sælingsdal.
Borgarbyggð - laugardagur 19. mars
Óþarfa offarsi 7. sýning í Logalandi kl.
20. Umf. Reykdæla sýnir átta hurða
farsa eftir Paul Slade Smith. Leikstjóri
Ármann Guðmundsson. Illskiljanlegur
leigumorðingi, góðgjarn borgarstjóri,
frekar tregar en ákaflega viljugar
löggur, kynsveltur endurskoðandi,
dauðhræddur yfirmaður öryggismála,
gæðaleg borgarstjórafrú. Hvernig
fer þetta saman? Það er ekkert víst
að neitt klikki! Miðapantanir í síma
435-1182/691-1182.
Borgarbyggð - laugardagur 19. mars
Egilssögur á Sögulofti í Landnámssetri
Borgarnesi kl. 20. Hinn ástsæli söngvari
og lagasmiður Egill Ólafsson segir frá
eftirminnilegum atvikum úr sínu við-
burðaríka lífi. Lög Egils eru fléttuð inn í
sýninguna.
Akranes - sunnudagur 20. mars
Fermingarguðsþjónusta kl. 10. 30 og
14. Sunnudagaskólinn kl. 11 í húsnæði
KFUM og -K, Garðabraut 1, meðan á
fermingum stendur.
Stykkishólmur - sunnudagur 20. mars
Félagsvist í Setrinu kl. 15:30.
Borgarbyggð - sunnudagur 20. mars
Egilssögur á Sögulofti í Landnámssetri
Borgarnesi kl. 16. Hinn ástsæli söngvari
og lagasmiður Egill Ólafsson segir frá
eftirminnilegum atvikum úr sínu við-
burðaríka lífi. Lög Egils eru fléttuð inn í
sýninguna.
Borgarbyggð - mánudagur 21. mars
Félagsvist á Hótel Á, Kirkjubóli, Hvítár-
síðu kl. 20:30. Félagsvist með tilheyrandi
kaffi og kræsingum ásamt verðlaunum.
Góð samverustund fyrir unga sem
aldna. Kvenfélag Hvítársíðu.
Hvalfjarðarsveit - þriðjudagur 22. mars
Páskaliljusala Kvenfélagsins Lilju í Hval-
fjarðarsveit. Dagana 22. og 23. apríl nk.
mun kvenfélagið Lilja í Hvalfjarðarsveit
standa fyrir sinni árlegu páskaliljusölu.
Allir ágóði af sölunni mun fara til þess að
kaupa hjartastuðtæki fyrir sundlaugina/
íþróttahúsið í Heiðarborg. Verð á einu
búnti er kr. 2.000 en séu keypt þrjú eða
fleiri þá er verðið á búntinu kr. 1.500.
Stykkishólmur - þriðjudagur 22. mars
Snæfell fær Val í heimsókn í úrvals-
deild kvenna í körfuknattleik og hefst
leikurinn kl. 19:15.
Borgarbyggð - þriðjudagur 22. mars
Fyrirlestrar í héraði: Glíman við Hallgrím
í Bókhlöðu Snorrastofu. Passíusálmarnir
eru viðfangsefnið í fyrirlestri Marðar
Árnasonar. Sjá nánar frétt í blaðinu.
Aðgangseyrir er kr. 500.
Á döfinni
Handlaginn óskast
Vantar sanngjarnan handlaginn einstak-
ling (1-2) til að ljúka framkvæmdum við
litla íbúð í Reykjavík. Múra, pússa, smá
smíðavinna o.s.frv. Stutt að sækja efni
og áhöld. Hafið samband í skilaboðum
allao@centrum.is.
Heyrúllur til sölu
Til sölu heyrúllur, góðar í útigang. Verð
3.000 kr. stk. Staðsettar í Dalasýslu. Uppl.
í síma 892-5678.
Konunglegt og glæsilegt antik
sófasett
Þetta fallega sófasett er til sölu. Það er
danskt með mjög fallegu vínrauðu pluss
áklæði sem sér ekki á. Settið saman
stendur af sófa og 2 stólum með örmum
og 2 minni stólum án arma. Verð 220
þús. Uppl. í S: 696-2334 eða ispostur@
yahoo.com.
Frystiskápur, ísskápur og flatskjár
Til sölu: frystiskápur 20 þús., ísskápur
20 þús. og 37“ LG flatskjár frá 2007 á 40
þús. Uppl. í síma 892-5114.
Óska eftir leiguhúsnæði
Leiguhúsnæði óskast með 3 til 4 her-
bergi. Skoðum alla staðsetningu á
Vesturlandi, t.d. Hvanneyri, Borgarnes,
Grundarfjörð eða Stykkishólm. haf-
steinnsv@gmail.com.
Ert þú að leita að fólki eins og okkur
til að leigja hjá þér?
Við mæðgur (37 og 4 ára) viljum flýja
borgina og leitum því að húsnæði í
Stykkishólmi. Erum með eindæmum
þrifalegar, hófstilltar, reglusamar,
heimakærar, gáfaðar, uppátækjasamar
og glaðlegar. Eigum helling af dóti sem
myndi varla fylla meira en þrjú herbergi,
ekki væri verra ef herbergi væru fjögur
svo amma geti heimsótt. drifapalin@
gmail.com.
Húsnæði til leigu
Einbýlishús til leigu. 6-7 herbergja
269 fm. til leigu frá 1. maí í 6 mánuði
lágmark. Húsnæðið er að fara í söluferli.
Leiga á mánuði 285 þús. Þrír mán-
uðir greiddir fyrirfram. Uppl. á baza@
internet.is.
Íbúð til leigu á Akranesi
Til leigu lítil íbúð, stutt frá Fjölbraut.
Upplýsingar í síma 896-0182.
Óska eftir bát
Óska eftir um það bil fimm til sjö tonna
bát til leigu á strandveiðar í sumar. Upp-
lýsingar í síma 695-2150, Guðmundur
Karlsson.
Bílaþvottur Sylvíu
Við tökum að okkur að þrífa og bóna
bíla á sanngjörnu verði. Getum sótt
og skilað innan Akraness ef þess þarf.
Erum vandvirk og höfum einnig ágætis
reynslu. Sími 864-1844 og 893-1854.
Markaðstorg Vesturlands
DÝRAHALD
HÚSBÚNAÐIR / HEIMILISTÆKI
LEIGUMARKAÐUR
ÝMISLEGT
9. mars. Drengur. Þyngd 4.050 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar:
Heiðrún Hafliðadóttir og
Róbert Ágústsson, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
10. mars. Stúlka. Þyngd 3.740 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar: Margrét
Björnsdóttir og Smári Hrafnsson,
Reykhólahreppi. Ljósmóðir:
Ásthildur Gestsdóttir.
9. mars. Drengur. Þyngd 3.550 gr.
Lengd 50 sm. Foreldrar: Kathrin
Martha Schmitt og Ásgeir
Sverrisson, Hvammstanga.
Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir.
9. mars. Stúlka. Þyngd 3.550 gr.
Lengd 51 sm. Foreldrar: Katarzyna
Gacek Wasilewska og Radóslaw
Wasilewski, Tálknafirði. Ljósmóðir:
Valgerður Ólafsdóttir / Ólafía S.
Einarsdóttir.
9. mars. Stúlka. Þyngd 3.385 gr.
Lengd 50 sm. Foreldrar: Anna
Guðrún Sigurðardóttir og
Ásmundur Shannon Herman,
Reykjavík. Ljósmóðir: Helga
R. Höskuldsdóttir / Ólafía S.
Einarsdóttir.
ATVINNA Í BOÐI Næstu blöð:
Þriðjudaginn 22. mars
Miðvikudaginn 30. mars
Miðvikudaginn 6. apríl
Vegna páskavikunnar sem framundan er verður
Skessuhorn næstu viku gefið út degi fyrr en venjulega
og kemur út þriðju daginn 22. mars. Fyrsta blað eftir
páska kemur út miðvikudaginn 30. mars.
Aðsent efni og auglýsingar til birtingar óskast sendar
fyrr en venjulega með tilliti til þessara útgáfudaga.
Fréttaveita Vesturlands
Átta hurða farsi! Útspekúleruð gildra!
Illskiljanlegur leigumorðingi, góðgjarn borgarstjóri, tregar en ákaflega viljugar
löggur, kynsveltur endurskoðandi, dauðhræddur yfirmaður öryggismála,
gæðaleg borgarstjórafrú. Þegar þannig hópur kemur saman þá er ekki víst að
neitt klikki!
Næstu sýningar:
6. sýning, föstudag ....................................18. mars kl. 20.00
7. sýning, laugardag. .................................19. mars kl. 20.00
8. sýning, miðvikudag ...............................23. mars kl. 20.00
9. sýning, fimmtudag.................................24. mars kl. 20.00
10. sýning, laugardag ................................26. mars kl. 20.00
Ekki missa af þessari sprenghlægilegu sýningu!
Miðapantanir í síma 435 1182 / 691 1182
Fosshótel Reykholt býður þriggja rétta leikhúsmatseðil og sértilboð á gistingu.
Nánari upplýsingar í síma 435 1260 og á netfanginu: addi@fosshotel.is
Ungmennafélag Reykdæla
ÓÞARFA
OFFARSI
Sýnt er í Logalandi í Reykholtsdal
eftir Paul Slade Smith
í leikstjórn Ármanns Guðmundssonar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6