Skessuhorn - 16.03.2016, Side 46
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 201646
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
ÍA tók á móti Ármanni í 1. deild
karla í körfuknattleik síðastliðinn
fimmtudag. Um gríðarlega mikil-
vægan leik var að ræða fyrir bæði
lið. Með sigri gátu Skagamenn
tryggt sætið í úrslitakeppninni en
Ármenningar náð í mikilvæg stig
í botnbaráttunni. Mikið jafnræði
var með liðunum í upphafi leiks.
Ármenningar skoruðu fyrstu stig-
in en Skagamenn komust fljótlega
yfir og tóku frumkvæðið í leiknum
en gestirnir fylgdu þeim eins og
skugginn. Með þriggja stiga körfu
undir lok fyrsta leikhluta kom-
ust Ármenningar stigi yfir. Leik-
menn ÍA komu gríðarlega ákveðn-
ir til annars fjórðungs. Svæðisvörn
þeirra fór að skila tilætluðum ár-
angri og þeir höfðu níu stiga for-
skot í hálfleik, 40-31.
Skagamenn virtust ætla að síga
fram úr um miðjan þriðja leikhluta.
Ármenningar voru ekki á þeim
buxunum og hleyptu smá spennu í
leikinn á ný með góðum kafla. En
þeir höfðu ekki erindi sem erfiði.
Skagamenn réðu lögum og lofum á
vellinum í lokafjórðungnum, skor-
uðu hverja körfuna á fætur ann-
arri og unnu að lokum 20 stiga sig-
ur 84-64. Tryggðu Skagamenn sér
þannig 5. sæti deildarinnar og sæti
í úrslitakeppninni um laust sæti í
úrvalsdeild að ári.
Sean Tate var atkvæðamestur
Skagamanna með 34 stig, sex stoð-
sendingar og fimm fráköst. Jón
Orri Kristjánsson var með 16 stig
og 16 fráköst og Áskell Jónsson var
með tólf stig. Þá skoraði Fannar
Freyr Helgason ellefu stig, tók ell-
efu fráköst og gaf sex stoðsending-
ar en aðrir höfðu minna.
Næst mæta Skagamenn deildar-
meisturum Þórs norður á Akureyri
föstudaginn 18. mars áður en úr-
slitakeppnin tekur við. kgk
Skagamenn tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni
Eins og oft áður fór Sean Tate mikinn
þegar ÍA sigraði Ármann og tryggði sér
sæti í úrslitakeppni 1. deildar karla.
Ljósm. jho.
Síðastliðinn föstudag tók Skalla-
grímur á móti Hamri í 1. deild karla
í körfuknattleik. Fyrir leikinn höfðu
Skallagrímsmenn þegar tryggt sér
sæti í úrslitakeppninni en kepptu að
heimaleikjarétti í keppninni. Ham-
arsmenn höfðu hins vegar misst af
lestinni. Skallagrímsmenn byrjuðu
af krafti en misstu flugið um miðjan
fyrsta leikhlutann. Betri stígandi var
í leik gestanna sem nýttu tækifærið
og náðu afgerandi forskoti og leiddu í
leikhléi, 40-56.
Síðari hálfleikur fór rólega af stað.
Gestirnir leiddu og Skallagrímsmenn
minnkuðu muninn lítillega undir lok
þriðja leikhluta. Þeir héldu heima-
mönnum frá sér allt til loka, Skalla-
grímur komst aldrei nær en sem nam
sjö stigum seint í leiknum og þurfti
að lokum að sætta sig við tíu stiga tap,
90-100.
J.R. Cadot var atkvæðamestur í
liði Skallagríms með 26 stig, tólf frá-
köst og sjö stoðsendingar. Næstur
kom Hamid Dicko með 15 stig og þá
Sigtryggur Arnar Björnsson með 14
stig, níu fráköst og sex stoðsendingar.
Davíð Guðmundsson skoraði 13 stig
en aðrir höfðu minna.
Í lokaleik deildarinnar mætir
Skallagrímur Fjölni á útivelli föstu-
daginn 18. mars. Þar geta Borgnes-
ingar tryggt sér heimaleikjarétt í úr-
slitakeppninni. kgk
Skallagrímur berst enn
um heimaleikjarétt
Góður leikur J.R. Cadot dugði
Skallagrímsmönnum ekki í leiknum
á föstudag. Hér treður hann yfir
varnarmann Hamars sem má sín lítils í
baráttunni.
Ljósm. Skallagrímur.
Íslandsmeistaramótaröðinni í klifri
lauk á sunnudaginn síðastliðinn í
Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA átti hátt í
tuttugu keppendur á mótinu á aldrin-
um 6 til 16 ára og hafa þeir aldrei ver-
ið fleiri. Í keppni um Íslandsmeistara-
titil í unglingaflokki, 13-15 ára, hafn-
aði Brimrún Eir Óðinsdóttir í fjórða
sæti og Ástrós Elísabet Ástþórsdótt-
ir í því þriðja og þar með hafa þær
unnið sér inn þátttökurétt á bikar-
móti Íslands sem fram fer í apríl. Ís-
landsmeistari síðustu ára, Katarína
Eik Sigurjónsdóttir frá Klifurfélagi
Reykjavíkur, varði Íslandsmeistartitil
sinn þriðja árið í röð. þs
Hafa þátttökurétt á
bikarmóti Íslands í klifri
Á myndinni er hluti iðkenda ÍA sem tók þátt á mótinu.
Lokaumferð Domino‘s deildar karla
í körfuknattleik var leikin síðastlið-
inn fimmtudag. Snæfell heimsótti
Þór til Þorlákshafnar og hefði með
sigri geta tryggt sér 8. sæti deildar-
innar og þátttökurétt í úrslitakeppn-
inni um Íslandsmeistaratitilinn. Snæ-
fellingar mættu nokkuð laskaðir til
leiks. Stefán Karel Torfason fékk
heilahristing á dögunum og gat ekki
tekið þátt og Sherrod Wright spilaði
meiddur á ökkla.
Leikmenn Þórs byrjuðu betur en
í leiknum en um miðjan fyrsta leik-
hluta skelltu Snæfellingar í lás og
réðu gangi mála. Þeir héldu foryst-
unni allt þar til hálfleiksflautan gall
en Þórsarar gerðust sífellt nærgöng-
ulli. Forskot Snæfells var þrjú stig í
hálfleik, 41-44.
Eftir leikhléið var mikið jafn-
ræði með liðunum. Snæfell leiddi en
heimamenn fylgdu þeim hvert fót-
mál og allt var í járnum fyrir loka-
fjórðunginn. Fyrstu mínútur hans
köstuðu liðin forystunni á milli sín
en það voru Þórsarar sem gripu hana
og sigldu fram úr. Snæfellingar máttu
því sætta sig við sex stiga tap, 88-82.
Þrátt fyrir að spila hálfpartinn á
öðrum fæti var Sherrod Wright at-
kvæðamestur Snæfellsmanna í leikn-
um með 29 stig og 15 fráköst. Sig-
urður Þorvaldsson kom honum
næstur með 23 stig og níu fráköst og
því næst Austin Bracey með 15 stig
og sjö fráköst.
Snæfellingar ljúka leik í Íslands-
mótinu í ár í 9. sæti Domino‘s deild-
arinnar og eru komnir í sumarfrí.
Fyrir tímabilið sagði Ingi Þór Stein-
þórsson þjálfari að markmiðið væri
að halda liðinu í deildinni og mega
Snæfellingar því vel við una. Því
markmiði var náð nokkru fyrir lok
tímabilsins og allt umfram það verð-
ur að teljast gott.
kgk
Snæfell kemst ekki í úrslitakeppnina en má vel við una
Snæfellingar hafa lokið leik á Íslandsmóti karla í körfuknattleik eftir að þeir lutu í
lægra haldi fyrir Þór frá Þorlákshöfn. Mynd úr safni.
Við sögðum frá því í síðustu viku að
nemendur í Grundaskóla á Akra-
nesi tóku þátt í Boðsundskeppni Ís-
lands, meðal grunnskólabarna, sem
háð var í Laugardalslaug síðastliðinn
þriðjudag. Átta sundkappar af mið-
stigi Brekkubæjarskóla tóku einnig
þátt í keppninni og syntu 8 x 25 með
frjálsri aðferð í Laugardalslaug. Öll
stóðu þau sig eins og hetjur og end-
uðu í öðru sæti af samtals 34 skólum.
Sundfólkið á meðfylgjandi mynd eru:
Sóldís, Ngozi, Hafþór, Þórarinn,
Rafael, Anna, Ingibjörg og Kristján.
Meðfylgjandi mynd er af Facebook
síðu Brekkubæjarskóla. mm
Urðu í öðru sæti í
Boðsundskeppninni
Stærsti leikur tímabilsins í Dom-
ino‘s deild kvenna í körfuknatt-
leik var leikinn í Hafnarfirði
síðastliðið þriðjudagskvöld. Þar
áttust við toppliðin tvö, Snæfell
og Haukar, í leik sem vó þungt í
baráttunni um deildarmeistara-
titilinn og heimaleikjarétt í úr-
slitakeppninni um Íslandsmeist-
aratitilinn.
Haukar byrjuðu leikinn gríð-
arlega vel. Helena Sverrisdóttir,
sem að öðrum ólöstuðum hefur
verið besti leikmaður Íslands-
mótsins, fór mikinn á upphafs-
mínútunum og leikmenn Snæ-
fells fengu ekki rönd við reist.
Haukar höfðu 15 stiga forskot
strax að fyrsta leikhluta loknum
og þegar orðið á brattann að sækja
fyrir Snæfellskonur. Því fór hins veg-
ar fjarri að þær væru tilbúnar að játa
sig sigraðar þá og þegar. Annan leik-
hluta áttu þær með húð og hári, færð-
ust stöðugt nær Haukum og minnk-
uðu muninn í þrjú stig fyrir hálfleik,
38-35.
Munurinn hélst að kalla óbreytt-
ur fyrst eftir leikhléið en um miðjan
þriðja leikhluta tóku Haukar að síga
fram úr á nýjan leik. Snæfellskonur
höfðu ekki erindi sem erfiði. Haukar
lokuðu á Haiden Palmer, sem hafði
verið aðal drifkrafturinn í sóknarleik
Snæfells og komst hún hvorki lönd
né strönd í lokafjórðungnum.
Snæfell missti Hauka of langt
fram úr sér og þurftu að lok-
um að sætta sig við 19 stiga tap,
78-59.
Þrátt fyrir að hafa ekki náð
sér á strik í lokafjórðungnum
var Haiden Palmer atkvæða-
mest í liði Snæfells með 22 stig,
tíu fráköst og sex stoðsending-
ar. Næst henni kom Gunnhild-
ur Gunnarsdóttir með 16 stig
og þá Bryndís Guðmundsdóttir
með átta. Geta má þess að hin-
um megin setti áðurnefnd Hel-
ena Sverrisdóttir upp risavaxna
þrennu 32 stiga, 17 frákasta og
ellefu stoðsendinga.
Snæfell er í öðru sæti deild-
arinnar með 36 stig, tveimur færri
en Haukar sem nú verma toppsæt-
ið. Þrjár umferðir eru eftir af deild-
arkeppninni og baráttan um toppsæt-
ið í algleymingi. Næst leikur Snæfell
gegn Keflavík í Stykkishólmi í kvöld,
miðvikudaginn 16. mars.
kgk
Snæfell varð að lúta í gras í toppslag deildarinnar
Bryndís Guðmundsdóttir sækir að körfunni og Helena
Sverrisdóttir, leikmaður Hauka er til varnar. Snæfell
mátti sætta sig við tap í leiknum og barátta liðanna á
toppi deildarinnar er í algleymingi.
Ljósm. Þorsteinn Eyþórsson.