Skessuhorn - 07.12.2016, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 49. tbl. 19. árg. 7. desember 2016 - kr. 750 í lausasölu
Gjafakort Arion banka er hægt
að nota hvar sem er.
Gjafakortið fæst í öllum útibúum
okkar og á arionbanki.is/gjafakort
Jólagjöf sem
allir geta notað
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
GJAFABRÉF
á leiksýningu & kvöldverð
Gjafvörur í miklu úrvali
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Njótum
aðventunnar
verslum í heimabyggð
Opið alla daga 10:00-21:00
Það er áratuga hefð fyrir því að kvenfélagið Hringurinn í Stykkishólmi haldi jólabasar, en félagið sjálft verður 110 ára í
byrjun næsta árs. Á basarnum er hefð fyrir því að yngri kynslóðin geti tekið þátt í pakkaveiði þar sem veiðivonin er góð. Sjá
nánar frá basarnum á bls 26. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Ólafur K. Ólafsson sýslumaður á
Vesturlandi hefur með bréfi til inn-
anríkisráðuneytisins formlega lýst
yfir vilja embættisins til að taka að
sér þinglýsingar á landsvísu. Til
umsagnar í ráðuneytinu eru drög
að frumvarpi til breytinga á lögum
um þinglýsingar (rafrænar þinglýs-
ingar) og gefinn kostur á að senda
ráðuneytinu athugasemdir. Meg-
inbreyting frumvarpsins felst í að
rafrænar þinglýsingar verði vistað-
ar hjá einu sýslumannsembætti sem
annist allar þinglýsingar í landinu
og því verði eitt sýslumannsemb-
ætti gert að þinglýsingastjóra.
Erindi þetta sendir Ólafur sýslu-
maður að áeggjan Regínu Ásvalds-
dóttur bæjarstjóra á Akranesi sem
bendir á í bréfi til sýslumanns og
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
að á Akranesi séu bæjaryfirvöld ein-
huga um að vilja sækjast eftir þessu
verkefni. Í bréfi Regínu segir: „Að
mati bæjaryfirvalda á Akranesi þá
væri mikill fengur að því fyrir Vest-
urland að fá verkefnið í landshlut-
ann, enda um nokkuð mörg störf
sérhæfðra starfsmanna að ræða.“
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi tekur undir þetta sjón-
armið og það gerir Sýslumaðurinn
á Vesturlandi einnig. Ólafur bend-
ir á í bréfi sínu til ráðuneytisins að
þannig hátti til hjá Sýslumanninum
á Vesturlandi að á skrifstofu emb-
ættisins á Akranesi sé gott húsrými.
„Vitaskuld koma fleiri sjónarmið
til álita en húsrými, þegar tekin er
ákvörðun um það hvaða embætti
annist allar þinglýsingar í landinu,
og telur embættið sig í stakk búið
til að mæta þeim þegar þau koma til
umfjöllunar,“ skrifaði Ólafur sýslu-
maður í erindi sínu til ráðuneytis-
ins.
mm
Sýslumaður
falast eftir
þinglýsingum
Í Ráðhúsinu á Akranesi við Stillholt
16-18 er rými sem talið er geta hentað
fyrir starf þinglýsingastjóra fyrir
landið. Ljósm. úr safni.
Bandaríska ferðatímaritið Tra-
vel & Leisure hefur útnefnd Snæ-
fellsnes eftirsóknarverðasta vetr-
aráfangastað í Evrópu, en tímarit-
ið birti nýverið listann „Europe‘s
Best Winter Getaways“ á heima-
síðu sinni. Skýtur Snæfellsnes
stöðum eins og fjallahéraðinu Do-
lomites á Norður-Ítalíu og hinu
sænska Åre-héraði ref fyrir rass,
en þeir áfangastaðir verma annað
og þriðja sætið á lista tímaritsins.
Farið er fögrum orðum um Snæ-
fellsnes og náttúru þess í umsögn
tímaritsins með tilnefningunni í
efsta sætið. Nefnir greinarhöfund-
ur sérstaklega mosavaxnar hraun-
breiðurnar, firði Snæfellsness með
sína bröttu klettaveggi, eldfjallið
Eldborg og Snæfellsjökul og þykir
mikið til svæðisins koma.
Leggur greinarhöfundur til að
ferðalangar hefji dvöl sína á Hótel
Egilsen í Stykkishólmi, rölti síðan
yfir götuna og snæði á Narfeyrar-
stofu, þar sem hann hrósar lamba-
réttinum í hástert og segir hann
þann besta í bænum. Síðan mæl-
ir hann með því að ferðalangar
haldi af stað áleiðis og fari akandi
um Nesið þar sem ferðalangar geti
virt fyrir sér fossa og strandlengj-
una áður en komið er að Hótel
Búðum. Þar hvetur hann gesti til
að nýta sér sérstaka norðurljósa-
vakt sem þar er boðið upp á. „Ef
þú vilt strika Norðurljósin út af
listanum þínum þá ertu heppinn
því að náttvörðurinn vekur þig
þegar sýningin er að byrja,“ segir
greinarhöfundur.
kgk
Snæfellsnes er vetraráfangastaður Evrópu
Horft af toppi Snæfellsjökuls.
Ljósm. Sammi Haff.