Skessuhorn - 07.12.2016, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 20162
um einstakling sem verðskuldað
gæti þetta sæmdarheiti fyrir fram-
göngu sína í starfi og/eða leik.
Skilyrði er að sá sem tilnefndur
er sé búsettur á Vesturlandi. Jafn-
framt er óskað eftir einni setningu
þar sem tilnefning er rökstudd.
Fyllsta trúnaðar er gætt varðandi
tilnefnendur. Ábendingum verður
svo safnað saman og sérstök val-
nefnd á vegum ritstjórnar Skessu-
hornss metur þær. Valinu verð-
ur síðan lýst í fyrsta blaði nýs árs,
miðvikudaginn 4. janúar 2017.
Tilnefningar um Vestlending
ársins 2016 óskast sendar sem
fyrst á: skessuhorn@skessuhorn.
is Einnig er hægt að hringa í síma
894-8998. mm
Stekkjastaur kemur til byggða aðfarar-
nótt mánudagsins 12. desember, fyrstur
jólasveina. Því næst kemur bróðir hans
Giljagaur, þá Stúfur og síðan einn í einu
þar til á aðfangadag. Foreldrar jólasvein-
anna, hjúin Grýla og Leppalúði, sem bæði
eru áskrifendur Skessuhorns, eru hér með
beðin um að minna syni sína á að drattast
af stað á réttum tíma svo börn landsins
fari ekki sár og svekkt út í mánudaginn 12.
desember með tóman skó í glugganum.
Þau eru jafnframt beðin um að halda katt-
arófétinu innandyra fram yfir hátíðirnar.
Það verður norðaustan 13-18 m/s á Vest-
fjörðum og með norðurströnd lands-
ins á morgun. Rigning eða slydda en yfir-
leitt fremur hæg suðlæg eða breytileg
átt annars staðar á landinu. Rigning eða
skúrir suðvestan til en þurrt að mestu fyr-
ir austan. Hiti 2-7 stig, mildast með suður-
ströndinni. Á föstudag gengur í norðaust-
an 10-15 m/s með rigningu, en úrkomu-
lítið hér á Vesturlandi. Sums staðar vægt
frost framan af degi fyrir norðan. Annars
hiti, 1-6 stig, mildast með suðurströnd-
inni. Á sunnudag spáir suðaustanátt með
rigningu og á mánudag er útlit fyrir suð-
lægar áttir með vætu og áframhaldandi
mildu veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvenær byrjar þú að undirbúa jólin?“
Flestir, eða 48%, sögðu „í upphafi aðventu“
en „ég geri ekkert fyrir jólin, svöruðu næst-
flestir, 16%. „Nokkrum dögum fyrir jól“
sögðu 12%, „um miðjan desember“ sögðu
11% og 10% segjast byrja að undirbúa
jólin að hausti. Fæstir byrja fyrir þann tíma,
því „fyrr á árinu“ svöruðu aðeins 3% þeirra
sem þátt tóku.
Í næstu viku er spurt:
Hvað ætlar þú að baka
margar smákökusortir fyrir jólin?
Rúna Ösp Unnsteinsdóttir, tvítug stúlka
frá Grundarfirði, hefur verið ráðin til að
tala inn á teiknimyndaþætti um sögu-
persónuna Punky, litla stúlku með Downs
heilkenni. Rétt eins og Punky er Rúna Ösp
með Downs heilkennið en það var að ósk
framleiðanda að sá eða sú sem léði Punky
rödd sína væri þeim eiginleikum gæddur.
Rúna Ösp rúllaði upp prufunum og fékk
hlutverkið. Rætt er við Rúnu Ösp í Skessu-
horni vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Aukið eftirlit
við skóla
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi hefur nú tek-
ið upp aukið eftirlit með um-
ferðinni í kringum grunnskóla
og leikskóla í umdæminu. At-
hugað er með ökuhraða og
hvort að allir séu að nota rétt-
an öryggisbúnað, jafnt börn
sem fullorðnir. -mm
Úr leik í
Útsvari
SNÆFELLSBÆR: Lið Snæ-
fellsbæjar mætti liði Þingeyj-
arsveitar í Útsvari, spurninga-
keppni sveitarfélaganna á
RÚV, að kvöldi síðasta föstu-
dags. Lið Snæfellsbæjar skip-
uðu þau Hafdís Rán Brynjars-
dóttir, Halldór Kristinsson og
Örvar Marteinsson. Jafnræði
var með liðunum eftir leik-
inn og enn átti spenna eftir að
færast í keppnina. Staðan var
jöfn, 38-38 eftir orðaþrautina.
Þingeyingar náðu yfirhönd-
inni í flokkaspurningunum og
höfðu tíu stiga forskot, 53-43
fyrir stóru spurningarnar. Liði
Snæfellsbæjar tókst ekki að
gera sér mat úr þeim og varð
að lokum að játa sig sigrað,
76-43. Aðeins ein viðureign er
eftir í fyrstu umferð keppninn-
ar og ljóst að stigin 43 munu
ekki duga Snæfellsbæ til að
komast áfram í næstu umferð
sem eitt af stigahæstu taplið-
unum. Akraneskaupstaður er
því eina Vesturlandsliðið sem
kemst áfram í aðra umferð
þáttarins.
-kgk
Þróttur
mokar snjó
HVALFJ.SVEIT: Miðviku-
daginn 30. nóvember skrif-
uðu Hvalfjarðarsveit og Vega-
gerðin undir snjómoksturs-
samning við verktakafyrirtæk-
ið Þrótt ehf. Munu starfsmenn
fyrirtækisins sjá um allan snjó-
mokstur í sveitarfélaginu til
móts við Vegagerðina. Þá
mun Þróttur sjá um allan
mokstur heimreiða sem í boði
er skv. viðmiðunarreglum um
snjómokstur í sveitarfélaginu.
Frá þessu er greint á heima-
síðu Hvalfjarðarsveitar, en þar
birtist einnig meðfylgjandi
mynd sem tekin var eftir und-
irritun samningsins. Á henni
eru f.v. Skúli Þórðarson sveit-
arstjóri, Helgi Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Þróttar og
Valgeir Ingólfsson, yfirverk-
stjóri hjá svæðismiðstöð Vega-
gerðarinnar í Borgarnesi.
-kgk
Þorvaldur Víðisson biskupsritari
ritaði nýverið formönnum sókn-
arnefnda í Staðastaðarprestakalli
á Snæfellsnesi bréf þar sem til-
kynnt var um ákvörðun Agnes-
ar Sigurðardóttur biskups um að
aflétta búsetuskyldu sóknarprests
á kirkjustaðnum Staðastað. Þrátt
fyrir miklar framkvæmdir í hús-
inu á liðnum árum er það ekki
gallalaust, en deildar meiningar
eru um ástand þess. Í bréfi bisk-
upsritara kemur ekki fram hvort
ákvörðun þessi er varanleg eða
til skamms tíma. Séra Þorvaldur
Víðisson staðfestir í samtali við
Skessuhorn að ákvörðun þessi feli
í sér að prestur getur nú ákveðið
hvar búseta hans verður. Ekki hef-
ur verið tekin ákvörðun um bygg-
ingu nýs prestsbústaðar á kirkju-
staðnum.
Í bréfinu kemur fram að biskup
og sóknarprestur munu í samein-
ingu vinna að því að finna sama-
stað í prestakallinu fyrir skrifstofu
sóknarprests. „Biskupi er umhug-
að um að prestsþjónustan í presta-
kallinu sé tryggð,“ segir í bréfinu,
sem endar á þann veg: „Þótt for-
sendur hafi breyst varðandi búsetu
sóknarprestsins er það von bisk-
ups að trúnaðarmenn kirkjunnar
í sóknarnefndum ásamt sóknar-
presti skipuleggi nú í sameiningu
hina kirkjulegu þjónustu í presta-
kallinu út frá þessum nýju for-
sendum og með hagsmuni sóknar-
barna að leiðarljósi.“
Í opnu og fremur harðorðu
bréfi sem Ólína Gunnlaugsdótt-
ir á Ökrum, ritari í sóknarnefnd
Hellnakirkju, ritar Agnesi Sig-
urðardóttur biskupi Íslands, er því
mótmælt að biskup hafi aflétt bú-
setuskyldu sóknarprests á Staða-
stað. Ólína lýsir vonbrigðum sín-
um með ákvörðun biskups. „Við
erum orðlaus og lýsum vonbrigð-
um og réttlátri reiði. Án vitundar,
hvað þá samráðs, hefur þú svift
prestakallið prestssetri sínu, sam-
þykkt að sóknarprestur flytji upp
á sitt einsdæmi úr prestakallinu og
að hann sinni ekki starfi sínu sem
slíkur! Þrátt fyrir ítrekaðar athuga-
semdir, bæði skriflegar og munn-
legar, jafnvel á fundum með þér
sjálfri, hunsar þú okkur sóknar-
börn Staðastaðarprestakalls, gerir
lítið úr tilveru okkar hér sem með-
limir Þjóðkirkjunar og starfi okkar
sem höfum unnið sem ,,trúnaðar-
menn kirkjunnar” eins og þú kall-
ar það,“ ritar Ólína í bréfi sínu til
biskups sem hún birtir á Facebook
síðu sinni.
mm
Biskup afléttir búsetuskyldu sóknarprests á Staðastað
Horft heim að Staðastað. Kirkjan til hægri en íbúðarhús og útihús til vinstri.
Enn á ný mun Skessuhorn gang-
ast fyrir vali á Vestlendingi ársins.
Í lok hvers árs hefur verið kallað
eftir tilnefningum frá almenningi
Tilnefningar óskast um Vestlending ársins
Nýlega varð ferðamaður á leið um
Borgarfjörð fyrir því óláni að tapa
peningaveski sínu. Þegar hann ætl-
aði að borga fyrir matinn á Hótel
Húsafelli greip hann í tómt. Maður
þessi hafði fyrr um daginn týnt vesk-
inu á veginum framan við Hönnu-
búð í Reykholti. Hafði lagt veskið
ofan á bílþakið meðan hann greiddi
fyrir bensín í sjálfsalanum. Þórar-
inn Skúlason bóndi á Steindórsstöð-
um ók þar framhjá síðar um daginn
og sá veskið liggjandi í snjóslabbi á
götunni og tók það til handargagns.
Í ljós kom að veski þetta var ekk-
ert venjulegt peningaveski og eng-
inn venjulegur meðal-Jón sem það
átti. Eigandinn var Rússi sem kom-
ist hefur í góðar álnir. Í því var með-
al annars að finna gullpenna, lykil
að bankahólfi, um tíu greiðslukort
og þverhandarþikk búnt af pening-
um í fimm gjaldmiðlum; meðal ann-
as dollarar, evrur en sínu mest af
rússneskum rúblum. Áætlaði heim-
ilisfólk á Steindórsstöðum að þetta
væru peningar að verðgildi tveggja
milljóna íslenskra króna.
Þórarinn ákvað strax að reyna
sjálfur að finna eiganda veskisins og
freista því að koma því aftur í réttar
hendur. Í því var meðal annars kort
frá bílaleigunni Hertz. Með því að
hafa uppi á bílaleigunni tóks honum
að rekja ferðir mannsins og gat látið
hann vita í Húsafelli hvar maðurinn
mætti vitja veskisins. Rússinn kom
að Steindórsstöðum ásamt eigin-
konu og einkabílstjóra og bauð fram
fundarlaun, sagði að það væri sann-
gjarnt að finnandinn fengi allavega
helming þeirra peningaseðla sem
í veskinu voru. Það þáði Þórar-
inn hins vegar ekki, en Rússinn tók
ekki annað í mál en hann fengi þó
að launum tvær vodkaflöskur fyrir
ómakið og greiðann. „Það var gam-
an að geta gert fólki svona greiða og
mikið leið manni vel á eftir, ekki síst
að sjá hvað fólkið var þakklátt þeg-
ar það hafði endurheimt verðmæti
sín,“ sagði Þórarinn í samtali við
Skessuhorn. mm
Veskinu komið til skila og vodki að launum
Ólöf Guðmundsdóttir hóf störf sem
atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveit-
arfélaga á Vesturlandi 1. desember
síðastliðinn. Var hún ráðin úr hópi
28 umsækjenda um stöðuna. Ólöf er
fædd og uppalin í Borgarnesi. Hún
er viðskiptafræðingur frá Háskóla
Íslands og lauk nýverið meistara-
námi í forystu og stjórnun frá Há-
skólanum á Bifröst. Ólöf hefur langa
reynslu af fjármálastjórnun hjá fyr-
irtækjum, hefur starfrækt bókhalds-
þjónustu og starfað hjá endurskoð-
unarfyrirtækinu Grant Thornton.
„Um leið og við bjóðum Ólöfu vel-
komna til starfa, viljum við þakka
umsækjendum fyrir sýndan áhuga,“
segir í frétt á vef SSV. kgk
Ólöf er nýr atvinnuráðgjafi SSV