Skessuhorn - 07.12.2016, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 20168
Annir þyrlu-
sveitar við
erfiðar aðstæður
STYKKISH: Mikið ann-
ríki var hjá þyrlusveit Land-
helgisgæslunnar aðfarar-
nótt sunnudags. TF-GNÁ
fór í tvö sjúkraflug um nótt-
ina og morguninn. Fyrra út-
kallið fólst í að sækja alvar-
lega veikan einstakling til Ísa-
fjarðar. Veður var slæmt og
komst því ekki sjúkraflug-
vél Mýflugs frá Ísafirði. Mik-
il ókyrrð var í ferðinni, slæmt
veður og ísing. Lent var á Ísa-
firði og sjúklingurinn sótt-
ur sem og annar sem kom-
ast þurfti einnig undir læknis-
hendur í Reykjavík. Klukkan
rúmlega sex um morguninn
barst svo stjórnstöð beiðni um
þyrlu vegna veiks einstaklings
í Stykkishólmi. Þyrlan fór í
loftið um hálfsjö og var kom-
in á vettvang um tuttugu mín-
útum síðar. Sjúklingur hafði
þá verið fluttur með sjúkrabíl
áleiðis að Borgarfjarðarbrú til
móts við þyrluna. Þungskýjað
og þoka var á flugleiðinni um
morguninn svo fljúga þurft
með ströndinni í Borgarnes.
Flugið gekk engu að síður vel
og var lent með sjúklinginn í
Fossvogi á áttunda tímanum
um morguninn. -mm
Aðgæsla
nauðsynleg
VESTURLAND: Vöru-
bílstjóri sem nýverið var að
fjarlægja bíl af Holtavörðu-
heiði, sem hafði farið þar út
af og verið var að ná aftur
upp á veginn, kvartaði sáran
yfir óaðgæslu og hraðakstri
ökumanna. Sagði maður-
inn í samtali við lögreglu að
hann hefði verið með öll til-
heyrandi blikkljós og aðvör-
unarljós í gangi en margir
ökumenn hefðu ekkert sleg-
ið af þegar þeir óku framhjá
og hann taldi sig hafa verið
þarna í mikilli hættu. Lög-
regla vill brýna það fyrir öku-
mönnum að mikilvægt er að
þeir taki tillit til viðvörunar-
ljósa og sýni aðgát þegar ein-
hver er stopp úti í vegarkanti.
Þá saki ekki að bjóða fram að-
stoð ef einhver er í vandræð-
um. -mm
Samstarf um
sjávarrannsóknir
ÓLAFSVÍK: Skrifað hefur
verið undir samstarfssamning
til tveggja ára um sjávarrann-
sóknir í Breiðafirði. Að hon-
um standa Hafrannsókna-
stofnun og Vör, sjávarrann-
sóknasetur við Breiðafjörð.
Starfsstöð Hafró í Ólafsvík
og Varar mun verða nú verða
saman til húsa í húsnæði því
sem Vör hefur verið í í Ólafs-
vík. Á starfsstöðinni er gert
ráð fyrir að minnsta kosti
fimm starfsmönnum og verð-
ur núverandi starfsmönnum
boðin áframhaldandi vinna,
en önnur störf verða auglýst.
Tilgangur samningsins, sem
tekur gildi um næstu áramót,
er að efla rannsóknir í Breiða-
firði. Að sögn Ólafs Sveins-
sonar stjórnarformanns Var-
ar er tilgangur samningsins
einnig að styrkja rekstur Var-
ar með samstarfi við ríkis-
stofnun. -mm
Óhöpp án
meiðsla
VESTURLAND: Alls
urðu sex umferðaró-
höpp í umdæmi Lögregl-
unnar á Vesturlandi í lið-
inni viku, flest minni hátt-
ar og án teljandi meiðsla að
því best er vitað. Erlendir
ferðamenn veltu bílaleigu-
bíl sínum á Holtavörðu-
heiði sl. fimmtudag eftir
að hafa misst stjórn á bíln-
um í snjó og hálku. Sluppu
þeir án teljandi meiðsla en
bíllinn var óökufær og var
fluttur á brott með kranabíl.
Einn ökumaður var tekinn
fyrir akstur án ökuréttinda
og var hann einnig grunað-
ur um akstur undir áhrifum
fíkniefna. Erlendir ferða-
menn voru í vandræðum á
litlum bílaleigubílum á Arn-
arvatnsheiði og á lokuðum
fjallvegum á Snæfellsnesi.
Lögreglan kallaði út þjón-
ustuaðila þeim til aðstoðar.
Voru ferðamennirnir ým-
ist fastir í snjó eða að hluta
til utan vegar. Aðspurðir
sögðust þeir ekki hafa tekið
eftir því að umræddir vegir
væru merktir lokaðir fyrir
umferð.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
26. nóvember - 2. desember
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 2 bátar.
Heildarlöndun: 6.090 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 4.400
kg í tveimur löndunum.
Arnarstapi 1 bátur.
Heildarlöndun: 17.349 kg.
Mestur afli: Kvika SH:
17.349 kg í þremur lönd-
unum.
Grundarfjörður 7 bátar.
Heildarlöndun: 325.416
kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.125 kg í einum róðri.
Ólafsvík 8 bátar.
Heildarlöndun: 100.977
kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarna-
son: 31.786 kg í þremur
löndunum.
Rif 12 bátar.
Heildarlöndun: 367.455
kg.
Mestur afli: Örvar SH:
86.224 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 97.395 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
43.751 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Örvar SH - RIF:
86.224 kg. 28. nóvember.
2. Rifsnes SH - RIF:
84.684 kg. 1. desember.
3. Hringur SH - GRU:
67.125 kg. 30. nóvember.
4. Steinunn SF - GRU:
57.132 kg. 30. nóvember.
5. Saxhamar SH - RIF:
56.413 kg. 2. desember.
grþ
Bæjarráð Akraneskaupstaðar tók
fyrir á fundi sínum 24. nóvember
síðastliðinn erindi frá skólameistara
Fjölbrautaskóla Vesturlands, Ágústu
Elínu Ingþórsdóttur. Í erindinu var
óskað eftir fjárstuðningi til tækja-
kaupa við skólann. Vísað er til þess
að þau sveitarfélög sem eiga aðild
að samningi um FVA hafi tekið þátt
í kostnaði við tækjakaup fyrir skól-
ann og er þakkaður sá stuðningur
sem sýndur hefur verið gegnum tíð-
ina. Hins vegar er bent á mikla þörf
á endurnýjun tækjabúnaðar og að-
stöðu fyrir málmiðngreinar.
„Miklar tækniframfarir á síðustu
árum hafa leitt til þess að nauðsyn-
legt er fyrir skólann að fjárfesta í
nýjum tækjabúnaði fyrir málmiðn-
greinadeild skólans,“ segir í erindi
Ágústu. Hún segir að leggja þurfi
rækt við iðn- og tæknimenntun og
segir frá því að skólinn hafi ráðist í
málmiðngreinaátak á vorönn 2016.
Segir hún að tryggja verði að þær
greinar verði áfram mikilvæg stoð í
atvinnulífi Vesturlands og ein af for-
sendum fyrir auknum tækifærum í
iðn- og verkmenntum og menntun
á háskólastigi. „Fjölbrautaskóli Vest-
urlands býður upp á gott og vandað
nám í iðn- og verkgreinum og til-
koma nýrra fyrirtækja á Grundar-
tangasvæðinu mun enn auka þörf-
ina fyrir iðn- og verkmenntað fólk.
Við sjóndeildarhringinn eru ný og
spennandi tækifæri og því nauðsyn-
legt að stjórnvöld, sveitarfélög og
fyrirtæki á Vesturlandi taki hönd-
um saman í átaki um endurnýjun
aðstöðu og búnaðar við málmiðn-
greinadeildir Fjölbrautaskóla Vest-
urlands á Akranesi,“ segir Ágústa
í erindi sínu. Meðfylgjandi erindi
hennar er listi yfir þau tæki og tól
sem stjórnendur skólans meta brýnt
að endurnýja næstu tvær annirn-
ar. Endurnýjun þeirra tækja nemur
samtals tæpum 20 milljónum króna.
Skemmst er frá því að segja að
bæjarráð Akraness samþykkti að
veita einni milljón króna til FVA
til tækjakaupa fyrir árið 2017. Ráð-
ið tók undir orð skólameistara um
mikilvægi þess að efla iðn- og tækni-
menntun og fól bæjarstjóra að senda
erindi til menntamálaráðherra þar
sem vakin er athygli á stöðu skól-
ans og skorað á ráðherra að ráða þar
bót í máli. „Telur bæjarráð brýnt að
Fjölbrautaskóli Vesturlands fái nægt
fjármagn í fjárlögum til að endur-
nýja nauðsynlegan tækjabúnað. Iðn-
greinar eru mikilvæg stoð í atvinnu-
lífi á Vesturlandi og nauðsynlegt að
búa starfsfólki og nemendum góða
aðstöðu og nauðsynleg tæki.“
kgk
Akraneskaupstaður veitir
FVA milljón til tækjakaupa
Skorað á ráðherra að tryggja stuðning í fjárlögum
Alþjóðlegur gerðardómur hefur úr-
skurðað í máli sem HS Orka höfð-
aði gegn Norðuráli Helguvík árið
2014. Dómurinn kemst að þeirri
niðurstöðu, öfugt við úrskurð gerð-
ardóms frá árinu 2011, að HS Orku
beri ekki að standa við ákvæði raf-
orkusamnings sem fyrirtækið und-
irritaði við Norðurál í apríl 2007
vegna álvers í Helguvík í Garði.
Norðurál vildi að HS Orka stæði
við samninginn eins og hann var
gerður í upphafi og afhenti fyrirtæk-
inu orku í samræmi við hann, eða
150 MW orku. Byggingar álvers-
ins voru að hluta til reistar í Helgu-
vík, en kerskálar hafa staðið fok-
heldir um nokkurra ára skeið. Ragn-
ar Guðmundsson, forstjóri Norður-
áls, segir að sérfræðingar Norðuráls
séu enn að fara yfir úrskurð gerð-
ardómsins, en hann valdi vissulega
vonbrigðum. „Við munum nú fara
ítarlega yfir forsendur úrskurðar-
ins og meta út frá því hvaða mögu-
leikar eru fyrir hendi. Þá munum
við kanna hvort mögulegt sé að afla
orku til verkefnisins í Helguvík eftir
öðrum leiðum,“ segir Ragnar.
Undanfarin ár hafa hendur HS
Orku verið bundnar þegar kemur
að nýtingu virkjanakosta og sölu
raforku vegna þess að virkjanaleyfi
hefur ekki fengist og þá hefur fyrr-
greindur ágreiningur við Norður-
ál sett strik í áætlanagerð HS Orku.
Gerðardómur í Svíþjóð úrskurð-
aði 2011 að samningurinn ætti að
standa, þrátt fyrir að skilyrði hans
hafi ekki verið uppfyllt. Í samningn-
um var kveðið uppi um ákveðna arð-
semi af orkusölunni. Eftir það hef-
ur ekki fundist lausn, fyrr en hugs-
anlega nú þegar gerðardómur hef-
ur kveðið upp fyrrnefndan úrskurð.
Það var HS Orka sem höfðaði málið
sumarið 2014 enda vildi fyrirtækið
getað selt orkuna öðrum raforku-
kaupendum.
mm
Gerðardómur dæmir HS
orku í vil í raforkusölumáli
Guðni Th Jóhannesson forseti
Íslands afhenti nýverið verðlaun
og viðurkenningar í tengslum við
verkefni Forvarnardagsins. Ac-
tavis fékk verðlaun fyrirtækis og
nokkur ungmenni að auki fyr-
ir netratleik Forvarnardagsins
sem ætluður er ungmennum sem
fædd eru 1999-2002. Athöfnina
sóttu auk verðlaunahafa og fjöl-
skyldna þeirra fulltrúar stofn-
ana og samtaka sem að degin-
um standa. Meðal verðlaunahafa
var Grundfirðingurinn Sigurð-
ur Heiðar Valgeirsson, nemandi í
9. bekk við Grunnskóla Grundar-
fjarðar. Sigurður Heiðar stendur
hér næstlengst til hægri á mynd
við hlið forseta Íslands.
mm
Fékk verðlaun í vefratleik forseta