Skessuhorn - 07.12.2016, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 9
Melissa
Sous Vide Tæki
Verð: 17.995
Fissler
29.995
CrushCrind
Verð frá 5.495
Zone
12.350
DUTCHDELUXES
Verð frá 9.950
frá 89.995
Melissa
Þjóðbraut 1 - Akranesi - sími 431 3333 - www.gjafahus.is
Lagt er til að sveitarfélögum verði
fækkað úr 74 í níu í nýrri skýrslu
efnahagssviðs Samtaka atvinnulífs-
ins um stöðu og framtíð sveitarfé-
laga á Íslandi. Segir efnahagsvið það
geta orðið einn lið í eflingu sveitar-
félaga og það hafi í sér margvíslega
hagræna kosti. Yrðu þessar tillögur
að veruleika yrði Vesturland allt til
dæmis eitt sveitarfélag sem næði frá
Hvalfjarðarbotni í suðri að botni
Gilsfjarðar í norðri og með tæplega
16 þúsund íbúa. Nú eru sveitarfé-
lögin á þessu svæði tíu talsins.
Í upphafi skýrslunnar segir að
þrátt fyrir að tekjur íslenskra sveit-
arfélaga á hvern íbúa, metnar á föstu
verðlagi, hafi hækkað um fjórð-
ung síðastliðin 14 ár hafi afkoma
sveitarfélaganna versnað. „Útgjöld
sveitarfélaga hafa aldrei verið meiri
og var sameiginleg rekstrarniður-
staða þeirra neikvæð árið 2015. Þó
afkoma stærstu sveitarfélaganna á
fyrri árshelmingi þessa árs gefi til-
efni til aukinnar bjartsýni má lítið
út af bregða til að staðan breytist
sviplega og gæti órói á vinnumark-
aði og vaxandi launakostnaður snú-
ið góðri stöðu,“ segir í skýrslunni.
Þá segir að fjárfestingar sveitarfé-
laga hafi dregist saman undanfarin
ár og upp hafi safnast talsverð þörf
fyrir fjárfestingar. Þó bjartsýni gæti
í áætlunum stærstu sveitarfélaga
og áformaðar séu allnokkrar fjár-
festingar á komandi árum samhliða
batnandi afkomu þá segir í skýrsl-
unni að töluverður viðsnúningur
þurfi að verða á rekstri þeirra til að
slík áform geti gengið eftir. Efna-
hagssvið lýsir yfir áhyggjum sínum
á slakri rekstrarafkomu sveitarfé-
laga á hagvaxtarskeiði undanfar-
inna sex ára þrátt fyrir að skattpró-
sentur séu flestar í botni, því hag-
vaxtarskeiðið muni taka enda einn
daginn. „Í ljósi alvarlegrar skulda-
stöðu er nauðsynlegt að sveitarfé-
lögin dragi úr útgjöldum og búi í
haginn fyrir erfiðari tíma.“
Núgildandi fjármála-
reglur ekki nógu góðar
Efnahagssvið segir þær fjármála-
reglur sveitarfélaga sem tóku gildi
árið 2012 ekki fullnægjandi, en
þeim er tvískipt í jafnvægis- og
skuldareglu. „En þó er nánast ekk-
ert fjallað um jafnvægisregluna og
öll áherslan lögð á skuldaregluna.“
Enn fremur segir að sautján stærstu
sveitarfélög landsins hefðu aðeins í
helmingi tilvika uppfyllt jafnvægis-
regluna frá 2004 og fjögur uppfylla
ekki enn skuldaregluna. Efnahags-
svið segir mikilvægt að fjármála-
reglur séu einfaldar og gagnsæjar,
þá verði eftirfylgnin meiri, en slíkt
skorti í núgildandi reglum.
Þá telur efnahagssvið sveitar-
félögin of mörg og smá, fjöldi ís-
lenskra sveitarfélaga sé svipaður og
á Norðurlöndunum þrátt fyrir að
Íslendingar séu álíka margir og íbú-
ar eins landshluta hjá frændþjóðum
okkar í Skandinavíu. Enn frem-
ur segir að á Norðurlöndunum sé
sveitarstjórnarstigið burðugra og
opinber grunnþjónusta að mestu í
höndum sveitarfélaganna.
Vilja stærri sveitarfélög
og breyttar reglur
„Sé vilji til að auka umfang sveit-
arstjórnarstigsins á Íslandi og færa
verkefni í auknum mæli til sveitar-
félaga þarf að efla þau og stækka,“
segir í skýrslunni og þá segir enn
fremur að erfið staða sveitarfélag-
anna hreinlega kalli á breyting-
ar. Fyrsta skrefið sem efnahags-
svið leggur til er að sveitarfélögum
verði fækkað úr 74 í níu með sam-
einingum. „Hagrænu áhrifin af
sameiningu sveitarfélaga eru marg-
vísleg. Sveitarfélögin verða sam-
bærilegri að stærð sem gerir sam-
anburð milli sveitarfélaga auðveld-
ari. Auðveldari samanburður eykur
aðhald við rekstur einstakra sveitar-
félaga og dýpkar umræðu um stöðu
þeirra. Með stærri og öflugri sveit-
arfélög skapast svigrúm til að lækka
stjórnsýslukostnað á íbúa og auka
skilvirkni. Hagræðing í rekstri býr
til aukin tækifæri til að veita íbúum
betri þjónustu eða þjónustu sem
hefur áður ekki staðið til boða. Þá
skapast tækifæri til að efla sveitar-
stjórnarstigið og færa fleiri stór
verkefni frá ríki til sveitarfélaga og
þar með færa þjónustuna nær íbú-
unum.“
Í öðru lagi lagt til að breyting-
ar verði gerðar á fjármálareglum, í
stað jafnvægisreglu verði innleidd
útgjaldaregla. Slíkar reglur nái til
grunnforsendu hallareksturs, stuðli
að jöfnun hagsveiflunnar, virkari
forgangsröðun auk þess sem út-
gjaldaregla sé einföld, gagnsæ og
auðvelt að fylgja eftir.
Þriðja skrefið, sem tekið yrði
þegar fyrstu tvö hafa verið stigin,
yrði síðan að auka umfang sveitar-
stjórnarstigsins. „Stærri og öflugri
sveitarfélög eru betur í stakk búin
til að auka gæði þjónustu sinnar við
íbúa án frekari fjárútláta og taka á
sig fleiri verkefni og þannig færa
þjónustuna nær íbúum landsins,“
segir í skýrslu efnahagssviðs Sam-
taka atvinnulífsins.
kgk
Leggja til að sveitarfélög landsins verði níu
Þannig leggur efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins til að sveitarfélagaskipan Íslands verði eftir sameiningar. Eins og sjá má
á myndinni, sem klippt er úr skýrslunni, yrði Vesturland eitt sveitarfélag sem næði frá botni Hvalfjarðar í suðri að botni Gils-
fjarðar í norðri. Þá yrði höfuðborgarsvæðinu skipt upp í tvö sveitarfélög.