Skessuhorn - 07.12.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 11
Út er komin PISA skýrsla 2015 en
hún sýnir námsárangur ungmenna
í 10. bekk grunnskóla í saman-
burði við jafnaldra þeirra erlendis.
Þetta er í sjötta skipti sem Ísland er
þátttakandi í PISA rannsókninni.
Niðurstöður nú sýna að ekki er
marktæk lækkun á lesskilningi og
stærðfræðilæsi íslenskra nemenda
á milli áranna 2012 og 2015. Hins
vegar hefur orðið lækkun í læsi á
náttúruvísindi. Gert er ráð fyr-
ir að nemandi bæti sig að jafnaði
um sem nemur 30 stigum í PISA
á hverju ári og samkvæmt þess-
um mælikvarða er lækkun í læsi á
náttúruvísindi á Íslandi um hálft
ár. Ísland er þó ekki eitt Norður-
landanna sem sýnir lækkun í læsi á
náttúruvísindi en það hefur einn-
ig versnað í Svíþjóð og mest er
lækkunin í Finnlandi eða því sem
nemur heilu skólaári í samanburði
við finnska 15 ára nemendur árið
2006. Á sama tíma bæta norskir og
danskir nemendur sig. Árangur ís-
lenskra nemenda er lakari en hjá
hinum Norðurlöndunum í fögun-
um þremur eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd. mm
Jólabingó Lyngbrekku!
Fimmtudaginn 15. desember kl. 20:00 í félagsheimilinu
Lyngbrekku verður hið bráðskemmtilega og árlega Jóla-
bingó Kvenfélags Álfthreppinga. Í ár er það til styrktar hins
mikilvæga starfs Krabbameinsfélags Borgarfjarðar.
Þetta verður hin besta fjölskylduskemmtun og að vanda
verða flottir og veglegir vinningar í boði sem geta lífgað
upp á skammdegið nú í aðdraganda jóla.
Því miður verður ekki posi á staðum
en spjaldið mun kosta 700 kr.
Hlökkum til að sjá sem
flesta í jólaskapi.
Kvenfélag Álfthreppinga
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
1245. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar-
þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 13. desember
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að
hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, •
laugardaginn 10. desember kl. 10.30.
Björt framtíð að Smáraflöt 1, mánudaginn •
12. desember kl. 20.00.
Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Still• holti 16-18,
laugardaginn 10. desember kl. 11.00.
Frjálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vestur• götu 32,
kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 12. desember
kl. 20.00.
Bæjarstjórnarfundur
Versnandi læsi í náttúruvísindum hér á landi
Undanfarin sjö ár tæplega, eða frá
því í marsmánuði 2010, hefur List-
og handverksfélag Akraness og ná-
grennis rekið verslunina Gallerí
Urmul við Kirkjubraut 54 á Akra-
nesi, Skagamollinu svokallaða. Þar
hefur verið hægt að fá ýmiskon-
ar handverk, allt frá lopapeysum til
leirlistar. Nú hillir hins vegar und-
ir lok verslunarinnar. „Við erum að
hætta með verslunina. Hér verður
opið þar til á hádegi á aðfangadag
og síðan flytjum við út á áramót-
um,“ segir Eygló Gunnarsdóttir,
formaður List- og handverksfélags
Akraness og nágrennis, í samtali
við Skessuhorn. Hún segir að smám
saman hafi fækkað í þeim hópi hand-
verks- og listafólks sem hefur í sam-
einingu haldið Gallerí Urmul gang-
andi. Fækkunin sé af ýmsum ástæð-
um. Undanfarin ár hefur um 15
manna kjarni félagsmanna staðið að
því að halda versluninni opinni og
kringum átta manns borið hitann og
þungann af daglegum rekstri, skipt
með sér vöktum og fleira slíkt.
„Það hefur einfaldlega ekki ver-
ið næg endurnýjun í hópnum þeg-
ar aðrir hafa dottið út, hverjar sem
ástæður þess eru, til að halda þessu
gangandi. Síðan verður líka að við-
urkennast að það hefur ekki verið
alveg nægilega mikil sala til að við
sjáum einhvern ávinning af því að
halda úti verslun,“ segir Eygló. „Þó
höfum við séð aukningu erlendra
viðskiptavina með vaxandi ferða-
mannastraumi. Við höfum til dæm-
is aldrei selt jafn margar lopapeysur
og á undanförnu ári. En það dugar
ekki til, því reksturinn hefur engu að
síður alla tíð byggt á sölu til heima-
manna og hún hefur minnkað,“ seg-
ir hún og telur ýmislegt spila þar inn
í. „Það er mín reynsla, sem ég hef
heyrt að ég deili með mörgum örð-
um, að í góðæri þá dregst saman sala
í hvers konar handverki og heima-
gerðum munum,“ segir Eygló.
Af ofangreindum ástæðum hefur
list- og handverksfélagið því ákveð-
ið að hætta rekstri verslunarinn-
ar Gallerí Urmuls en Eygló tekur
skýrt fram að félagið sé hvergi nærri
hætt sinni starfsemi, hún verði bara
með öðrum hætti. „Félagsskapur-
inn mun halda áfram að hittast og
ég merki það að félagar eru tilbúnir
að prófa eitthvað nýtt og leita nýrra
leiða til að selja sitt handverk. Við
munum í framtíðinni frekar ein-
blína á að selja okkar vörur á mörk-
uðum,“ segir Eygló Gunnarsdóttir
að lokum.
kgk
Rekstri Gallerí Urmuls
verður hætt á áramótum
Síðan 2010 hefur verið hægt að fá hvers kyns handverk í
verslun Gallerí Urmuls og hafa lopapeysurnar þar skipað
sinn sess.
Púðar, myndir, barnaföt, jólakúlur, handklæði og ýmislegt
fleira í hillunum.
Árlegt jólaútvarp Nemendafélags
Grunnskólans í Borgarnesi verð-
ur sent út frá Óðali dagana 12.-16.
desember næstkomandi. Allir bekkir
Grunnskólans í Borgarnesi koma að
dagskrárgerðinni. Handritagerð fyrir
jólaútvarpið fór fram í skólanum sem
sérstakt verkefni í íslensku og er met-
ið til einkunnar.
Sem fyrr er dagskráin með fjöl-
breyttu sniði. Útsendingar hefjast
með ávarpi útvarpsstjóra kl. 10 að
morgni mánudagsins 12. desember.
Fyrri part dags, alla útsendingardag-
ana, munu óma á öldum ljósvakans
áður hljóðritaðir þættir bekkja grunn-
skólans. Síðan flytja unglingarnir sína
þætti í beinni útsendingu. Auk þess
verða nemendur úr 9. og 10. bekk
Laugargerðisskóla með þátt, sem
og nemendur Menntaskóla Borgar-
fjarðar og Sv1; leikfélag MB. Einnig
verður Húsráð félagsmiðstöðvarinn-
ar Óðals með þátt. Inn á milli verð-
ur spiluð tónlist, allt frá jólatónlist til
laga unga fólksins og tónlistar sem
ómað hefur í áranna rás.
Á hverjum degi kl. 12 á hádegi
verða fluttar fréttir og veðurfréttir af
fréttastofu útvarpsins. Hápunkturinn
í dagskrá fréttastofunnar verður sem
fyrr umræðuþátturinn „Bæjarmálin í
beinni“ sem útvarpað verður kl. 13:00
föstudaginn 16. desember. Þar verða
málin rædd með góðum gestum úr
atvinnulífinu, íþrótta- og menning-
arstarfinu auk þess sem sveitarstjórn
og sveitarstjóri eru væntanleg í hljóð-
stofu. Dagskrá jólaútvarps NFGB
lýkur síðan kl. 19 að kvöldi föstu-
dagsins með kveðju útvarpsstjóra og
lokahófi.
Áhugasömum er bent á að ítar-
lega dagskrá jólaútvarps NFGB með
tímasetningum og upplýsingum um
stjórnendur allra útvarpsþáttanna er
að finna í auglýsingu í Skessuhorni
vikunnar. Sent verður út á tíðninni
FM 101,3 en einnig verður hægt að
hlusta á dagskránna á netinu á heima-
síðu Grunnskólans í Borgarnesi,
www.grunnborg.is.
kgk
Jólaútvarp NFGB í loftið á mánudag
Svipmynd úr hljóðverinu þegar nem-
endur Grunnskólans í Borgarnesi
útvörpuðu frá Óðali á síðasta ári.