Skessuhorn - 07.12.2016, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 13
Jólaútvarp NFGB. fm 101,3
Nemendafélags Grunnskóla Borgarness sent út frá Óðali 12.– 16. frá 10:00 23:00. og undanfarin ár
og dagskrá útvarpað áður þáttum en síðan flytja sína
þætti beinni útsendingu.
Handritagerð fór fram þar sem hefur tekið sem sérstakt metið til einkunnar.
fréttastofunnar eins og undanfarin ár „Bæjarmálin í beinni” 16. des. kl.
er á góðum gestum hljóðstofu þar sem verða rædd.
verða úr íþrótta- og sem og arstjórn og sveitarstjóri.
Auðvitað minnum við alla á okkar frábæru heimasmíðuðu auglýsingar sem enginn má missa af.
Einnig viljum við þakka öllum fyrirtækjum sem styrktu okkur með kaupum á
auglýsingu, án þeirra væri þetta ekki hægt.
Mánudagur 12 des.
10:00 Ávarp útvarpsstjóra Íris Líf Stefánsdóttir
10:10 Bekkjarþáttur 1. bekkur
11:00 Félagsstarfið 2016 Stjórn Nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Bekkjarþáttur 4. bekkur
14:00 Gómsætt um jólin Fannar og Hugi
15:00 Jólahorn Bangsapabba og félaga Bjarni, Margrét og Alexandra
16:00 Húsráð Óðals Húsráð Óðals
17:00 Sögur fyrir yngir kynslóðina Birta Sif, Þórunn Birta og Hugrún
18:00 Fótboltaspurningar Óliver og Sölvi
19:00 Létt jólatónlist Tæknimenn
20:00 387 Sigurður og Axel
21:00 Gamlar jólahefðir Erla, Inga Rósa og Bára Sara
22:00 Lög unga fólksinns Tæknimenn
23:00 Dagskrárlok
Þriðjudagur 13. des.
10:00 Bekkjarþáttur 2. bekkur
11:00 Saga jólaútvarpsins Íris, Ása og Hrafnhildur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Bekkjarþáttur 3. bekkur
14:00 Hljótt á vígvelli og jólasaga Maui, Haukur og Fanney
15:00 Skallagrímur í 100 ár Marinó og Sigurður
16:00 Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar Leikfélag MB
17:00 Íslensk jólalög Tæknimenn
18:00 Jólahald í ýmsum löndum Þórunn Sara, Heiðrún og Viktoría
19:00 Létt jólatónlist Tæknimenn
20:00 Íþróttaafrek Hilmar og Þorsteinn
21:00 AC/DC Svava Björk
22:00 Tónlist í áranna rás Tæknimenn
Miðvikudagur 14. des.
10:00 Bekkjarþáttur 6. bekkur
11:00 Bekkjarþáttur 5. bekkur
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Krakkar úr Laugargerðisskóla Nemendur úr 9 - 10 bekk Laugargerðisskóla
14:00 Fótbolti og heitt kakó Gunnar, Elís, Anton og Brynjar
15:00 Jólalög og uppskriftir Sóley og Arna Jara
16:00 Skallagrímur í 100 ár Marinó og Sigurður
17:00 Jól um allan heim Þóra Kristín og Ásrún Adda
18:00 Mömmu spjall Guðbjörg og Sigga
19:00 Létt jólatónlist Tæknimenn
20:00 Menntaskóli Borgarfjarðar Nemendafélag MB
21:00 Menntaskóli Borgarfjarðar Nemendafélag MB
22:00 Tónlistarþáttur Tæknimenn
23:00 Dagskrárlok
Fimmtudagur 15. des.
10:00 Bekkjarþáttur 7. bekkur
11:00 1. og 2. bekkur endurfluttir
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Körfubolti Arna Hrönn
14:00 Aukaatriði Guðjón og Bergur
15:00 Íþróttanammi Marinó og Aron Dagur
16:00 Húsráð Óðals endurflutt Húsráð Óðals
17:00 Skallagrímur í 100 ár Marinó og Sigurður
18:00 Saga Coca Cola Jóhann Breiðfjörð og Axel
19:00 Létt jólatónlist o.fl. Tæknimenn
20:00 Margt smátt Nemendafélagið
21:00 Á ferð um framandi lönd Rúnar Gíslason og Íris Líf spjalla saman
22:00 Tónlistarþátturinn Tæknimenn
23:00 Dagskrárlok
Föstudagur 16. des.
10:00 3. og 4. bekkur endurfluttir
11:00 5. og 6. bekkur endurfluttir
12:00 Fréttir og veður í umsjón fréttastofu
13:00 Bæjarmálin í beinni Gestir í hljóðstofu í umsjón fréttastofu Óðals
14:00 Létt jólatónlist Tæknimenn
15:00 Bekkjarþáttur endurfluttur 7. bekkur
16:00 Jólatónlist Tæknimenn ( Undirbúningur verðlaunahátíðar )
17:00 Jólatónlist Tæknimenn ( Undirbúningur verðlaunahátíðar )
18:00 Jólatónlist Allir þátttakendur útvarps í umsjón Tæknimanna
19:00 Kveðja útvarpsstjóra og lokahóf
Um þessar mundir er verið að kanna
möguleika þess að koma á fót menn-
ingarsetri í Brákarey í Borgarnesi. Að
því verkefni stendur Sigríður Þóra
Óðinsdóttir, eða Sigþóra eins og hún
er gjarnan kölluð, myndlistarkona frá
Einarsnesi, ásamt Sigursteini Sigurðs-
syni arkitekt í Borgarnesi. „Við kom-
um til með að vinna sameiginlega alla
hugmyndavinnu. Sigursteinn sér um
að teikna upp tillöguna en ég set upp
viðskipta- og markaðsáætlun,“ seg-
ir Sigþóra í samtali við Skessuhorn.
Hún segir að markmiðið með vinnu
þeirra sé að kanna möguleika á menn-
ingarsetri í eyjunni og útfæra tillög-
ur þar að lútandi fyrir sveitarstjórn
Borgarbyggðar. Fékkst til verkefnis-
ins undirbúnings- og þróunarstyrk-
ur úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands
þegar úthlutað var úr sjóðnum á dög-
unum. „Þetta er rannsóknarvinna
sem er að sjálfsögðu unnin með leyfi
og í góðu samstarfi við Borgarbyggð
og enn óvíst hverju hún skilar. En ég
vona auðvitað að hún verði til þess að
hægt verði að fara í þær breytingar á
húsnæði sem þarf að framkvæma og
að í framtíðinni verði opnað menn-
ingarsetur í Brákarey,“ segir hún og
bætir því við að húsnæðið sem um
ræðir sé frystihús gömlu kjötvinnsl-
unnar. „Húsið er ekki í neitt sérlega
góðu ásigkomulagi og ýmislegt sem
þarf að gera til að hægt verði að búa
til einhverja vinnuaðstöðu. En það er
allt í lagi, við hugsum bara þannig við
sem erum í skapandi greinunum, við
sjáum bara möguleika í slíku,“ segir
Sigþóra.
Eyjan ber þetta með sér
Aðspurð hvaðan hugmyndin að
menningarsetri í Brákarey sé upp-
runnin segir Sigþóra að hún hafi ver-
ið lengi í umræðunni. „Ég held að
þetta hafi alltaf verið viðloðandi og
hef heyrt marga nefna að eyjan gæti
verið spennandi staður fyrir fólk að
sækja eitthvað tengt menningu,“ seg-
ir hún. „Staðurinn ber þetta svolít-
ið með sér finnst mér. Maður fer yfir
brúna, mætir í eyjuna og það ligg-
ur beint við að þar verði eitthvað
sem tekur á móti manni. Þar er ekk-
ert betra en menningin. Mér finnst
eins og það hafi alltaf verið rætt um
þetta,“ segir hún en bætir því við að
hugmyndin hafi ekki farið að ná flugi
fyrr en að lokinni Plan-B listahátíð,
sem haldin var í Borgarnesi síðsum-
ars. Hún var þar einn skipuleggj-
enda. „Plan-B gekk ofboðslega vel
og við áttum jákvætt samtal við fólk,
bæði af svæðinu og annars staðar frá,
sem var ánægt að fá að kynnast hvers
kyns birtingarformi myndlistarinnar.
Af því hátíðin gekk svo vel þá langaði
okkur að skapa einhvers konar sam-
eiginlegan vettvang fyrir fólk í skap-
andi greinum til að sinna sínu starfi.
En við eigum von á að þetta komi til
með að tengjast Plan-B ef af verð-
ur, enda stendur til að halda þá hátíð
aftur,“ segir hún. „Nú þegar eru til
staðar Vitbrigði Vesturlands, sem eru
tengslanet fyrir fólk í skapandi grein-
um og í gegnum þau höfum við séð
að það eru margir að vinna á þessu
sviði í landshlutanum. Með menn-
ingarsetri væri tækifæri til að sam-
eina að minnsta kosti einhvern hluta
þess hóps undir einu þaki. Þarna gæti
það átt aðstöðu til að vinna ef það
hefur hana ekki fyrir, auk þess sem
vinna með öðru fólki eflir allt menn-
ingarlíf,“ segir Sigþóra.
Menningarsetur
allt árið
Hún segir hugmyndirnar gera ráð
fyrir að opið verði allt árið. „Við
leggjum upp með það að þarna verði
starfandi menningarsetur allt árið
um kring. Við sjáum fyrir okkur að
Skoða möguleika á menningarsetri í Brákarey
þarna verði tækifæri fyrir fólk í skap-
andi greinum að vera með stúdíó og
vinnuaðstöðu, tvinnað saman við
opin rými þar sem hægt verður að
nýta til sýninga, tónleikahalds eða
bara fyrir fólk að koma og skoða og
upplifa,“ segir Sigþóra. „Þá er hug-
myndin að þarna verði alltaf opið og
lifandi flæði. Þá geta íbúarnir komist
í tæri við hinar skapandi greinar og
kynnast hvernig starfsemi skapandi
greina er háttað. Einnig má alveg
ímynda sér að einhverjir ferðamenn
hefðu gaman af því að líta við,“ segir
hún. „Síðan mun þetta án efa opna á
marga möguleika sem eiga enn eftir
að koma upp úr krafsinu,“ Sigþóra að
lokum. kgk
Myndlistarkonan Sigríður Þóra Óðins-
dóttir, eða Sigþóra eins og hún er gjarn-
an kölluð, kannar ásamt Sigursteini
Sigurðssyni arkitekt möguleika þess að
koma á fót menningarsetri í Brákarey.
Ljósm. Björgvin Sigurðarson.
Brúin og Brákarey í Borgarnesi böðuð í kvöldsólinni.
Ljósm. úr safni Skessuhorns.