Skessuhorn - 07.12.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 201614
Ólafsvíkurkirkja verður 50 ára 19.
nóvember á næsta ári. Ákveðið
hefur verið að minnast þess með
ýmsum hætti. Hátíðarmessa verð-
ur á sjálfan afmælisdaginn en auk
þess er stefnt að ýmsum viðburð-
um á afmælisárinu. Afmælisnefnd
hefur verið skipuð til að undirbúa
dagskrá. Í henni sitja Auður Böðv-
arsdóttir, Björn Arnaldsson, Erla
Gunnlaugsdóttir, Pétur Jóhanns-
son og Sigrún Ólafsdóttir.
Sturla hefur sterkar
taugar til kirkjunnar
Fyrsta skóflustungan að nýrri kirkju
í Ólafsvík var tekin 1961 af Stefáni
Kristjánssyni og var vígslan síð-
an sex árum síðar. Byggingameist-
ari var Böðvar Bjarnason frá Böðv-
arsholti í Staðarsveit. Þegar kirkjan
var í byggingu starfaði Sturla Böðv-
arsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi,
með föður sínum við framkvæmd-
ina. Þegar fagnað var 40 ára afmæli
kirkjunnar árið 2006 rifjaði Sturla í
viðtali við blaðamann Skessuhorns
upp minningar tengdar kirkjubygg-
ingunni, sem hann segir hafa ver-
ið ánægjulegan tíma. „Ég byrjaði að
vinna við smíðina með pabba þeg-
ar ég var sextán ára gamall og var
við bygginguna meira og minna á
sumrin þar til henni var lokið, allt
frá því að vinna á loftpressu til þess
að setja krossinn á turninn og hengja
upp altaristöfluna. Ólafsvíkurkirkja
er flókin bygging og faðir minn var
vakinn og sofinn yfir þessu verk-
efni. Ég var að læra húsasmíði hjá
honum á þessum árum og fór síð-
ar í byggingatæknifræði eftir það.
Þegar kom að því að vígja kirkj-
una vorum við Hallgerður Gunn-
arsdóttir farin að búa. Okkur þótti
tilvalið að standa aðeins upp frá
skólabókunum í Reykjavík, skreppa
vestur og láta gifta okkur og skíra
elsta barn okkar, Gunnar, í leiðinni.
Þannig vildi það til að hjónaband
okkar er jafngamalt kirkjunni. Þessi
dagur, þ.e. 19. nóvember er helg-
ur dagur í okkar fjölskyldu bæði af
þessu og vegna fleiri atburða. Og
svo hefur hjónaband okkar Hall-
gerðar verið gott og farsælt þannig
að yfir öllu þessu er mikil blessun,”
sagði Sturla í viðtali við Skessuhorn
árið 2006.
mm
Ólafsvíkurkirkja hálfrar aldar á næsta ári
Sturla Böðvarsson með föður sínum Böðvari Bjarnasyni byggingameistara fyrir
framan Ólafsvíkurkirkju þegar hún var í byggingu.
Ólafsvíkurkirkja verður 50 ára í nóvember á næsta ári.
Á komandi misserum stendur til að
ráðast í nauðsynlegar viðhaldsfram-
kvæmdir á Hellnakirkju í Staðastað-
arsókn. Kirkjan var vígð 12. ágúst
1945 og átti því 70 ára afmæli á síð-
asta ári. Löngu er kominn tími á
viðhaldsframkvæmdir við kirkjuna
og liggur hún nú undir skemmd-
um. Að sögn Hafdísar Höllu Ás-
geirsdóttur, formanns sóknarnefnd-
ar á Hellnum, er ástand kirkjunnar
orðið slæmt. „Hvolfþak er á kirkj-
unni og hún er hreinlega að gliðna
í sundur að sunnanverðu. Þakið er
byrjað að síga og ef ekkert verð-
ur að gert, þá hrynur það,“ segir
hún. Hellnasókn er ein af fámenn-
ustu sóknum landsins, með aðeins
fimmtán sóknarbörn. Í fámennum
sóknum sem þessum duga sóknar-
gjöldin skammt til að standa straum
að viðhaldi, enda ekki um marga að
ræða sem greiða í sjóðinn. En nú
má segja að búið sé að lyfta grettis-
taki í að afla fjár til framkvæmdanna.
„Það safnaðist mest þegar afmælis-
kaffi kirkjunnar var haldið í desemb-
er í fyrra og vonandi næst nú að gera
það nauðsynlegasta,“ segir Haf-
dís. Hún segist nú þegar hafa rætt
við iðnaðarmenn en eitthvað hafi
það dregist að hefja framkvæmd-
ir. „Við erum búin að stefna að því í
allt haust að byrjað verði á þessu og
ég vonast til að það verði sem fyrst.
Við stefnum á að þetta verði klár-
að næsta vor, ef veður verður gott.
Næsta sumar ætti kirkjan því að vera
orðin nokkuð góð.“
Gáfu kirkjunni landið
Hellnakirkja fékk rausnarlega gjöf
á dögunum þegar hjónin Reyn-
ir Bragason og Jónasína Oddsdótt-
ir gáfu kirkjunni sinn 62,5% eign-
arhluta af landinu sem hún stend-
ur á. Hjónin eru fyrrum ábúendur á
Laugabrekku en landið fékk Reyn-
ir í arf eftir fósturföður sinn. Í bréfi
sem kirkjunni barst frá hjónunum
segir m.a. að í opinberum gögn-
um fasteignaskráningar hafi kirkj-
an verið talin þeirra eign. Þá segir
að það sé skoðun gefenda að það sé
ekki rétt. Í afsali sé þó tekinn af all-
ur vafi um þetta efni. Ástæðan fyr-
ir þessari villandi skráningu virðist
vera sú að aldrei hefur verið geng-
ið frá lóðarréttindum fyrir kirkjuna
en kerfið skráir fasteign á landeig-
endur þangað til að lóðaréttindi eru
frágengin. Í afsali er kirkjan einn-
ig höfð með til að allur misskilning-
ur sé úr sögunni. „Við óskum kirkj-
unni alls hins besta og að takast megi
að færa ástand hennar í betra horf,“
segir m.a. í bréfinu.
Þungur rekstur
Hafdís vonast til þess að auðveld-
ara verði að fá úthlutað styrkjum,
nú þegar kirkjan á landið sem hún
stendur á. „Það var alltaf litið á kirkj-
una sem bændakirkju, af því að land-
ið var í eigu fólks en ekki kirkjunn-
ar.“ Hún segir það oft á tíðum erf-
itt fyrir litlar sóknir að reka kirkjurn-
ar. „Sóknargjöldin ná ekki einu sinni
upp í kostnaðinn á rekstri kirkjunn-
ar, hvað þá meir. Biskupsstofa mætti
aðstoða meira hvað þetta verðar,
allavega við að reyna að halda kirkj-
unum í góðu ástandi. Litlar sóknir
hafa einfaldlega ekki burði til þess.“
Þá þurfi sóknirnar að sækja um styrki
til framkvæmda við kirkjurnar. „En
maður fær ýmist neitun eða mjög
lítið. Það dregur úr manni máttinn
að sækja um og fá svo alltaf neitun.
Líka að þurfa stanslaust að vera að
sækja um þetta. Það ætti kannski
frekar að vera mannskapur hjá Bisk-
upsstofu sem heldur utan um þessi
mál og hjálpar þessum litlu sóknum
að framkvæma það sem þarf að gera.
Þetta er orðið bákn á litlum sókn-
um, enda vantar alveg að yfirstjórnin
hjálpi til. Hvernig fer þetta til dæmis
ef allir hætta í sókninni? Hvar endar
þá kirkjan,“ spyr Hafdís.
Mikið sönglíf í sókninni
Þrátt fyrir að Hellnakirkjusókn sé
lítil er mikið um að vera. „Sókn-
in stendur fyrir miklu tónlistarlífi í
sveitinni, ásamt tveimur öðrum nær-
liggjandi sóknum. Ekki er sjálfgefið
að hægt sé að halda úti slíku starfi á
stað sem þessum en um er að ræða
bæði karlakórinn Heiðbjörtu og
blandaðan kór sem kallast Samkór
Lýsu. Það er kirkjukórinn en flest-
ir sem eru í karlakórnum eru einnig
í samkórnum. Það er mikið sönglíf
hérna enda æfir Samkór Lýsu aðra
hvora viku en karlakórinn kemur og
æfir sig í hverri viku og tvisvar aðra
vikuna,“ útskýrir Hafdís. Nú stendur
til að framkvæmdir við kirkjuna hefj-
ist á næstu misserum og eru sóknar-
börn þakklát fyrir alla þá aðstoð sem
borist hefur. „Við viljum skila þakk-
læti til allra sem hafa styrkt kirkjuna
og auðvitað til Reynis og Jónasínu.
Þetta er mjög góð og rausnarleg gjöf
og við færum þeim bestu þakkir fyr-
ir,“ segir Hafdís.
Séra Páll Ágúst Ólafsson sóknar-
prestur í Staðastaðarprestakalli er
sóknarnefndinni þakklátur og sam-
gleðst með sóknarbörnum yfir því
að viðhaldsframkvæmdir séu fram-
undan á kirkjunni. „Ég gleðst yfir
því að þessi árangur hafi náðst og
mig langar að hrósa sóknarnefndinni
fyrir verulega gott unnið starf. Þetta
sýnir hvað hægt er að ná miklum ár-
angri þegar fólk setur sér markmið
og vinnur sameiginlega að þeim.“
grþ
Viðhaldsframkvæmdir framundan á Hellnakirkju
Hellnakirkja á Snæfellsnesi.
Kórfélagar á æfingu. Ljósm. Eygló Kristjánsdóttir.