Skessuhorn - 07.12.2016, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 15
www.skessuhorn.is
Hæfniskröfur
Rík þjónustulund•
Góð almenn tölvukunnátta•
Góð samskiptahæfni•
Sjálfstæði og metnaður í starfi•
Hreint sakavottorð og yfir 25 ára
Þú getur sótt um eða fengið frekari upp-
lýsingar um starfið með því að senda
tölvupóst á Hamar@icehotels.is
Umsóknarfrestur er til 17. desember
Óskum eftir starfsmanni í
fullt starf í gestamóttöku á
Icelandair Hótel Hamri
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eins og komið hefur fram í Skessu-
horni var viðurkenningin Ljósberi
afhent á Sauðamessu sem fram
fór í Borgarnesi 1. október síðast-
liðinn. Viðurkenningin er afhent
þeim fyrirtækjum og stofnunum
í Borgarbyggð sem veita einstak-
lingum með fötlun atvinnu. Alls
voru það sex fyrirtæki sem fengu
viðurkenningu þetta árið.
Eitt þeirra var N1 í Borgarnesi.
Herdís Jónsdóttir, stöðvarstjóri
átti ekki heimangengt á Sauða-
messu, en veitti viðurkenningunni
viðtöku nýverið á N1. Fyrirtækið
hefur staðið sig vel í því að veita
einstaklingum með fötlun atvinnu
allt árið. „Velferðarnefnd Borgar-
byggðar, sem stendur fyrir því að
viðurkenningin sé veitt, þakkar N1
fyrir og óskar fyrirtækinu velfarn-
aðar á þessu sviði sem og öðrum.
Það sannast vel í þessum mála-
flokki að við getum öll gert gagn,
allir eru góðir í einhverju og sam-
an myndum við
sterka heild sem
auðgar og styrk-
ir atvinnulífið í
B o r g a r b y g g ð , “
segir í tilkynn-
ingu frá velferðar-
nefnd.
mm
N1 fékk Ljósberann afhentan
Herdís Jónsdóttir
tók við viðurkenn-
ingunni fyrir
hönd N1 úr hendi
Huldu Hrannar
Sigurðardóttur
formanns vel-
ferðarnefndar.
Ljósm. Gunnlaugur
A. Júlíusson.
Úthlutað hefur verið úr Minn-
ingasjóði Björns Rúnarsson
frá Þverfelli Lundarreykjadal.
Björn var fæddur 30. nóvenber
1975 og lést 11. júní 1995. Meg-
intilgangur sjóðsins er að styrkja
bráðveik og langveik börn
og ungmenni. Úthlutað er úr
sjóðnum á fæðingardegi Björns.
Frá stofnun sjóðsins hafa 23 ein-
staklingar hlotið styrki.
Þann 30. nóvenber síðast-
liðinn var úthlutað úr sjóðnum
800.000 krónum til eftirtalinna
tveggja einstaklinga: Dags Kára
Kristinssonar (Hjálpartækjasjóð-
ur), Holtsflöt 7 á Akranesi og Ólafs
Kristins Viðarssonar á Miðhúsum í
Kollafirði á Ströndum. Auk þessara
styrkja var í apríl á þessu ári greitt
200.000 króna framlag í söfnun til
stuðnings aðstandendum Friðriks J.
Björgvinssonar á Núpi í Berufirði.
Tekjur sjóðsins er sala minninga-
korta, áheit og frjáls framlög ein-
staklinga, fyrirtækja og félagasam-
taka. Minningakortin fást hjá Ar-
ion banka í Borgarnesi og á Þver-
felli. Sjóðurinn er í vörslu Arion
banka Borgarnesi, reikningur
númer 0354-13-200686, kenni-
tala 141251-3259, netfang tver-
fell@vesturland.is.
„Við viljum þakka þeim fjöl-
mörgu sem sýnt hafa sjóðnum
velvild og hlýhug á síðusu árum
með kaupum á minningakort-
um, áheitum og gjöfum,“ segir
í tilkynningu frá aðstandendum
Minningasjóðs Björns Rúnars-
sonar.
mm
Úthlutað úr Minningasjóði
Björns Rúnarssonar
S Ý N
Pottaskell
S T Y R K TA R F É L A G L A M A Ð R A O G F AT L A Ð R A
Í Þ Á G U FAT L A Ð R A B A R N A O G U N G M E N N A
Sölutímabil 2. – 16. desember
C