Skessuhorn - 07.12.2016, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 201616
Jólatónleikar eru að margra mati
ómissandi þáttur um aðventuna.
Söngkonan Margrét Eir hefur um
árabil verið ein þeirra sem hefur
hlýjað landsmönnum um hjarta-
ræturnar á aðventunni með fal-
legum söng sínum, meðal ann-
ars með þátttöku í Frostrósum
um árabil. Sunnudaginn 18. des-
ember næstkomandi mun Margrét
Eir halda jólatónleika í Reykholts-
kirkju í fyrsta sinn. Tónleikarnir
verða þeir fjórðu og síðustu í röð-
inni fyrir þessi jólin en áður mun
hún koma fram í Guðríðarkirkju
14. desember, á Hólmavík 16. des-
ember og á Sauðárkróki 17. des-
ember. Tónleikana heldur hún í
samstarfi við bræðurna Börk Hrafn
og Daða Birgissyni og Viðar Guð-
mundsson og Rögnvald Valbergs-
son organista og kórstjórnanda. Þá
munu kirkjukórar á hverjum stað
verða sérstakir gestir á tónleikun-
um, ásamt öðrum góðum gestum.
Desember tileinkaður
fjölskyldu og vinum
Jólatónleikar Margrétar verða lág-
stemmdir og hátíðlegir. Sjálf seg-
ist hún vera popp- og dægurlaga-
söngkona og sannarlega verði ein-
hver svoleiðis lög á dagskránni
líka. „Til dæmis jólalög með írsk-
um, þjóðlegum brag. Tvö lög
með nýjum jólatexta, sem ég hef
aldrei sungið áður. Svo voru Frost-
rósir partur af mínum jólum í
fimmtán ár og því syng ég eitthvað
úr því prógrammi líka,“ segir Mar-
grét Eir í samtali við Skessuhorn.
Hún segir jólin alltaf vera hátíð-
leg og hefur sjálf gaman af jóla-
mánuðinum. Hún segir allan des-
embermánuð vera tileinkaðan fjöl-
skyldu og vinum. „Það er gaman
að gera eitthvað saman um jólin
og nýta aðventuna, að nýta þenn-
an tíma og það má ekki flýta sér.
Ég nenni ekki að flýta mér í des-
ember. Jólin eru mikilvægur tími
til að njóta lífsins og hugsa um það
sem okkur er mikilvægast. Mað-
ur verður meir, hugsar inn á við
og fyrir suma eru jólin erfiður og
einmanalegur tími. Svo bætist við
skammdegið og núna er snjóleysi,
þá er um að gera að sækja í hluti
sem létta tilveruna. Þessi tími og
stemningin í kringum hann er frá-
bært tilefni til að eiga gæðastund-
ir með fjölskyldu og vinum,“ segir
hún. Hún segir ávallt vera gaman
að koma fram í kringum jólahátíð-
ina. „Söngmenning á Íslandi er svo
gríðarlega sterk. Það er engin til-
viljun að hér séu allir þessir kór-
ar og mikið af jólatónleikum um
allt land. Að syngja í kór er sterkt í
okkur og það er alveg frábært.“
Var í sveit í Flókadal
Þetta er í annað skipti sem Mar-
grét Eir heldur jólatónleika sjálf
en í fyrsta sinn sem hún gerir það
á landsbyggðinni. Hún segir hug-
myndina hafa vaknað eftir að hún
söng við brúðkaup í Reykholti í
sumar. „Þar var ég að vinna með
Viðari Guðmundssyni organista í
Reykholti og á Hólmavík. Við vor-
um að spjalla og talið barst að jóla-
tónleikum og söngkennslu. Við
ákváðum á endanum að gera eitt-
hvað saman, með kórunum,“ seg-
ir hún. Staðurinn er henni einnig
kær en sjálf var hún í sveit hjá Rósu
Guðmundsdóttur í Geirshlíð í
mörg sumur sem barn og ungling-
ur. „Svo er Reykholtskirkja æðis-
leg og gaman að syngja þar. Það
er svakalega fallegur hljómburð-
ur þarna inni,“ segir hún. Einnig
kemur hún reglulega á Sauðárkrók
enda býr tengdafjölskylda hennar
þar. „Ég er mikill gestur á Krókn-
um. Þar hef ég líka unnið með
Rögnvaldi organista í kirkjunni og
það er hrikalega skemmtilegt að
gera tónlist með honum.“
Nýtt jólalag
Nú á dögunum kom út nýtt jólalag
í flutningi Margrétar Eirar, Daða
og Barkar. Lagið heitir Ljós í ljóra,
textinn er eftir Jökul Jörgensen en
lagið er gamalt söngleikjalag eftir
Randy Newman. Margrét Eir seg-
ir lagið vera rólegt og lágstemmt.
„Þetta er frekar hátíðlegt lag,
ekki mjög popplegt. Það minnir á
gömlu jólin, fjallar um börnin og
spenninginn í aðdraganda jólanna.
Þessa dulúð sem var á bakvið jólin
áður fyrr. Þetta var svolítið hættu-
legur tími þá, rökkrið og gömlu
jólasveinarnir okkar voru ekkert
góðir gæjar,“ útskýrir hún. Auk
áðurnefndra tónleika sem hún mun
halda í desember mun Margrét Eir
einnig koma fram sem gestasöng-
kona á jólatónleikum á Akranesi 9.
desember nk. Þar er um að ræða
styrktartónleika sem ungu söng-
konurnar Rakel Rún og María Dís
munu halda til styrktar Barnaspít-
ala Hringsins í Akraneskirkju. Þar
mun hún syngja nokkur lög.
grþ
Margrét Eir heldur hátíðlega jólatónleika í Reykholti
Rúna Ösp Unnsteinsdóttir, tví-
tug kona frá Grundarfirði, hefur
verið ráðin til að tala inn á teikni-
myndir um sögupersónuna Punky.
Teiknimyndirnar um Punky fjalla
um litla stúlku sem er með Downs
heilkennið og hvernig hún tekst á
við lífið og tilveruna. Teiknimynd-
irnar eru fræðandi og kenna börn-
um um hversu frábært það er að
enginn er eins. Rúna Ösp er með
Downs heilkennið en það var ósk
framleiðanda teiknimyndanna að
sá eða sú sem les fyrir Punky væri
þeim eiginleikum gæddur. „Það
voru margar stúlkur sem komu í
prufu og allar stóðu sig mjög vel
en Rúna Ösp hentaði best í hlut-
verkið,“ sagði Rósa Guðný Þórs-
dóttir leikstjóri talsetningarinn-
ar í samtali við Skessuhorn. Það
er enska sjónvarpsstöðin Hopster
TV sem framleiðir þættina sem
verða fimmtán talsins í þessari
seríu. Þættirnir verða aðgengileg-
ir í gegnum sjónvarpsveitu Voda-
fone hér á Íslandi. Hopster TV
sýnir mikið af efni fyrir börn með
sérþarfir ásamt því að vera með
hin ýmsu smáforrit fyrir síma og
spjaldtölvur með þroskandi leikj-
um sem tengjast efninu sem þeir
sýna. Áætlað er að sýningar hefjist
í byrjun næsta árs.
„Þetta er ótrúlega skemmtilegt,“
segir Rúna Ösp þegar fréttaritari
náði tali af henni. „Það var Þor-
kell Máni Þorkelsson sem benti
leikstjóranum á mig,“ bætir hún
við en Þorkell Máni er einnig frá
Grundarfirði og vinnur sem hljóð-
maður í Stúdíó Sýrlandi þar sem
talsetningin fer fram. Eftir það fór
Rúna Ösp í prufur fyrir þættina
og gengu þær ljómandi vel. „Rósa
Guðný leikstjóri hringdi í mig
daginn eftir og óskaði mér til ham-
ingju,“ segir Rúna en þá hafði hún
orðið hlutskörpust í prufunum og
fengið þetta veigamikla hlutverk.
„Ég verð í aðalhlutverki,“ bætir
Rúna við og segir að leikstjórinn
hafi verið mjög ánægður eins og
gefur að skilja. „Fyrst fannst þeim
ég tala aðeins of fullorðinslega en
þá breytti ég röddinni og notaði
sömu rödd og ég nota á litlu syst-
kyni mín,“ bætir hún við og það
sló í gegn hjá leikstjóranum.
Rúna Ösp er einnig að setja upp
leikrit í Stykkishólmi undir stjórn
Gunnsteins Sigurðssonar hjá Fé-
lags- og skólaþjónustu Snæfell-
inga. „Já, leikritið heitir Sönn
Ást og verður sýnt í íþróttahús-
inu í Stykkishólmi fljótlega,“ seg-
ir Rúna en hún er með ansi mörg
járn í eldinum. Hún vinnur tvo
daga í viku hjá G. Run hf. ásamt
því að æfa fyrir leikrit og talsetja
teiknimyndir. Þá er hún liðtæk við
heimilisstörf ásamt því að stunda
líkamsrækt. „Systa vinkona mín
hjálpar mér mjög mikið. Hún
keyrir mig í upptökurnar í Reykja-
vík. Hún er besta vinkona mín og
gerir allt fyrir mig,“ segir Rúna er
hún talar um Helgu Ingibjörgu
Reynisdóttur sem í daglegu tali er
kölluð Systa.
Rúna Ösp útskrifaðist sem stúd-
ent frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum síðastliðið vor en áður
hafði hún verið í Hússtjórnarskól-
anum á Hallormsstað þar sem hún
lagði stund á fatahönnun ásamt
fleiru. „Ég saumaði útskriftarkjól-
inn minn sjálf á Egilsstöðum og
hélt líka sýningu á hönnunarvör-
um sem ég hafði hannað,“ bætir
hún við en hún sýndi hönnunina
hjá Arfleifð á Djúpavík. „Hönnun-
in heitir Dr. Downs,“ segir Rúna
og brosir. Hún er greinilega mjög
fjölhæf hún Rúna Ösp Unnsteins-
dóttir.
Það verður því forvitnilegt að
fylgjast með þessum fimmtán þátt-
um af ævintýrum Punky en svo er
aldrei að vita nema þættirnir verði
fleiri en það er allt opið.
tfk
Rúna Ösp talsetur fyrir sögupersónuna Punky
Rúna Ösp Unnsteinsdóttir.
Teiknimyndirnar um Punky fjalla um litla stúlku sem er með Downs heilkennið.