Skessuhorn - 07.12.2016, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 17
Nýttu nafnið þitt til að skrifa undir bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi.
Vertu með í bréfamaraþoni Amnesty International í og í
Vegna aukinna verkefna
leitum við að starfsfólki í
þvottahús/ræstingar
Upplýsingar gefur Hafdís í síma 899-4964
og á netfangi hafdis@snokur.com
ATVINNA
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
„Við erum komin með öll leyfi og
opnuðum formlega fyrir bókanir
á mánudaginn var,“ segir Berglind
Vésteinsdóttir á Sauðafelli í Dölum
í samtali við Skessuhorn fyrir helgi.
Á Sauðafelli hefur hún ásamt eig-
inmanni sínum, Finnboga Harð-
arsyni, opnað gistiheimilið Sauða-
fell Guesthouse í gamla íbúðarhús-
inu. Húsið sem um ræðir var byggt
árið 1897 og er útlit þess friðað.
Berglind og Finnbogi greindu frá
því í viðtali við Skessuhorn í haust
að þau hafi ákveðið að fara þá leið
að innrétta húsið í gömlum stíl og
bera merki þess innanstokksmunir
allir; sófar, borð, ljós og hvaðeina.
Ljær það húsinu gamalt yfirbragð
og í hverju herbergi má sjá leiftur
frá liðinni tíð.
Á gistiheimilinu eru fimm her-
bergi með uppábúnum rúmum og
gistirými fyrir allt að tólf manns
hverju sinni og er morgunverður
innifalinn. „Það mun reyndar eitt
herbergi til viðbótar bætast við fyr-
ir vorið. Síðan eigum við eftir að
fínisera smávegis, bara smávægileg-
ur frágangur á nokkrum stöðum.
Þegar því er lokið verður haft sam-
band við ferðaskrifstofur og þeim
boðið í heimsókn,“ segir Berglind
og kveðst sjá fram á spennandi tíma
í ferðaþjónustunni. „Þetta leggst
voða vel í okkur, spennandi tímar
framundan og við hlökkum til að
taka á móti gestum. Rúmin eru
uppábúin og allir velkomnir, ís-
lenskir sem erlendir,“ segir Berg-
lind að lokum.
Áhugasömum er bent á að hægt
er að bóka gistingu á Sauðafell Gu-
esthouse á booking.com, fylgjast
með á Facebook-síðu gistihússins
og ef einhverjar spurningar vakna
hvetur Berglind fólk til að hafa
samband á saudafell@saudafell.is.
kgk
Gistiheimilið á Sauðafelli
hefur verið opnað
Gistiheimilið Sauðafell Guesthouse er til húsa í gamla íbúðarhúsinu á Sauðafelli.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is