Skessuhorn - 07.12.2016, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 201618
Á annað hundrað gestir og velunn-
arar Ungmennafélagsins Skalla-
gríms mættu á afmælisfagnað í
Hjálmakletti í Borgarnesi á laugar-
daginn. Þar var minnst með form-
legum hætti afmæli félagsins sem
stofnað var réttum hundrað árum
áður í Borgarnesi.
Sigríður Bjarnadóttir formaður
Skallagríms bauð gesti velkomna en
síðan hófst dagskrá sem þau Eygló
Lind Egilsdóttir og Páll S. Brynj-
arsson stýrðu. Theódór Þórðar-
son fór yfir sögu Skallagríms og
rifjaði upp ýmislegt áhugavert, en
Theodór hafði einnig tekið saman
myndasyrpu sem sýnd var á breið-
tjaldi á sviðinu. Geirlaug Jóhanns-
dóttir formaður byggðarráðs Borg-
arbyggðar flutti félaginu árnaðar-
óskir frá sveitarfélaginu og færði
því afmælisgjöf. Þá ávarpaði Auður
Inga Þorsteinsdóttir framkvæmda-
stjóri UMFÍ samkomuna sem og
Pálmi Blængsson framkvæmda-
stjóri UMSB. Þeir Gísli Gíslason
og Jakob Skúlason stjórnarmenn
hjá KSÍ stigu á stokk og heiðruðu
sjö einstaklinga fyrir góð störf í
þágu knattspyrnunnar í Borgarnesi.
Þetta voru þau Guðjón Karlsson,
Sigurgeir Erlendsson, Þorsteinn
Benjamínsson, Sigríður Leifsdóttir,
Þórður Bachmann, Hilmar Hákon-
arson og Valdimar K. Sigurðsson.
Viðurkenningar og
þakkir
Í tilefni þessara tímamóta höfðu
allar deildir Skallagríms ákveðið að
heiðra einstaklinga fyrir ómetan-
legt framlag til íþróttastarfs í Borg-
arnesi. Þeir aðilar sem fengu
heiðursskjöl voru:
Körfuknattleiksdeild: Bjarni
Steinarsson, Sólrún Rafnsdóttir og
Ólafur Helgason.
Knattspyrnudeild: Jakob Skúla-
son og Kristmar Ólafsson.
Sunddeild: Ingimundur Ingi-
mundarson.
Badmintondeild: Afkomendur Al-
berts Þorkelssonar í minningu Al-
berts, Geir Sævar Geirsson og
Guðríður Ebba Pálsdóttir.
Leikdeild: Oddný Þorkelsdóttir
og Eygló Egilsdóttir.
Aðalstjórn Skallagríms: Indriði
Jósafatsson.
Í lok dagskrár skrúfaði leiks-
deild Skallagríms upp fjörið ásamt
hljómsveit og flutti nokkur lög úr
leiksýningum sem settar hafa ver-
ið upp í áranna rás, en öll þessi lög
voru úr afmælissýningu leikdeild-
ar sem verið hefur á fjölunum í
Lyngbrekku undanfarnar vikur. Þá
gæddu gestir sér á gómsætri afmæl-
istertu frá Geirabakaríi á meðan á
dagskrá stóð.
Dagskrá afmælisins hélt svo
áfram þegar fram fór heimaleikur í
Dominosdeild kvenna í körfubolta.
Fyrir leik fengu þeir Indriði Jós-
afatsson og Bjarni Steinarsson gull-
merki KKÍ og Bjarki Þorsteinsson
silfurmerki KKÍ. Um kvöldið bauð
síðan leikdeild Umf Skallagríms
til afmælishátíðarsýningar í Lyng-
brekku.
mm/ Ljósm. Guðrún Jónsdóttir og
fleiri.
Haldið upp á hundrað ára afmæli Ungmennafélagsins Skallagríms
Þessir aðilar tóku við viðkenningum frá deildum Skallagríms; Trausti Jónsson fyrir hönd móður sinnar Oddnýjar Þorkels-
dóttur, Eygló Egilsdóttir, Geir Sævar Geirsson, Ingimundur Ingimundarson, Annabella Albertsdóttir, Sigurgeir Erlendsson,
Emelía Ýr og Embla Björg Gísladætur fyrir hönd afkomenda Alberts Þorkelssonar, Kristmar Ólafsson, Indriði Jósafatsson,
Kristinn Óskar Sigmundsson fyrir hönd þeirra Bjarna Steinarssonar og Ólafs Helgasonar og Sólrún Rafnsdóttir.
Allar deildir Skallagríms afhentu Indriða Jósafatssyni viðurkenningu fyrir hans
góða framlag til íþrótta- og æskulýðsstarfs í Borgarnesi. Hér er hann ásamt Sigríði
Bjarnadóttur.
Yngstu iðkendur Skallagríms í körfunni stilltu sér upp fyrir leik Skallagríms og
Keflavíkur og mynduðu töluna 100 í tilefni dagsins.
Annabella Albertsdóttir, Geir Sævar Geirsson og Guðríður Ebba Pálsdóttir fengu
viðurkenningar frá badmintondeild Skallagríms fyrir frábær störf.
Stjórn KKÍ sæmdi Björn Bjarka Þorsteinsson, formann körfuknatttleiksdeildar
Skallagríms, silfurmerki KKÍ. Þeir Indriði Jósafatsson og Bjarni Steinarsson voru
sæmdir gullmerki sambandsins fyrir þeirra öfluga og mikla starf fyrir körfubolt-
ann. Hér eru þeir ásamt Hannesi Jónssyni formanni KKÍ.
Sigríður Bjarnadóttir formaður badmintondeildar Skallagríms með Önnubellu
Albertsdóttur, Sigurgeiri Erlendssyni og barnabarni þeirra en þau tóku við
viðurkenningu til afkomenda Alberts „Berta bakara“ Þorkelssonar.
Trausti Jónsson tekur við viðurkenningu frá Leikdeild Skalla-
gríms fyrir hönd móður sinnar Oddnýjar Þorkelsdóttur.
Fyrir leik Skallagríms og Keflavíkur mætti Hannes Jónsson
formaður KKÍ og afhenti viðurkenningar. Sólrún Anna Rafns-
dóttir, sem fékk fyrir nokkru afhent gullmerki KKÍ, er hér að
fá merkið nælt í sig að nýju.
Silli Ara og Gunna Fjeldsted búin að gæða sér á afmælis-
tertunni frá Geirabakaríi.
Kristmar Ólafsson og Jakob Skúlason voru heiðraðir af
knattspyrnudeild Skallagríms fyrir afar góð störf.