Skessuhorn - 07.12.2016, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 201620
Í síðustu viku sýndi leiklistarval
Grundaskóla á Akranesi leikverk-
ið Dýrin í Hálsaskógi. Sýning-
arnar voru nokkrar talsins og var
sýnt fyrir fullu húsi nemenda, elstu
barna á leikskóla og foreldra nem-
enda í leiklistarvali. Sýningin var
hin glæsilegasta og lögðu krakk-
arnir mikinn metnað í hana. Leik-
myndin var smíðuð af nemendum
skólans og ljóst að allir lögðu hart
að sér sem komu að sýningunni. Að
vanda voru það þeir Gunnar Sturla
Hervarsson og Einar Viðarsson
sem fóru með leikstjórn.
grþ/Ljósm. Grundaskóli
Dýrin í Hálsaskógi
sýnd í Grundaskóla
Sýning krakkanna var hin glæsilegasta og vakti mikla lukku.
Hérastubbur bakari og bakaradrengurinn í Hálsaskógi.
Hér er Mikki refur sofnaður við söng Lilla klifurmúsar.
Lokahóf útskriftarnema við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi var haldið síðastliðinn fimmtu-
dag. Af því tilefni mættu útskriftar-
nemar í skólann klæddir sem tölvu-
leikjapersónurnar Super Mario og
félagi hans Luigi og hófu þeir dag-
inn á því að bjóða starfsfólki skólans
í morgunmat. Á meðan aðrir nem-
endur skólans sátu í fyrstu kennslu-
stund dagsins hituðu útskriftarnem-
arnir upp fyrir skemmtun á sal sem
stóð milli klukkan 9:30 og 10. Eft-
ir snemmbúinn hádegisverð héldu
nemendur í óvissuferð og lauk gleð-
skapnum um kvöldið þegar jóla-
ball nemendafélagsins var haldið á
Gamla Kaupfélaginu þar sem DJ
Ívar Eyþórs sá um að skemmta nem-
endum. grþ/Ljósm. FVA.
Dimission á
Akranesi
Brugðið á leik uppi á sviði á
sal skólans.
Líkt og hefð er
fyrir var morgun-
verðurinn snæddur
í skólanum ásamt
kennurum.
Grænklæddir „Luigi“ nemar
ásamt rauðklæddum Super
Mario nemendum.
Þessar stúlkur tóku sig vel út sem píparinn Super Mario.
Við sögðum frá því í síðasta Skessu-
horni að í liðinni viku var unnið við
þökulagningu í Snæfellsbæ. Haust-
ið hefur víðar verið milt, en með-
fylgjandi mynd er tekin í Búðardal
um liðna helgi. Eins og sjá má er
grasið töluvert kraftmikið og fal-
lega grænt þótt kominn sé desemb-
er.
mm/ Ljósm. sm.
Allt er
iðagrænt á
aðventu
Út er komin ljóðabókin „Sonnettur
síkvikra daga“ eftir Bjartmar Hann-
esson bónda á Norður-Reykjum í
Borgarfirði. Bjartmar hefur í gegn-
um tíðina samið og flutt gamanvís-
ur við hin ýmsu tækifæri og gefið
út geisladiskana Sögur úr sveitinni
og Fleiri sögur úr sveitinni. Þá hef-
ur hann samið tvær revíur sem sett-
ar hafa verið upp af leikdeild Umf.
Reykdæla í Logalandi.
Sonnettur síkvikra daga er fyrsta
ljóðabók höfundar og hefur að
geyma 31 ljóð í sonnettu-formi.
Farið er um víðan völl í efnistök-
um, m.a. staldrað við í smókpásu
með Fidel Castro og Che Guevara,
ástin fundin á Mímisbar í Bænda-
höllinni, Lúkas fundinn í Hlíðar-
fjalli og Livingstone fundinn í Belg-
ísku Kongó. Einnig skjóta upp koll-
inum jöfrar úr tónlistarheiminum,
svo sem, Elvis Prestley, Dúmbó af
Akranesi, Doctor Hook og Steini
Spil.
Bókin er um 40 síður og er
prentuð hjá Fjölritunar- og útgáfu-
þjónustunni í Borgarnesi. Höfund-
ur gefur sjálfur bókina út og þeir
sem vilja eignast hana geta sent
póst á netfangið: nordurreykir@
emax.is eða hringt í síma 435-1219,
847-1219 eða 867-1991. Auk þess
verður bókin seld í búrekstrardeild
Kaupfélags Borgfirðinga í Borgar-
nesi.
mm
Bjartmar gefur út Sonnettur síkvikra daga
Bjartmar heldur hér á eintaki af bókinni. Á bakvið hann er málverk af afa hans,
Þorsteini Einarssyni í Giljahlíð. Bjartmar segir afa sinn hafa alið sig upp að hluta
og gamli maðurinn hafi verið örlagavaldur í að hann fór að rækta skáldagenin.