Skessuhorn - 07.12.2016, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 21
Heilsunudd
Nuddmeðferðir og heilun
Tímapantanir í síma 861-2004
Reynir Katrínarson
Heilsunuddari
Bíldshöfða 12 - 110 Rvík. - 5771515 - www.skorri.is
Tilvalin jólagjöf
12v 5,5A12v 0,8A
15%
Jólaafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
Nú er í gangi fjársöfnun til stuðn-
ings ungri konu sem á ættir sínar
að rekja í Borgarnes og Dali. Hún
heitir Ástríður Ólafsdóttir, kölluð
Ásta. Foreldrar hennar eru Ólafur
Ingi Ólafsson og Erla Sveinbjörg
Hauksdóttir. Ásta þjáist af afar
sjaldgæfu sjálfsofnæmi og við því
hefur ekki fundist lækning. Ásta
hefur frá því í ágúst síðastliðnum
búið hjá móður sinni í Danmörku
þar sem hún getur ekki búið ein,
getur ekki sótt vinnu og gat ekki
stundað doktorsnám sitt í lífeinda-
fræði sem hún hóf í Sviss sumarið
2015. Lyfjakostnaður vegna sjúk-
dóms hennar er afar mikill og því
hafa vinir og ættingjar Ástu hafið
þessa söfnun.
Sjaldgæfur og alvar-
legur sjúkdómur
Veikindi Ástu voru fyrst greind af
íslenskum læknum sem flogaveiki
en skömmu eftir að hún hóf dokt-
orsnám sitt í Sviss greindist hún
með sjaldgæfa tegund af sjálfs-
ofnæmi sem kallast autoimm-
une limbic encephalitis. Ofnæmi
þetta ræðst á heilann. Veikindi
Ástu hófust eins og fyrr segir árið
2013. Þá byrjaði hún að fá óþægi-
leg köst sem læknar greindu sem
kvíðaköst, leiða eða þunglyndi.
Ári síðar fékk hún nokkur floga-
köst. Greindu læknar hér á landi
hana með flogaveiki eftir að breyt-
ingar, sem sagðar voru algengar
hjá fólki með flogaveiki, greind-
ust í heila hennar. Við því fékk
hún flogaveikislyf sem slóu örlít-
ið á einkennin en áfram fékk hún
kvíðaköst. Ásta lýsir baráttunni við
sjúkdóminn í opinskáum færslum
á Facebook-síðu sinni. Þar seg-
ir hún m.a. að eftir að sjúkdóm-
ur hennar var greindur sem floga-
veiki hafi hún glímt við ýmsa erf-
iðleika og ákveðið að halda áfram
námi til þess að koma sér á rétt-
an kjöl á nýjan leik. Í ágúst á síð-
asta ári fór hún til því náms í Bern
í Sviss og ætlaði að reyna að ljúka
stóra draumnum sínum, doktors-
námi í lífeindafræði. Til öryggis
ákvað hún að fara strax til lækna
í Bern. Þeir sendu hana í frekari
rannsóknir og eftir að doktors-
námið sóttist fremur hægt var hún
lögð inn á sjúkrahús í Bern. Eftir
jólafríið í fyrra sneri Ásta aftur til
Bern þar sem sjúkdómsgreiningin
lá fyrir. „Ég var greind með sjald-
gæfa tegund af erfiðum sjúkdómi,
sem kallast „autoimmune limbic
encephalitis,“ skrifaði Ásta. Þessi
sjúkdómur veldur bólgu í heila og
er bæði alvarlegur og sjaldgæfur.
Var því ljóst að læknar hér á Ís-
landi höfðu ekki greint hana rétt
þegar hún leitaði fyrst til þeirra
árið 2013.
Þessi tegund af sjálfsofnæmi
lýsir sér þannig að ónæmiskerfið
heldur að heilinn sé vondur, ræðst
á hann líkt líkt og hann væri bakt-
ería, og reynir að eyðileggja hann.
Bólgan sem myndast vegna þess-
arar árásar, þrýstir á staði í heilan-
um sem sjá um að viðhalda eðli-
legu minni, hæfni til að læra og
skilja hluti ásamt fleiri fylgifisk-
um. Taugaboðin sem fara úrskeið-
is valda svokölluðum hluta-flog-
um, sem upphaflega voru greind
sem kvíðaköst. Nýverið var hún
greind með alvarlega áfallastreit-
uröskun sem gerir henni lífið enn
erfiðara og í þessari viku á hún að
hitta enn nýja lækna á sjúkrahúsi
í Kaupmannahöfn sem ætla að
skoða það hvort hægt sé að lækna
þennan sjúkdóm með heilaskurð-
aðgerð. En hingað til hefur Ásta
verið á fjölmörgum lyfjum sem
hafa lítið hjálpað og eins og einn
læknir sagði við hana; „að einn
skammtur sem hún væri að taka
gæti drepið heilan fíl.“
Upplýsingar um
söfnunarreikning
Ásta hefur ekki rétt á fjárhagsleg-
um stuðningi frá danska ríkinu
og er því tekjulaus. Lyfjakostn-
aður, lestarferðir fram og til baka
til sérfræðinga í Odense og Kaup-
mannahöfn, kostnaður vegna sál-
fræðings og fleira er mikill og svo
er hún auk þess með námslán sem
þarf að borga af. Því hefur verið
sett af stað söfnun til svo hægt sé
að létta líf Ástu og er reiknings-
númerið: 0167-15-380380 - KT.
040288-2289.
Dagatöl til styrktar
Ástu
Ásta á stóran frændgarð á Vestur-
landi. Ein af frænkum hennar er
Kristín Jónsdóttir ljósmyndari á
Hálsum í Skorradal. Kristín gefur
út dagatal og mun allur ágóðinn
af sölu þess fara til styrktar Ástu
í veikindum hennar. Dagatalið er
nú komið út. „Í ár verður það með
smá breyttu sniði,“ segir Kristín.
„Myndir úr verkefninu „Eyðibýlí í
Skorradal allt árið“ urðu fyrir val-
inu og munu prýða það þetta árið.
Dagatalið er hannað og unnið af
mér og tók ég allar myndirnar
líka. Það er laust við allar „auglýs-
ingar“ þar sem ekki er um að ræða
neina styrki til framleiðslu þess.
Myndirnar fá að njóta sín þannig
að hægt er að klippa þær út. Fólk
getur þannig náð í sínar uppá-
haldsmyndir og rammað inn eða
búið til eitthvað skemmtilegt úr
þeim,“ segir Kristín. Dagatalið er
selt á 3.500 krónur og hægt er að
fá sent í pósti (þá bætast 300 krón-
ur við). Einnig er hægt að sækja
dagatöl í verslun Nordic Store í
Borgarnesi, en þar þarf að greiða
með peningum,“ segir Kristín.
mm
Söfnun hafin fyrir unga konu
ættaða af Vesturlandi
Ástríður Ólafsdóttir árið 2009. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
Ágóði af sölu dagatals Kristínar rennur óskiptur til stuðnings Ástu frænku hennar.
Bílstjóri óskast
Akranes – Reykjavík - Akranes
Hópbílar óska e�ir bílstjóra
í fullt starf �l að sinna akstri
landsbyggðarstrætó á milli
Akraness og Reykjavíkur
- 100% fram�ðarstarf
- Vaktavinna 2-2-3
- Morgunvak�r og kvöldvak�r
Hæfniskröfur:
- D ré�ndi (rútupróf) - Rík þjónustulund
- Íslenskukunná�a - Góð mannleg samskip�
- Hreint sakavo�orð
Nánari upplýsingar og mó�öku umsókna veita:
Ágúst Haraldsson, gus�@hopbilar.is , s. 822-0073
Hildur Guðjónsdó�r, hildur@hopbilar.is, 822-0069
www.hopbilar.is - Melabraut 18 - Hafnarfirði
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is