Skessuhorn - 07.12.2016, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 23
Hjónin Þórhallur Bjarnason og
Erla Gunnlaugsdóttir á Laugalandi
í Borgarfirði voru valin ræktendur
ársins af Sölufélagi garðyrkjumanna
síðastliðinn föstudag. Þórhallur og
Erla sérhæfa sig í agúrkurækt og er
ársframleiðslan í kringum 350 tonn.
Gunnlaugur Karlsson framkvæmda-
stjóri Sölufélags garðyrkjumanna
segir ástæðuna fyrir valinu hafa ver-
ið að á Laugalandi hafi verið frábær-
ir ræktendur alla tíð og nú hafi ábú-
endur komið inn með nýjung inn
í gúrkuræktina. „Við fórum í til-
raunaverkefni með þeim að rækta
smágúrkur sem tókst mjög vel. Þau
tóku það alla leið, vönduðu sig mik-
ið og náðu miklum árangri,“ segir
Gunnlaugur. Hann segir smágúrk-
urnar vera litlar og bragðgóðar og
að þeim hafi verið vel tekið á neyt-
endamarkaði. Þá segir hann gúrk-
una hafa verið valda á keppnisdisk-
inn hjá íslenska kokkalandsliðinu
þegar liðið tók þátt í heimsmeist-
arakeppni fyrr á árinu. „Þetta hangir
allt saman. Á Laugalandi eru vand-
aðir ræktendur með gæðavöru, þau
hafa komið með nýjung sem heppn-
aðist það vel að það er góð sala og
meistarakokkarnir tóku vöruna upp
á sína arma.“
Fjórði ættliður
heimafólks
Jarðhiti er á Laugalandi og nota
hjónin eigin vatnsveitu til að hita
gróðurhúsin upp með vatni frá
hvernum. Gróðurhúsin á Lauga-
landi þekja um 3.600 fermetra og
eru þau raflýst og gúrkurnar rækt-
aðar allt árið um kring. Sama fjöl-
skyldan hefur stundað garðyrkju á
Laugalandi frá árinu 1942 og komu
Þórhallur og Erla fyrst inn í rekst-
urinn fyrir þrjátíu árum þegar þau
keyptu hlut afa Þórhalls. Þá tóku
þau alveg við ræktuninni 2001 þegar
þau keyptu af foreldrum hans, þeim
Bjarna Helgasyni og Leu Þórhalls-
dóttur. Í dag starfar Hjalti sonur
hjónanna með þeim við ræktunina.
Fimm til sex ársstörf eru í kring-
um ræktunina á Laugalandi en þar
er áherslan lögð á að stunda ábyrga
ræktun og að gera hlutina vel. Líf-
rænar varnir eru notaðar á gúrkurn-
ar í stað eiturefna og eru þær tínd-
ar á hverjum degi, pakkað og kom-
ið beint í hendur neytenda til að
tryggja ferskleikann.
Missti af
kvöldfréttunum
„Við höfum ræktað hefðbundn-
ar, venjulegar agúrkur í hátt í þrjá-
tíu ár og eingöngu verið með þær,“
segir Erla í samtali við Skessuhorn.
Hún segir að í kringum 1990 hafi
ákvörðun verið tekin um að hætta
allri annarri ræktun á Laugalandi en
áður voru einnig ræktaðir þar tóm-
atar og paprikur. „Svo ákváðum við
að fara út í þetta og höfum haldið
okkur við það. Við einbeitum okk-
ur að þessu, erum sérhæfð í gúrkum
og teljum okkur kunna þetta fag vel
fyrir vikið,“ segir hún. Það var svo í
sumar sem smágúrkuræktunin hófst
á Laugalandi. Enginn annar rækt-
andi á landinu ræktar smágúrkurn-
ar, sem eru sér afbrigði sem gefur
af sér minni gúrkur en hinar hefð-
bundnu. Líkja má muninum á smá-
gúrkum og þeim hefðbundnu við
muninn á hefðbundnum tómötum
og öðrum minni tómatategundum,
svo sem kirsuberjatómötum. Um er
að ræða sérvöru þar sem ræktend-
ur eru að sækjast eftir fjölbreytni og
bragðgæðum. Erla segir viðurkenn-
inguna frá Sölufélagi garðyrkju-
manna mikið til komna vegna smá-
gúrkuræktunarinnar. „Þetta er að
gera góða hluti. Við fórum hægt af
stað og höfðum vaðið fyrir neðan
okkur hvað það snertir. Til að byrja
með þurftum við að uppskera smá-
gúrkurnar þrisvar á dag, á morgn-
ana, um miðjan dag og á kvöldin.
Við vorum svolítið mikið að gera
þetta sjálf, enda vissum við ekkert
hvernig þessu yrði tekið og vorum
ekkert að ráða mannskap fyrr en við
vissum hverjar viðtökurnar yrðu.
Það var nú svolítið gert grín að því
að Þórhallur væri að missa af kvöld-
fréttunum út af þessu, enda er hann
ansi fréttasjúkur,“ segir Erla og hlær
við. Hún segir því töluverða vinnu
hafa fylgt smágúrkuræktuninni í
upphafi. Skera þurfi gúrkurnar í
ákveðinni stærð, því annars breytist
bragðið. „Við skerum tvisvar á dag
núna enda er mun minni birta. Það
er alveg að ganga upp í skammdeg-
inu. Þetta vex svo ört, sérstaklega í
sumar. En núna finnum við mun,
vöxturinn er aðeins hægari.“
Nýr tækjabúnaður
Aðspurð að því hvað sé fram-
undan segir Erla að tíminn verði
að leiða það í ljós hvort þau auki
við ræktunina á smágúrkunum.
„Við vissum í raun ekkert hvern-
ig þessu yrði tekið og gerðum okk-
ur engar væntingar. En þetta hef-
ur gert mikla lukku. Við byrjuðum
smátt en erum með annað hollið
af plöntum núna og erum með að-
eins meira undir en við vorum til
að byrja með. Við smá jukum þetta
og tíminn leiðir svo í ljós hvort við
aukum þetta enn meira, það fer
eftir eftirspurninni.“ Þá segir hún
að um þessar mundir sé verið að
taka nýjan tæknibúnað í notkun á
Laugalandi, sem kemur til með að
endurnýja tuttugu ára tækjabún-
að. Nýi búnaðurinn er tölvustýrð-
ur og með honum er meðal annars
hægt að stjórna og hafa eftirlit með
vökvun, áburðargjöf, gluggaopnun
og hita- og rakastigi í gróðurhús-
unum. „Þetta er mjög fullkominn
búnaður og það er hægt að sitja
heima í stofu og fylgjast með þessu
í tölvunni. Það léttir okkur eitt-
hvað sporin.“ Hún segir tæknina
í kringum gúrkuræktunina hafa
breyst mikið á þeim rúmu þrjá-
tíu árum frá því hún byrjaði. „Það
hefur verið mikil þróun en manns-
höndin þarf samt alltaf að koma að
þessu. Það breytist ekkert,“ segir
hún. Erla segir viðurkenninguna
frá Sölufélagi garðyrkjumanna
hafa komið skemmtilega á óvart.
Hjónin eru að vonum stolt með
árangurinn. „Jú auðvitað erum við
það,“ segir Erla hress að endingu.
grþ
Garðyrkjubændurnir á Laugalandi eru ræktendur ársins
Hjónin Erla Gunnlaugsdóttir og Þórhallur Bjarnason á Laugalandi í Borgarfirði
voru valin ræktendur ársins 2016 af Sölufélagi garðyrkjumanna.
Hjónin fengu viðurkenninguna á haustfundi garðyrkjubænda síðastliðinn
föstudag.
Þórhallur og Erla sérhæfa sig í
agúrkurækt og er ársframleiðslan í
kringum 350 tonn.
Árlega heimsæk-
ir Jón Pétur Úlfljóts-
son danskennari Auð-
arskóla í Dölum og
kennir öllum árgöng-
um grunnskóladeild-
ar dans auk þess sem
tveir elstu árgangar
leikskóladeildarinn-
ar fá danstíma. Það er
hefð fyrir því að ljúka
námskeiðinu með
danssýningu í Dala-
búð og voru þessar
myndir teknar við það
tilefni. sm
Danssýning í Búðardal
Yngstu nemendurnir pössuðu vel upp á sporin. „Súperman“ er alltaf jafn vinsæll.
Allir nemendur taka hér sporið saman. Unglingadeildin sýndi og sannaði að það verður dansað á næstu
Þorrablótum.
Miðstigið var vel samstillt í dansinum.