Skessuhorn - 07.12.2016, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 25
Íslandsmeistarmótið í línuklifri
fór fram í Björkinni í Hafnarfirði
um helgina en keppt var í þrem-
ur aldursflokkum. Klifurfélag ÍA
sendi fjóra klifrara til þátttöku og
er þetta í fyrsta sinn sem ÍA tekur
þátt í slíku móti. Mótið fór þannig
fram að klifrarar fara allir tvær leið-
ir og fjórir efstu í hverjum flokki
fara áfram í úrslitaleið. Í flokki
11-12 ára kepptu Hekla Krist-
leifsdóttir, Gyða Alexandersdótt-
ir og Hjalti Rafn Kristjánsson, öll
11 ára. Öll toppuðu þau fyrstu leið
en leið tvö var öllu stífari og tókst
þeim ekki að ljúka henni. Þar með
luku þau keppni með mikilli prýði
og reynslunni ríkari. Í unglinga-
flokki, 13-15 ára, keppti Brimrún
Eir Óðinsdóttir. Hún klifraði vel
í fyrstu leið og komst næst-hæst
keppenda, en Gabríela Einarsdótt-
ir úr Klifurdeild Bjarkanna var sú
eina sem toppaði fyrri leiðina. Í
annarri leið klifraði Brimrún vel
framan af en tókst ekki að leysa erf-
iðan kafla í leiðinni og datt í miðri
leið. Gabríela fór með örugga for-
ystu inn í síðustu leiðina en annað
sætið var galopið. Brimrún Eir átti
því möguleika á að tryggja sér ann-
að sætið en klaufaleg byrjun í snú-
inni og tæknilega erfiðri leið varð til
þess að hún datt snemma í leiðinni
á meðan Bjarkarstúlkurnar Gabrí-
ela og Hlédís Ýmisdóttir klifruð
hærra. Hvorugar náðu þó að toppa
leiðina en það var nóg til að Gabrí-
ela tryggði sér Íslandsmeistaratitil-
inn örugglega og Hlédís fékk silf-
urverðlaun. Brimrún Eir náði því
flottu þriðja sæti og þar með brons-
verðlaun á sínu fyrsta Íslandsmeist-
armóti. Prýðilegur árangur hjá ÍA
krökkunum á þessu fyrsta móti og
óskum við þeim innilega til ham-
ingju.
þs
Íslandsmeistaramótið í
línuklifri fór fram um helgina
Brimrún Eir Óðinsdóttir er fyrsti verðlaunahafi ÍA á Íslandsmeistaramóti í klifri, en
hún hreppti þriðja sætið í sínum flokki.
Laugardaginn 10. desember verður
jólaleg samverustund í Garðakaffi á
Safnasvæðinu á Akranesi. Þar verða
í boði dýrindis smákökur og annað
gúmelaði, heitt kakó og kaffi. Hægt
verður að föndra jólaföndur, skreyta
piparkökur og skoða gömul jólakort.
Tónlistarfólkið Valgerður og Doddi
sér um að leika jólatónlist fyrir gesti
og bjóða einnig upp á „opinn hljóð-
nema“ frá kl. 14-15. Þá geta gestir
stigið á stokk og sungið jólalög við
„lifandi“ undirleik. Samveran stend-
ur frá kl. 14-17. Verð fyrir 10 ára og
yngri: 800 krónur. Fyrir eldri en 10
ára: 1700 krónur.
Síðasta jólasamvera vakti mikla
lukku svo nú er um að gera að fá
sér bíltúr upp á Akranes og eiga þar
góðan dag með fjölskyldunni.
-fréttatilkynning
Ljósm. Valgerður Jónsdóttir.
Jólasamvera í Garðakaffi
Ingibjörg Huld Halldórsdótt-
ir er borgfirskur listamaður sem
um þessar mundir er með áhuga-
verða sýningu í Gerðubergi. Sýn-
ingin nefnist Skömmin er svo lík
mér. Í sýningarskrá segir að við-
fangsefni sýningarinnar sé skugga-
hlið persónuleikans, faldar tilfinn-
ingar, skömm og tabú. „Hér er
hægt að horfast í augu við óþægi-
legar tilfinningar sem við reynum
að halda niðri í daglegu lífi. Sýn-
ingin er margslungin og tekst á
við viðfangsefnið á marga vegu,
en öll eiga verkin það sameigin-
legt að hafa grímuna sem viðfangs-
efni. Gríman skýlir persónuleik-
anum, er margbreytileg og sýn-
ir líðan þess er hana ber. Skörp
form, óhefðbundnar litasamsetn-
ingar og nákvæmt handverk fanga
athygli áhorfandans og velta upp
ótal spurningum um mig og þig -
og skuggana okkar.“
Myndlistamaðurinn Ingibjörg
Huld Halldórsdóttir er fædd og
uppalin í Borgarfirði. Hún lærði
arkitektúr í Kaupmannahöfn og
Lyon í Frakklandi og hefur unn-
ið sem arkitekt og hönnuður sam-
hliða listsköpun. Hún hefur tekið
þátt í bæði einka- og samsýningum
ytra. Þetta er fyrsta einkasýning
Ingibjargar hér á landi.
Sýningin í Gerðubergi er opin
alla virka daga frá kl. 9 - 18 og um
helgar frá kl. 13 - 16.
-fréttatilkynning
Ingibjörg Huld með
sýningu í Gerðubergi
Ingibjörg Huld með dóttur sína.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kylf-
ingur úr GR skrifaði nýjan kafla
í golfsögu Íslands á sunnudaginn
þegar hún varð önnur á lokaúr-
tökumótinu fyrir LGPA mótaröð-
ina, keppni fremstu atvinnukylf-
inga heims. Ólafía lék lokahringinn
á einum yfir pari, eða 73 höggum,
en Jaye Marie Green frá Bandaríkj-
unum tryggði sér sigur með því að
fá fugl á lokaholunni. Alls komast
20 efstu inn á LPGA mótaröðina
og má gera ráð fyrir að Ólafía fái
tækifæri á fyrsta mótinu sem spil-
að verður á Bahamas í lok janú-
ar á næsta ári. Með árangri sínum
á lokaúrtökumótinu tryggði Ólafía
sér sæti í 12. flokki á LPGA móta-
röðinni. Það þýðir í raun að hún
er í sæti 119-138 á styrkleikalist-
anum. Miklu máli skipti fyrir hana
að vera svona ofarlega á lokaúrtök-
umótinu því þá er hún ávallt fremst
í röðinni í þessum styrkleikaflokki
þegar kemur að því að deila út sæt-
um á þeim mótum sem eru á LPGA
mótaröðinni. Í fyrra fengu 15 kylf-
ingar af þeim 20 sem tryggðu sér
keppnisrétt á LPGA á lokaúrtök-
umótinu tækifæri á fyrsta móti á
tímabilinu 2016. Og á öðru mótinu
fengu rúmlega tíu af nýliðunum
tækfæri.
„Þetta er ótrúleg tilfinning og
ég er enn að átta mig á þessu. Ég
var aldrei stressuð en ég var aðeins
farin að þreytast. Það var erfitt að
halda einbeitingunni, en ég náði að
einbeita mér að einu höggi í einu.
Ég hugsaði sem minnst um golf
þegar ég var komin af vellinum, fór
að versla og horfði á Friends þætti
og eitthvað slíkt. Ég þakka aðstoð-
armanninum mínum í mótinu fyrir
árangurinn, fjölskyldunni, Forskoti,
það eru svo margir sem ég þarf að
nefna. Án þeirra væri ég ekki hérna.
Ég þarf ekki að fara á lokaúrtök-
umótið fyrir Evrópumótaröðina og
ég ætla að út að borða í kvöld og
fagna síðan almennilega þegar ég
kem heim til “ sagði Ólafía í samtali
við golf.is þegar úrslitin lágu fyrir á
sunnudaginn.
mm
Ólafía Þórunn skrifar nýjan kafla
í golfsögu landans
Inside Out ljósmyndasýning Stein-
unnar Matthíasdóttur í Búðar-
dal var opnuð í Mjólkurbúðinni í
Listagilinu á Akureyri laugardag-
inn 26. nóvember og stóð til síð-
astliðins sunnudags. Sýninguna
nefndi hún Respect elderly og er
hún liður í Inside Out Project sem
gert er út frá New York af franska
listamanninum JR í samvinnu við
Ted Prize verðlaunin. Inside Out
gjörningur Steinunnar var fram-
kvæmdur í Búðardal í sumar þar
sem risamyndir af 64 eldri borg-
urum voru límdar á húsveggi við
þjóðveginn og standa enn. Einn-
ig var 14 mynda úrtak sett upp hjá
kirkjutröppum Akureyrarkirkju
sem hluti af listasumri en í annarri
útfærslu en tíðkast hjá Inside Out
Project. Fyrstu helgi aðventu voru
svo allar myndirnar settar upp í
listagelleríinu Mjólkurbúðinni en
með því var sýningin fullkláruð á
Akureyri.
Steina valdi að vinna með eldri
borgara og draga athygli að mál-
efnum þeirra, með virðinguna að
leiðarljósi. Unnið er með gleðina
í verkunum og skilaboð send til
vegfarenda þar sem þeir hafa ver-
ið hvattir til að finna gleðina, taka
sjálfsmyndir með myndunum og
deila með heiminum í gegnum
samfélagsmiðla. „Hvers vegna?
Jú, galdurinn felst í því að draga
enn frekari athygli að eldri borg-
urum með hjálp samfélagsmiðla,
alveg óháð stað og stund. Þannig
hafa skilaboðin verið send út með
hjálp þeirra fjölmörgu sem hafa
tekið þátt í gjörningnum,“ seg-
ir Steina. Myndirnar standa enn
uppi í Búðardal og geta vegfarend-
ur tekið þátt í gjörningnum eitt-
hvað áfram.
mm
Athygli að eldri borgurum
með virðingu að leiðarljósi
Steina Matt framan við tvær af Inside Out Project myndunum hennar í Búðardal.
Ljósm. Björk Gunnarsdóttir.
Ekki er nóg með að nöfn þess-
ara eininga, sem getið eru um í
fyrirsögn, séu keimlík heldur er
umfjöllunarefni þeirra að mörgu
leyti það sama; eða matur. Það
þarf því ekki að koma á óvart að
almenningur rugli þeim sam-
an. Þannig sá Matís ástæðu til
að senda sérstaka fréttatilkynn-
ingu frá sér um nöfn þessara fyr-
irtækja og stofnana í kjölfar mik-
illar umræðu um hlutverk eftir-
litsstofnana með matvælavinnslu
og landbúnaði.
Matvælastofnun (MAST)
sinnir stjórnsýslu, eftirliti, fræðslu og
þjónustu við sjávarútveg, landbún-
að, fyrirtæki og neytendur í þeim til-
gangi að stuðla að heilbrigði og vel-
ferð dýra, heilbrigði plantna og ör-
yggi, heilnæmi og gæðum matvæla.
Staðsetning er á Selfossi og Stór-
höfða 23 í Reykjavík.
MATVÍS er félag iðnaðarmanna í
matvæla- og veitingagreinum, þ.e.a.s.
bakara, kökugerðarmanna, fram-
reiðslumanna, kjötiðnaðarmanna,
matreiðslumanna, nema og ann-
arra sem starfa við framreiðslu,
matreiðslu og sölu á matvælum
og félagið ákveður að veita við-
töku. Staðsetning: Stórhöfða 31
í Reykjavík.
Matís er þekkingarfyrirtæki
sem sinnir fjölbreyttu rann-
sókna,- þjónustu- og nýsköpun-
arstarfi í matvæla- og líftækni-
iðnaði. Matís veitir ráðgjöf og
þjónustu til fyrirtækja í sjávarút-
vegi og landbúnaði, sem og ís-
lenska ríkinu. Sem dæmi kemur
Matís að þróun á nýjum vörum
og ferlum fyrir fyrirtæki og hefur
mikilvægu hlutverki að gegna varð-
andi gæði og öryggi matvæla. Matís
gegnir engu eftirlitshlutverki. Stað-
setning: Vínlandsleið 12 og á nokkr-
um stöðum á landsbyggðinni.
mm
Matís er ekki Matvís og heldur ekki MAST