Skessuhorn - 07.12.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Friðrik Ólafsson stórmeistari í skák
opnaði formlega á mánudaginn nýja
vefsíðu, skakkennsla.is. Á henni er
að finna fjölbreytt úrval kennslu-
myndbanda í skák. Markmiðið með
gerð vefsíðunnar er að auðvelda að-
gengi að náms- og kynningarefni á
íslensku um skák sem einkum nýt-
ist börnum sem eru að læra að tefla,
skákkennurum í skólum og foreldr-
um sem vilja hjálpa börnum sín-
um með að verða betri skákmenn.
Á vefnum er að finna rúmlega 120
kennslumyndbönd bæði fyrir byrj-
endur og lengra komna.
Vefsíðan er samstarfsverkefni
Skáksambands Íslands og GAMMA
Capital Management og er ætlunin
að fjölga myndböndunum eftir því
sem tíminn líður. Skáksambandið
og GAMMA vonast til að verkefnið
verði íslensku skáklífi mikil lyfti-
stöng í framtíðinni og muni gagnast
börnum vel sem kennsluefni í skák.
Kennsluefnið skiptist í megingreinar
skáklistarinnar; miðtöfl, endatöfl og
byrjanir, auk þess er frægum skákum
úr skáksögunni gerð góð skil ásamt
myndböndum sem fjalla um feril ís-
lensku stórmeistaranna.
Vefsíðan var formlega tekin í
notkun í Rimaskóla á mánudaginn
og við það tilefni var spilað mynd-
band um feril eins ástsælasta skák-
manns landsins, Friðriks Ólafsson-
ar. Friðrik varð Íslandsmeistari í
skák aðeins 17 ára gamall og Norð-
urlandameistari ári síðar. Hann varð
stórmeistari í skák fyrstur Íslendinga
árið 1958, þá 23 ára gamall.
Friðrik sagði við það tækifæri:
„Það er ánægjulegt að vönduð
kennsluvefsíða um skák fyrir börn
sé komin í gagnið. Það er von mín
að vefsíðan verði vel sótt og hafi já-
kvæð áhrif á skákiðkun barna, for-
eldra og kennara. Skák er einstak-
lega skemmtileg, eflir rökhugsun,
einbeitingu og sköpunargáfu sem
styrkir jafnframt námsgetu barna.“
Gunnar Björnsson forseti Skák-
sambands Íslands sagði jafnframt
við þetta tilefni að vefurinn kæmi á
góðum tíma þar sem skákhreyfingin
hefur verið vör við stóraukinn skák-
áhuga eftir sigur Magnúsar Carl-
sen í heimsmeistaraeinvíginu í New
York.
Höfundur kennslumyndband-
anna er Björn Ívar Karlsson, sem
hefur FIDE-þjálfaragráðu og er
einn reyndasti skákkennari landsins.
Björn talar jafnframt inn á öll mynd-
böndin. Í dag er Björn í fullu starfi
við að kenna skák við sjö grunnskóla
og hefur undanfarin 8 ár kennt við
30 grunnskóla, í Reykjavík, Akur-
eyri og Vestmannaeyjum. Björn
hefur komið að kennslu efnilegustu
skákmanna landsins auk þess að vera
landsliðsþjálfari íslenska kvennaliðs-
ins í skák. mm
Ég hef í nokkrum greinum í
Skessuhorni gert grein fyrir að-
komu Borgarlands ehf að skipu-
lagi Borgarbrautar 59 í Borgar-
nesi. Svo virðist að sumum þókn-
ist ekki veruleikinn um upphaf og
þróun skipulags á lóðinni. Sig-
urður Guðmundsson, íbúi og
skattgreiðandi í Borgarbyggð,
er greinilega einn af þeim. Með
hliðsjón af þeim greinum sem ég
hef skrifað um þetta þá eru það
nokkuð langsóttar dylgjur Sigurð-
ar að ég vilji eða geti ekki svarað
spurningum um aðkomu Borgar-
lands ehf og ástæðum þess að fé-
lagið kærði deiliskipulagið á um-
ræddum lóðum.
Það er rétt að halda því til haga
að það er besta mál að hafin sé
uppbygging á lóðunum Borgar-
braut 57-59. Borgarland ehf hef-
ur engar athugasemdir gert við
byggingu hótels eða aðra upp-
byggingu á svæðinu. Borgarland
ehf kærði deiliskipulag að Borg-
arbraut 55-59 vegna þess að þar
var gert ráð fyrir byggingarmagni
langt umfram leyfileg mörk skv.
aðalskipulagi. Afleiðing þeirr-
ar miklu nýtingar á lóðunum var
sú að verulega vantaði uppá að
nægjanlegur fjöldi bílastæða væri
til staðar, fyrir íbúðirnar, hótelið
og þjónustustarfsemina sem á að
verða á lóðunum. Þessar áhyggj-
ur Borgarlands ehf voru staðfestar
í bókun byggingarfulltrúa og for-
stöðumanns Umhverfissviðs Borg-
arbyggðar með útgáfu byggingar-
leyfis en hægt er að lesa sér betur
til um bílastæðamálin í fundargerð
nr. 122, afgreiðslufundar bygg-
ingarfulltrúa dags. 16. september
2016.
Að auki þarf að hafa í huga að
bílastæðin á Borgarbraut 57 og 59
áttu flest að vera Kjartansgötu-
megin þannig að þeir sem kæmu
að framhlið hótels- og þjónustu-
rýma, Borgarbrautarmegin hefðu
í fá bílastæði að leggja. Líkleg af-
leiðing þessa væri sú að þeir sem
sæktu þjónustu á Borgarbraut
57-59 mundu sækja í næstu bíla-
stæði, sem eru bílastæðin við
Hyrnutorg, Borgarbraut 58-60
húsinu handan við Borgarbraut-
ina, húss sem er að mestu í eigu
Borgarlands ehf. Þau bílastæði
tilheyra viðskiptavinum Hyrnu-
torgs, ekki öðrum, en eins og vel
þekkt er þá eru stæðin við húsið
vel nýtt, sérstaklega á álagstímum
yfir sumarið.
Niðurstaða Úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála var
alveg skýr; deiliskipulagið væri
ekki í samræmi við aðalskipulag
Borgarbyggðar og það var fellt úr
gildi. Hluti af málflutningi Borg-
arbyggðar var að fá kæru Borgar-
lands ehf vísað frá á þeim forsend-
um að félagið hefði ekki hags-
muna að gæta í
málinu. Úrskurð-
arnefndin gerði
ekkert með þann málflutning og
er niðurstaðan því sú að Borgar-
land ehf eigi lögvarða hagsmuna
að gæta við úrlausn málsins.
Hvað varðar þá margtuggðu
fullyrðingu að unnið sé á forsend-
um deiliskipulags sem Borgar-
land ehf hafi unnið að þá endur-
tek ég það einu sinni enn að það
er þvæla. Hvað sem öðru líður þá
er regin munur á því hvort byggja
eigi íbúðarblokk með 30 íbúðum
þar sem nýtingarhlutfall lóðar
yrði 1,5 eða það stórhýsi sem nú
er verið að byggja þar sem nýting-
arhlutfall lóðar er 2,41. Umferð
og bílastæðafjöldi sem fylgir slíku
stórhýsi er langtum meiri og um-
ferð þyngri en sú sem fylgdi bygg-
ingu íbúða á sömu lóð.
Síðan má rifja það upp fyrir
Sigurð Guðmundsson og aðra að
Borgarland ehf hætti við fram-
kvæmdir að Borgarbraut 59 og
seldi verkefnið þar sem ekki var
vilji hjá stjórnendum og eigendum
að standa í illdeilum við íbúana á
svæðinu.
Borgarnesi, 2. desember 2016.
F.h. stjórnar Borgarlands ehf
Guðsteinn Einarsson.
Nýr kennsluvefur í
skák kominn í loftið
Athugasemd við
athugasemd og dylgjur!
Sigurður Guðmundsson beindi
þeirri spurningu til stjórnar Kaup-
félags Borgfirðinga hvaða hags-
muni við teldum okkur vera að
verja með andstöðu okkar við
framkvæmdir á Borgarbraut 57-59
sem byggðist meðal annars á okkar
eigin vinnu.
Þessari spurningu er fljótsvarað.
Í fyrsta lagi kannast ég ekki við að
verið sé að byggja á okkar vinnu,
okkar hugmyndir um bygginga-
magn þarna var mikið minna í
sniðum og hófstilltara en nú er fyr-
irhugað auk þess sem gert var ráð
fyrir grænu svæði umhverfis bygg-
inguna. Að öðru leyti eins og hef-
ur komið fram í skrifum Guðsteins
Einarssonar kaupfélagsstjóra ger-
um við athugasemdir vegna skorts á
bílastæðum á Borgarbraut 57 og 59
en fyrirhuguð bílastæði þar eru ekki
í samræmi við byggingarmagnið.
Í Hyrnutorgi, sem er gegnt fyr-
irhuguðum byggingum á Borg-
arbraut 57 og 59, er margvísleg
starfsemi. Fyrir liggur að bíla-
stæði þeim megin við götuna anna
ekki fleirum en viðskiptavinum og
nemendum þeirra sem þegar hafa
þar starfsemi þ.e. N1, Hyrnutorgi
og Menntaskóla Borgarfjarðar.
Hagsmunir Borgarlands sem eig-
anda Hyrnutorgs að stórum hluta
og leigjanda þess húsnæðis til ým-
issa atvinnurekenda liggja í því að
hafa næg bílastæði fyrir viðskipta-
vini þeirra.
Við óttumst
það að verði slík
starfsemi á Borg-
arbraut 57 og 59
sem nú er fyrirhuguð munu íbú-
ar þar og eða gestir þurfa að nýta
bílastæðin sem eru til nota fyrir
starfsemina okkar megin götunn-
ar þar sem ekki er gert ráð fyrir
nægum bílastæðum við nýju bygg-
ingarnar á Borgarbraut 57 og 59
með neikvæðum afleiðingum fyrir
Hyrnutorg.
F.h. stjórnar Kaupfélags Borgfirð-
inga svf.
Guðrún Sigurjónsdóttir, stjórnar-
formaður.
Svar við fyrirspurn
Pennagrein
Pennagrein