Skessuhorn - 07.12.2016, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Dregið var í átta liða úrslitum Mal-
tbikarsins, bikarkeppni KKÍ, í há-
deginu í gær. Í pottinum í bikar-
keppni kvenna voru tvö Vestur-
landslið; ríkjandi Íslands- og bik-
armeistarar Snæfells sem báru sig-
urorð af Val í 16 liða úrslitum og
Skallagrímur, sem sat hjá í fyrstu
umferð bikarkeppninnar þennan
veturinn. Bæði liðin fengu heima-
leiki þegar dregið var upp úr pott-
inum í gær. Snæfell tekur á móti
Stjörnunni og Skallagrímur fær 1.
deildar lið KR í heimsókn. Leikið
verður í átta liða úrslitum bikarsins
sunnudaginn 15. og mánudaginn
16. janúar næstkomandi.
Karlalið vestlensk voru engin í
pottinum þegar dregið var í átta liða
úrslitum bikarsins að þessu sinni.
Skallagrímsmenn komust lengst
Vesturlandsliða en voru slegn-
ir út í 16 liða úrslitum gegn Val á
mánudaginn síðasta. Snæfell, ÍA og
Grundarfjörður féllu öll úr leik í
fyrstu umferð. kgk
Vesturlandsliðin fá
heimaleiki í bikarnum
Ríkjandi bikarmeistarar Snæfells halda titilvörn sinni áfram. Þær drógust gegn
Stjörnunni í átta liða úrslitum en Skallagrímur mætir KR. Ljósm. úr safni/ sá.
Skallagrímskonur gerðu góða ferð
suður með sjó og sóttu tvö stig til
Grindavíkur síðasta miðvikudag þeg-
ar keppni hófst að nýju í Domino‘s
deild kvenna eftir landsleikjahlé. Eft-
ir erfiða byrjun komst Skallagríms-
liðið betur og betur inn í leikinn eftir
því sem leið á og hafði að lokum sig-
ur, 61-72.
Um helgina var komið að næsta leik
liðsins og bar hann upp á eitt hundr-
að ára afmæli félagsins sem fagnað
var með pompi og prakt laugardag-
inn 3. desember síðastliðinn. Fjallað
er um afmælið á öðrum stað í blaðinu
í dag. Skallagrímskonur tóku þá á
móti toppliði Keflavíkur. Liðið náði
ekki að sækja sigur á gestina. Eftir
góðan fyrri hálfleik Skallagríms tóku
gestirnir af Suðurnesjunum öll völd á
vellinum í síðari hálfleik og sigruðu
að lokum með 68 stigum gegn 55.
Keflvíkingar skoruðu fyrstu körfu
leiksins en Skallagrímskonur áttu
næstu stig, komust yfir og höfðu yfir-
höndina í upphafsfjórðungnum. Þær
leiddu að honum loknum með 16
stigum gegn 13. Gestirnir jöfnuðu í
upphafi annars leikhluta í 17-17 en
aftur tóku Skallagrímskonur stjórn
leiksins í sínar hendur og voru sterk-
ara liðið allt til hálfleiks. Mest náðu
þær átta stiga forskoti seint í öðrum
fjórðungi en leiddu með fimm stigum
í hléinu, 34-29.
Keflavíkurkonur komu mjög
ákveðnar til síðari hálfleiks. Þær
þjörmuðu stíft að Skallagrímsliðinu
bæði í vörn og sókn og tóku öll völd á
vellinum. Þær komust yfir snemma í
þriðja leikhluta og litu aldrei um öxl.
Keflavík hafði tíu stiga forystu seint í
þriðja fjórðungi áður en Skallagríms-
konur spyrntu við fótum og minnk-
uðu muninn í fimm stig fyrir fjórða og
síðasta leikhluta, 48-43. Nær komust
þær hins vegar ekki því Keflavíkurlið-
ið var einfaldlega sterkara í lokafjórð-
ungnum og gaf aldrei færi á sér. Sjö
stig skildu liðin að þegar fimm mín-
útur lifðu leiks en með góðum kafla
á síðustu mínútunum náðu gestirnir
að gulltryggja sigur sinn. Þegar loka-
flautan gall munaði 13 stigum á lið-
unum, Keflavík vann með 68 stigum
gegn 55.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var
atkvæðamest Skallagrímskvenna í
leiknum. Hún skoraði 19 stig, reif
niður 17 fráköst og gaf fimm stoð-
sendingar. Næst henni kom Tavelyn
Tillman með 13 stig og fjögur fráköst
en aðrar höfðu minna.
Skallagrímsliðið situr sem stend-
ur í þriðja sæti deildarinnar með 14
stig eftir ellefu leiki, tveimur stigum
á eftir Snæfelli í öðru sæti en með
fjögurra stiga forskot á næstu lið fyr-
ir neðan. Næsti leikur Skallagríms fer
fram sunnudaginn 11. desember þeg-
ar liðið heimsækir Hauka.
kgk
Skallagrímskonur urðu að játa
sig sigraðar á afmælisdaginn
Sigrún Ámundadóttir snýr af sér varnar-
mann Keflvíkinga og skorar eitt af 19
stigum sínum í leiknum á laugardag.
Ljósm. Skallagrímur/
Ómar Örn Ragnarsson.
Skallagrímur mætti Tindastóli í
Domino‘s deild karla í körfuknattleik
síðastliðið fimmtudagskvöld. Leikið
var norður á Sauðárkróki. Stólarnir
voru í miklu stuði á Króknum, voru
betri allan leikinn og unnu að lokum
öruggan sigur, 97-75.
Heimamenn byrjuðu af krafti og
voru komnir í 12-0 áður en tvær mín-
útur voru liðnar af leiknum. Skalla-
grímsmenn tóku leikhlé og fóru yfir
sín mál og skoruðu næstu sex stigi
leiksins en Stólarnir höfðu yfirhönd-
ina og tóku að síga lengra fram úr á
nýjan leik eftir því sem leið á upp-
hafsfjórðunginn. Að honum loknum
höfðu þeir skorað 33 stig gegn aðeins
16 stigum Skallagríms. Heimamenn
héldu síðan um það bil því forskoti
allt til hálfleiks og leiddu með 52 stig-
um gegn 36 í hléinu.
Skallagrímsmenn byrjuðu síðari
hálfleikinn prýðilega, skoruðu fyrstu
sex stigin og minnkuðu muninn í tíu
stig. En eftir það tóku heimamenn
við sér, áttu stórgóðan leikkafla og
skoruðu 17 stig gegn fjórum og voru
komnir með 21 stigs forskot um
miðjan þriðja leikhluta. Skallagríms-
menn náðu ekki að svara fyrir sig og
enn bættu Stólarnir við. Fyrir loka-
fjórðunginn munaði 28 stigum á lið-
unum og úrslit leiksins ráðin. Tinda-
stóll bætti enn við, náði mest 33 stiga
forskoti snemma í fjórða leikhluta
en eftir það gáfu þeir eftir og Skalla-
grímsmenn náðu að kroppa aðeins af
forystu heimamanna. Þegar leiknum
lauk munaði 22 stigum á liðunum.
Tindastóll vann, 97-75.
Flenard Whitfield var eini leik-
maður Skallagríms sem náði sér á
strik í leiknum. Hann skoraði 32 stig,
tók 17 fráköst. Aðrir komust ekki í
tveggja stiga tölu í stigaskorinu og
það kann ekki góðri lukku að stýra.
Skallagrímur situr í níunda sæti
deildarinnar með átta stig eftir níu
leiki, jafn mörg stig og næstu þrjú lið
fyrir ofan og tveimur stigum betur en
næstu tvö fyrir neðan. Næsti leikur
Skallagríms fer fram föstudaginn 9.
desember næstkomandi þegar liðið
heimsækir Þór í Þorlákshöfn.
kgk
Skallagrímsmenn mættu ofjörlum
sínum á Sauðárkróki
Flenard Whitfield var eini leikmaður Skallagríms sem náði sér almennilega á strik
í leiknum gegn Tindastóli.
Ljósm. fengin af Facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
Markahrókurinn Garðar Gunn-
laugsson hefur framlengt samn-
ing sinn við ÍA um tvö ár og mun
því leika með liðinu út leiktímabil-
ið 2018. Garðar gekk til liðs við ÍA
á nýjan leik árið 2012 þegar hann
sneri heim úr atvinnumennsku.
Hefur hann síðan þá upplifað tím-
ana tvenna með ÍA en undanfar-
in þrjú ár hefur liðið átt prýðilegu
gengi að fagna. Þessi sömu ár hef-
ur Garðar leikið vel og verið einn
af lykilmönnum liðsins. Hann varð
markahæsti leikmaður 1. deild-
ar árið 2014, hlaut silfurskóinn á
síðasta ári og gullskóinn í ár þegar
hann skoraði 14 mörk í Pepsi deild
karla. Garðar á að baki 254 leiki
fyrir ÍA og hefur skorað í þeim 121
mark. Hann kveðst ánægður að hafa
framlengt samninginn við lið Skaga-
manna. „Ég er gríðarlega spenntur
að vinna með ungu strákunum og
gaman að taka þátt í þessari frábæru
uppbygginu sem á sér stað á Akra-
nesi,“ er haft eftir Garðari á facebo-
ok-síðu KFÍA.
Ólafur Valur Valdimarsson hef-
ur einnig framlengt samning sinn
við félagið til tveggja ára. Ólafur er
27 ára gamall kantmaður og hef-
ur leikið 180 leiki með meistara-
flokki og skorað 16 mörk. Hann
lenti í gríðarlega erfiðum meiðslum
árið 2013 og hefur verið að ná fyrri
styrk allar götur síðan. Hefur hann
þó átt góða spretti síðan þá þar sem
hann hefur getað sett mark sitt á
leik liðsins. Á facebook-síðu KFÍA
er Ólafur sagður ánægður með að
erfið meiðsli séu að baki og fullur
tilhlökkunar að taka þátt í uppbygg-
ingunni á Akranesi.
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari liðs-
ins, er að vonum ánægður með að
Garðar og Ólafur Valur hafi ákveð-
ið að framlengja samninga sína.
„Þetta eru frábærar fréttir fyrir fé-
lagið, Garðar hefur svo sannarlega
farið fyrir sóknarleik liðsins undan-
farin ár og verið einn af leiðtogum
liðsins, og Ólafur Valur er að ná
sínum fyrri styrk eftir slæm meiðsli
og við væntum mikils af honum á
næsta tímabili.“ kgk
Garðar og Ólafur Valur framlengja við ÍA
Garðar Gunnlaugsson í leik með ÍA.
Ljósm. úr safni/ gbh.
Knattspyrnudeild Vík-
ings Ó hefur gert þriggja
ára samninga við sjö unga
og efnilega leikmenn,
en samningarnir gilda út
keppnistímabilið 2019.
Samið var við þá Pétur
Steinar Jóhannsson, Kon-
ráð Ragnarsson, Sumar-
liða Kristmundsson, Sig-
urjón Kristinsson, Brynj-
ar Vilhjálmsson, Sanjin
Horoz og Hilmar Björns-
son. Jónas Gestur Jón-
asson formaður félags-
ins fagnar þessum áfanga
enda eru þetta allt góðir
leikmenn sem félaginu er
fengur af að hafa í sínum
röðum. mm
Víkingur Ó semur við sjö efnilega leikmenn
Eftir undirritun samninga var skellt í myndatöku. Þarna eru f.v. Gunnsteinn Sigurðsson
stjórnarmaður, Jónas Gestur Jónasson formaður, Konráð Ragnarsson, Sumarliði Krist-
mundsson, Sigurjón Kristinsson, Brynjar Vilhjálmsson, Ejub Purisevic þjálfari og Hilmar
Hauksson stjórnarmaður. Fremri röð: Pétur Steinar Jóhannsson, Hilmar Björnsson og
Sanjin Horoz. Ljósm. þa.