Skessuhorn - 29.03.2017, Blaðsíða 7
Saga Borgarness í 150 ár
Í tilefni af 150 ára verslunarafmæli Borgarness
þann 22. mars 2017 réðst sveitarstjórn Borgar-
byggðar í það verkefni að láta rita sögu Borgarness.
Egill Ólafsson blaðamaður og sagnfræðingur hóf ritun
verksins í ársbyrjun 2014. Við andlát hans í ársbyrjun
árið 2015 var Heiðar Lind Hansson sagnfræðingur
ráðinn til að taka við af Agli og ljúka verkinu.
Saga Borgarness er nú að koma út. Hún er veg-
legt verk í tveimur bindum sem bera heitin „Byggðin
við Brákarpoll“ og „Bærinn við brúna“. Sagan telur
um 900 blaðsíður með á sjötta hundrað mynda.
Sagan er rituð í læsilegum og léttum frásagnarstíl
þar sem komið er inn á flest það sem hæst hefur
borið í 150 ára sögu samfélagsins; atvinnumál,
sveitarstjórnarmál, menningarmál, verslun og
viðskipti, skólamál, íþróttir, samgöngur, vaxtarskeið
og varnarbaráttu og þannig mætti áfram telja.
Sagan verður formlega gefin út á 150 ára
afmælishátíð Borgarness í Hjálmakletti
laugardaginn 29. apríl n.k. Fram að þeim tíma
verður hún seld í forsölu. Umf. Skallagrímur annast
forsöluna og mun meðal annars ganga í hvert hús í
Borgarnesi. Verð ritverksins í forsölu verður
12.900 krónur en almennt verð að henni lokinni
verður 15.500 krónur.
Þeir sem áhuga hafa á að panta Sögu Borgar-
ness í forsölu geta haft samband í síma 844-8639
eða á tölvupóstfanginu sagaborgarness@gmail.com.
Einnig er tekið við pöntunum í gegnum síðuna Saga
Borgarness á facebook, en þar er einnig hægt að
kynnast verkinu nánar.
Það er Borgarbyggð sem gefur verkið út en
Bókaútgáfan Opna bjó það til prentunar.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7