Skessuhorn - 29.03.2017, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 201716
Þessa dagana er unnið við upp-
setningu á nýjum tölvustýrðum
fræsara í málmiðnadeild Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Tæki þetta er af gerðinni
HAAS, TM-1P og er afar full-
kominn fræsari sem býður upp
á mikla möguleika í framleiðslu
ólíkra hluta úr málmi. Með fylgi-
hlutum er áætlað að tækið kosti
um tíu milljónir króna. Hörður
Baldvinsson, deildarstjóri málm-
iðnadeildar FVA, fagnar mjög
komu nýja tölvufræsarans og seg-
ir hann nánast jafngilda byltingu
í tækjakosti deildarinnar. Þá segir
hann að einnig hafi verið ákveð-
ið að kaupa nýjan tölvustýrð-
an rennibekk en þessi tvö tæki
eru forsenda nútíma verkþjálfun-
ar í málmtækni. Eldri tækjakost-
ur skólans er mjög kominn til ára
sinna. Bæði þessi tæki verða til-
búin fyrir upphaf kennslu næsta
haust.
Góður fjöldi nemenda stund-
ar nú nám í dagskóla málmiðna-
deildar FVA en mest er þó að-
sóknin í kvöldskóla deildarinnar
þar sem 35 stunda nú nám. Fullt er
í þann hluta námsins og færri hafa
komist að en vildu. Hörður seg-
ir að margir þeirra sem stunda nú
nám í kvöldskóla FVA séu á ein-
hvers konar tímamótum í lífinu.
Hafi t.d. innritaðs til náms eftir að
hafa hætt í öðru námi eða séu þar
í kjölfar raunfærnimats. Það byggi
á að bæta við þekkingu og mennt-
un til að öðlast réttindi. Þá er fólk
með afar ólíkan bakgrunn að afla
sér menntunar í kvöldskólanum.
Aldursbilið er auk þess talsvert en
elsti nemandinn nú er 55 ára.
Að sögn Ágústu Elínar Ingþórs-
dóttur skólameistara stendur til í
sumar að mála og snyrta húsnæði
málmiðnadeildar. „Það er hag-
ur okkar allra að hér sé bjart og
snyrtilegt og aðstaðan sem best.
Við sjáum fram á það með bætt-
um tækjabúnaði, góðri aðstöðu og
síðast en ekki síst góðu starfsfólki
að aðsókn í iðnnámið hér muni
aukast. Atvinnulífið kallar mjög
á að fleiri hefji iðnnám og því er
ég sannfærð um að það muni skila
sér í aukinni aðsókn,“ segir Ágústa
Elín. Hörður deildarstjóri bætir
því við að ein af sérstöðum skól-
ans sé persónulegt nám þar sem
einstaklingar fái tækifæri óháð
fyrri reynslu, menntun eða getu.
„Við erum hér í málmiðnadeild-
inni með fólk með afar ólíkan
bakgrunn; t.d. unga þriggja barna
móður, fólk sem hefur orðið ut-
anveltu í þjóðfélaginu að ýms-
um ástæðum eða flosnað frá öðru
námi. Hér fær fólk gott tækifæri
til að sækja sér nám á nýju sviði
og öðlast menntun sem eftirspurn
er eftir í atvinnulífinu. Fjölmörg
dæmi höfum við svo um fólk sem
hefur blómstrað í kjölfarið úti í at-
vinnulífinu,“ segir Hörður Bald-
vinsson.
mm
Nýr tækjakostur í málmiðnadeild FVA
Tölvustýrður fræsari og rennibekkur verða meðal tækjakosts næsta haust
Þessa dagana vinna Valdís Gunn-
arsdóttir og Carolin Baare Schmidt
að undirbúningi hestaleigunnar
Dalahesta í Búðardal. Til stend-
ur að reka hana á sumri komanda.
„Við ætlum að vera með tilrauna-
starfsemi í hestatengdri afþreyingu
fyrir ferðamenn yfir háannatímann
í sumar. Stefnan er að opna í júní
og starfa fram í ágúst,“ segir Val-
dís í samtali við Skessuhorn. „Hug-
myndin að þessu kviknaði síðasta
haust og við fórum strax að æsa
hvora aðra upp í þetta. Það er skort-
ur á afþreyingu fyrir ferðamenn hér
í Dölum en nóg til af hrossum. Því
lá beinast við að nýta sér það. Ég og
Carolin ákváðum að vera ekkert að
bíða eftir því að aðrir geri hlutina
heldur kýla bara á þetta. Sjálfar eig-
um við nokkra ljúflinga sem myndu
henta afar vel til að bjóða jafnt vön-
um sem óvönum á bak. Síðan feng-
um við í vetur veglegan styrk til
verkefnisins úr Uppbyggingarsjóði
Vesturlands og þá varð auðvitað
ekki aftur snúið,“ bætir hún við.
Góð aðstaða á Fjósum
Til að hýsa starfsemina hafa Valdís
og Carolin óskað eftir að fá afnot
af 60 fermetra rými í austurhluta
hlöðunnar að Fjósum. Byggðar-
ráð Dalabyggðar hefur tekið beiðni
þeirra fyrir og var sveitarstjóra falið
að gera drög að leigusamningi sem
lagður verður fyrir sveitarstjórn á
næsta fundi. Aðstöðunni er ætlað
að hýsa móttöku, reiðtygi, hjálma,
hlífðarfatnað og fleira vegna hesta-
leigunnar. Auk þess munu þær nýta
beitarhólf sem staðsett er við hlöð-
una á Fjósum. „Við búum svo vel
hér í Búðardal að við Fjósa er stórt
og gott beitarhólf og góð aðstaða.
Þar sjáum við fyrir okkur að fólk
geti fengið að eiga smá gæðastund
með hestinum; klappað honum,
gefið honum eitthvað gott og feng-
ið aðeins að kynnast honum í ná-
vígi. Síðan gætum við teymt undir
fólk í hólfinu, ef það hefur áhuga á
því,“ segir Valdís. „Síðan sjáum við
fyrir okkur styttri hestaferðir. Ann-
ars vegar ferðir frá Fjósum og eftir
reiðveginum hér í og við Búðardal,
en hins vegar aðeins lengri ferðir að
Laxárósum og niður í fjöru. Slíkur
túr yrði þó þeim takmörkum háður
að aðeins yrði hægt að fara hann á
háfjöru.“
Áframhald ef vel gengur
Valdís hefur orð á því að hug-
myndir þeirra séu ekki fullmótað-
ar enn sem komið er, varðandi ferð-
ir og annað. En þegar búið verður
að fá leigt húsnæði og nær dreg-
ur sumri þá fari að koma skýrari
mynd á starfsemina. „Við rennum
aðeins blint í sjóinn með þetta en
langar að prófa. Það er gaman að
reyna eitthvað nýtt og safna í sarp-
inn,“ segir hún og bætir því við að
ef vel tekst til í sumar verði haldið
áfram að ári. „Ef þetta gengur vel
þá setjum við aukinn kraft í Dala-
hesta fyrir næsta sumar og bætum
við ferðum, því ekki vantar falleg-
ar reiðleiðir hér í Dölum. Ég sé til
dæmis fyrir mér mjög skemmti-
lega hringferð um Fellsströnd og
Skarðsströnd í fallegu umhverfi. En
að sinni stefnum við fyrst og fremst
að því að koma þessu í gangið fyrir
sumarið og gera tilraun með þenn-
an rekstur í júní, júlí og ágúst. Síð-
an sjáum við bara til hvernig reynsl-
an verður og þá hvort við leggjum
í þetta aftur,“ segir Valdís Gunnars-
dóttir að lokum.
kgk/ Ljósm. sm.
Ætla að opna hestaleigu í Búðardal
Hér standa við nýja tölvustýrða fræsarann; Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari, Hörður Baldvinsson og fjórir af þeim nemendum sem verða í hópi fyrstu nemend-
anna sem læra á nýja tækið í haust. F.v. Gunnar, Sólveig, Siggi og Helga.