Skessuhorn - 29.03.2017, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2017 17
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Útboð
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í endurnýjun á um
7.700 m2 af gervigrasi í Akraneshöll. Útboðsgögn má panta hjá
SportVerk ehf. á netfanginu pwj@sportverk.is.
Opnun tilboða er miðvikudaginn 19. apríl 2017, kl. 14.00
hjá Sportverk, Hátúni 6A, Reykjavík.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Nemendur á starfsbraut
í Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi fóru á kost-
um í hæfileikakeppni starfs-
brauta sem fram fór í Flens-
borg í Hafnarfirði á dögun-
um. Þau gerðu sér lítið fyr-
ir og enduðu í öðru sæti fyrir
afar skemmtilegt myndband.
Hægt er að skoða myndband
hópsins á slóðinni: https://
youtu.be/ceolku3jc64
mm
Í öðru sæti í Hæfileikakeppni starfsbrauta
Norræna félagið á Akranesi og
Akraneskaupstaður standa fyrir
vinabæjarmóti á Akranesi í sum-
ar. Vinabæjarmótið verður dag-
ana 5.- 9. júlí. „Markmið Norræna
félagsins er að efla norrænt sam-
starf á öllum sviðum samfélagsins,
efla frið Norðurlandaþjóðanna sín
á milli og þeirra og annarra þjóða
út á við. Norræna félagið vinnur
að markmiðum sínum með því að
stuðla að samskiptum milli einstak-
linga, félagsdeilda og við systur-
félög sín á Norðurlöndum,“ segir í
tilkynningu.
Norræna félagið á Akranesi og
vinabæir þess, Bamble í Noregi,
Tönder í Danmörku, Västervik
í Svíþjóð og Närpes í Finnlandi
halda í þessum tilgangi vinabæjar-
mót þriðja hvert ár til skiptis í bæj-
unum og í ár verður það haldið á
Akranesi í júlí næstkomandi. Nor-
ræna félagið og Akraneskaupstaður
eru sameiginlega gestgjafar á vina-
bæjarmótinu.
Hver vinabær má að hámarki
senda 25 þátttakendur á mótið
og hefð er fyrir því að gestir búi á
einkaheimilum meðan á mótinu
stendur. „Það væri því vel þegið
að þeir sem áhuga og tök hafa á að
taka á móti einum til tveimur gest-
um frá vinabæjunum hafi samband
við Norræna félagið á netfangið:
haholt3@simnet.is og láti vita,“
segir í tilkynningu frá Norræna fé-
laginu á Akranesi. mm
Halda norrænt vinabæjamót
á Akranesi í sumar
„Ég er að hætta,“ sagði Krist-
ín Björk Guðmundsdóttir, skóla-
stjóri Laugargerðisskóla á sunn-
anverðu Snæfellsnesi, þeg-
ar blaðamaður Skessuhorns sló
á þráðinn til hennar á dögun-
um. Kristín Björk lætur af störf-
um sem skólastjóri Laugargerð-
isskóla þegar kennslu líkur í vor,
eftir áratug í starfi. „Ég verð búin
að ljúka tíu árum í starfi hér í
Laugargerði þegar ég hætti, því
ég byrjaði haustið 2007,“ segir
hún. Aðspurð um ástæður þess að
hún er að láta af störfum segir hún
þær einfaldar. „Ég er að verða ell-
ismellur og fer bara á eftirlaun,“
segir hún létt í bragði.
„Ég byrjaði tvítug að kenna. Ég
hefði því mátt hætta fyrir fjórum
árum síðan, þegar ég varð sextug.
Þá komst ég á 95 ára regluna. En
ég stefndi nú svo sem að því þeg-
ar ég byrjaði að vera í áratug, að
því gefnu að vel gengi og heilsan
leyfði, því maður veit aldrei hvað
getur komið upp á,“ segir Kristín
og bætir því við að blessunarlega
hafi hún verið við góða heilsu. „Ég
er stálhraust og ákvað því að ljúka
þessum tíu árum sem ég stefndi
að því mér hefur þótt starfið svo
skemmtilegt,“ segir hún.
Kristín lætur afar vel af starfi
skólans í sinni skólastjóratíð. „Það
hefur gengið mjög vel þennan
áratug sem ég hef verið í Laugar-
gerði. Við erum til dæmis nýkom-
in úr ytra mati þar sem skólinn
fékk góða umsögn hjá Mennta-
málastofnun, eins og var einmitt
sagt stuttlega frá í Skessuhorni.
Laugargerðisskóli er góður skóli
með frábærum nemendum, góðu
starfsfólki og starfsandinn er til
fyrirmyndar. Við vitum varla hvað
agavandamál eru,“ segir Kristín.
Fer á fullt í hestunum
Í skólastjóratíð sinni hefur Krist-
ín verið búsett í Laugargerði ásamt
eiginmanni sínum, Friðbirni Erni
Steingrímssyni. Hann er kennari
við skólann en mun einnig láta af
störfum í vor. Þau hyggja á flutn-
inga í vor. „Við flytjum í Borgarnes.
Þar eigum við hús sem við höfum
leigt út undanfarin ár,“ segir Krístin.
Hún bætir því við að á næstunni ætli
hún að einbeita sér að áhugamálun-
um, en þar er hestamennskan efst
á blaði. „Ég ætla að stunda hesta-
mennskuna eins mikið og ég get. Ég
er reyndar ekki keppnismanneskja
en hef alltaf farið mikið í hestaferðir.
Ég ver meira og minna öllum sumr-
um í að ferðast á hestunum mín-
um, sem ég hef þjálfað til eigin nota.
Á þeim tíma sem ég hef búið hér í
skólastjórabústaðnum í Laugar-
gerði hef ég fengið leigt fyrir hross-
in mín í Söðulsholti,“ segir hún en
bætir því við að hún sé ekki búin að
segja skilið við skólastarf fyrir fullt
og allt. „Ég er sérkennari að mennt
og reikna með að nota krafta mína
aðeins lengur. Ég mun ef til vill gefa
kost á mér í greiningarstörf ef vant-
ar í skólum, þannig að ég mun ekki
segja alveg skilið við skólastarf,“ seg-
ir hún. „En hvernig sem það verður
þá hlakka ég bara til að takast á við
næsta áfanga í lífinu,“ segir Kristín
Björk Guðmundsdóttir að lokum.
kgk
Hættir eftir áratug sem skólastjóri í Laugargerði
Kristín Björk ásamt hluta nemenda sinna. Myndin var tekin á 50 ára afmæli
skólans haustið 2015. Ljósm. úr safni Skessuhorns.