Skessuhorn - 29.03.2017, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2017 29
Þórður
Alexandra
LITIR:
ERLA FRÆNKA
KANN SKO AÐ BAKA
Svunta með merkingu Sundpoki með merkingu
Prjónahúfa með nafni
Handklæði með nafniVinnupeysa með nafni
Höfuðklútur með nafni
LITIR:
3.990
ISK 3.200
ISK
1.480
ISK
1.980
ISK
3.200
ISK
2.900
ISK
LITIR: LITIR:
LITIR:LITIR:
Samfella með merkingu Bolur með mynd/texta
1.980
ISK
3.500
ISK
Frændi er
langbestur
LITIR:
Barna
2.800
ISK
Fullorðins
3.50 ,-
ISK
LITIR:
Persónulegt jólakort
með umslagi
130,-
STK.
666-5110
Sendum frítt um allt land
Óska eftir húsnæði
Óska eftir húsnæði til leigu sem
fyrst á Akranesi eða rétt fyrir utan.
Arco1366@gmail.com.
Óskum eftir húsnæði á Akranesi
Hjón með tvö börn óska eftir 4 her-
bergja íbúð til leigu sem fyrst. Erum að
flytja til Íslands frá Danmörku eftir 14
ára búsetu. Erum reglusöm og skilvís.
Vinsamlegast hafið samband í síma
856-2999, Jörgen.
Óskum eftir húsnæði í Borgarnesi
Hjón með eitt barn óska eftir 3-4 her-
bergja húsnæði, helst langtímaleigu.
Erum reglusöm og skilvís. Vinsam-
legast hafið samband í síma 848-2318
Þórir eða 849-2835 María.
Óska eftir húsnæði
Erum hjón með 3 börn sem óska eftir
húsnæði til leigu sem fyrst á Akranesi
eða rétt fyrir utan, helst með 4 svefn-
herbergjum. Rakelosk92@hotmail.
com.
Heil húseign allt að 8 svefnherbergi
Til leigu er Heiðarbraut 57 Akranesi,
um er að ræða hús með allt að 8 her-
bergjum, tvö baðherbergi og eldhús.
Gæti hentað fyrir verktaka eða fyrir-
tæki sem vantar húsnæði fyrir starfs-
fólk. Eignin er laus strax. upplýsingar í
síma 775-3939 Geir.
Óska eftir íbúð frá 1. júní
Vil taka á leigu á Akranesi lágmark 3ja
herbergja íbúð til langtímaleigu. Pott-
þéttar greiðslur alltaf 1. hvers mán-
aðar og meðmæli frá fyrrum leigusala
(Íbúðalánasjóði). Ekkert rugl, drekk
ekki og reyki ekki. Er 47 ára með barn ì
grunnskóla. Stellagudjons@simnet.is
Óska eftir í Borgarnesi
Hjón með 4 börn óska eftir húsnæði til
langtímaleigu í Borgarnesi. Reglusöm,
heiðarleg, snyrtileg og allur pakkinn.
Halli s: 821-5283.
Jörð - Land óskast
Erum að leita að ca. 30 – 100 ha.landi
til kaups – með eða án húsa, í Borgar-
firði, með búsetu í huga. Áhugasamir
hafi samband sem fyrst við Benedikt
Líndal s.863-6895, Sigríði Ævarsdóttur
s.893-1793 eða á netfang: harmony@
inharmony.is.
Tjaldvagn
Til sölu Camp let concord tjaldvagn árg.
2005. Fortjald tjaldast með, eldhús með
3 hellum, yfirbreiðsla, geymslukassi. Er í
geymslu, losnar um miðjan maí. Uppl. í
s. 866-2151.
Viltu losna við bjúg, sykurþörf og
léttast?
Þá er Oolong- og Pu-erh teið eitt það
albesta. Pakki með 100 tepokum er
á 4.300. Ef keyptir eru 2 pk. er verðið
7.800. Sykurþörfin minnkar og hverfur
oftast eftir stuttan tíma og bjúgurinn
fer mjög fljótt. Gott fyrir líkamlega og
andlega heilsu. S: 845-5715, Nína.
Hnífabrýningar
Brýni flestar gerðir bitjárna. Er á Akra-
nesi. Uppl. í síma 894-0073.
Markaðstorg Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
Reykhólahreppur -
miðvikudagur 29. mars
Aðalfundur Sauðfjárræktar-
félags Reykhólahrepps verður
haldinn í bókasafni Reykhóla-
skóla kl. 13:30. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Verðlaunaafhending fyrir bestu
lambhrútana 2016. Gestur
fundarins verður Lárus Birgis-
son ráðunautur.
Borgarbyggð -
miðvikudagur 29. mars
Kynning á skýrslu um fjölfarna
ferðamannastaði. Vinnuhópur
um fjölfarna ferðamannastaði
boðar til kynningarfundar um
skýrslu hópsins í Hjálmakletti
kl. 20. Guðveig Eyglóardóttir
formaður vinnuhópsins kynnir
efni skýrslunnar og síðan verða
almennar umræður um efnið.
Akranes -
laugardagur 1. apríl
Systurnar í Vitanum. Inga María
verður á landinu í viku og í til-
efni þess ætla systurnar þrjár að
skella í tónleika í Akranesvita kl.
15. Við vonumst til að sjá sem
flesta þar og nei, þetta er ekki
aprílgabb!
Snæfellsbær -
laugardagur 1. apríl
Skemmti- og styrktarkvöld
knattspyrnudeildar Víkings í
félagsheimilinu Klifi kl. 19:30.
Veislustjóri: Helgi Kristjánsson.
Tónlist – Skemmtun – Matur.
Miðaverð 5.000 kr. Miðasala í
síma 898-4633 og 891-9217.
Borgarnes -
sunnudagur 2. apríl
Úrslitakeppni Domino‘s deild
kvenna. Skallagrímur mætir
Keflavík í Fjósinu kl. 19:15.
Borgarbyggð -
þriðjudagur 4. apríl
Námskeiðið Borgfirðingasögur
- rætur reifaðar og tengsl toguð.
Bjarnarsaga Hítdælakappa í
Landnámssetri kl. 20. Óskar
Guðmundsson rithöfundur í
Véum flytur fyrirlestur með
hefðbundnu sniði og efnt er til
umræðu meðal þátttakenda.
Nýfæddir Vestlendingar
ÓSKAST KEYPT
Á döfinni
Getir þú barn þá
birtist það hér,
þ.e.a.s. barnið!
www.skessuhorn.is
22. mars. Drengur. Þyngd 3.514
gr. Lengd 51 sm. Foreldrar:
Sólveig Ólafsdóttir og Darri
Atlason, Reykjavík. Ljósmóðir:
Hafdís Rúnarsdóttir.
24. mars. Drengur. Þyngd 4.134
gr. Lengd 53 sm. Foreldrar:
Guðbjörg Regína Gunnarsdóttir
og Brynjar Freyr Burknason,
Reykjavík. Ljósmóðir: Ásthildur
Gestsdóttir. Drengurinn heitir
Burkni Gunnar Brynjarsson.
TIL SÖLU
ÝMISLEGT
Umræðan um fá-
tækt fólk kemur
alltaf reglulega
upp á yfirborð-
ið. Öll erum við
sammála um að
sá er veruleikinn
og einnig að það
sé ekki líðandi
að tæp 10% barna líði skort á Ís-
landi. En það virðist vera með fá-
tækt í íslensku samfélagi eins og
óhreinu börnin hennar Evu. Eng-
inn vill vita af fátæktinni þrátt fyr-
ir að 7 til 9% þjóðarinnar búi við
þetta böl og um 5.000 manns við
sára fátækt.
Fátæktarböl
Mikil hætta er á að fátækt gangi á
milli kynslóða og mörgum reyn-
ist erfitt að komast upp úr fátækt-
argildrunni, hafi þeir eitt sinn
lent í henni. Helstu áhættuhóp-
ar eru tekjulágt einhleypt fólk og
einstæðir foreldrar með börn og
aldraðir og öryrkjar. Fátækt fólk
er að finna í öllum aldurshóp-
um en staða á húsnæðismarkaði,
tekjur og heilsufar eru lykilþætt-
ir í því hvernig fólki gengur að
framfleyta sér.
Afleiðingar fátæktar eru marg-
víslegar en allar vondar og þung-
bærar þeim sem fyrir þeim verða.
Fátækt birtist meðal annars í því
að fólk getur ekki búið í mann-
sæmandi húsnæði og fátækt leið-
ir til þess að fólk hefur ekki efni
á hollu fæði eða ráð á tómstunda-
iðju. Þekkt er að efnaminna fólk
lætur hjá líða að sækja ýmsa heil-
brigðisþjónustu og það hefur ekki
efni á að taka sér frí með fjöl-
skyldu sinni. Ýmis efnisleg gæði
sem flestum þykja sjálfsögð standa
ekki fátæku fólki til boða eins og
bíll og ýmis algeng heimilistæki.
Óvænt útgjöld, svo sem vegna
veikinda eða atvinnumissis, setja
fjárhag fátækra yfirleitt úr skorð-
um og hæglega myndast vítahring-
ur skorts sem erfitt er að rjúfa því
ekkert má útaf bregða svo skuldir
safnist ekki upp.
Tregðulögmál kjara-
bótanna en
tækin eru til
Það hefur reynst þrautin þyngri
að ná fram kjarabótum fyrir þau
lægst launuðu. Gjarnan er litið
svo á að léleg kjör þeirra séu for-
senda fyrir efnahagslegum stöð-
ugleika og fátæktin þannig gerð
að þannig velferðargrunni alls
samfélagsins. Þetta viðhorf birt-
ist til dæmis skýrt í ábendingum
og aðvörunum Seðlabanka Ís-
lands um að krafa verkalýðssam-
taka um 300.000 króna lágmarks-
laun ógnaði stöðugleika í íslensku
hagkerfi. Þar er mönnum greini-
lega alveg ljóst hverjir eigi að bera
byrðarnar.
Við höfum framfærsluvið-
mið umboðsmanns skuldara og
neysluviðmið Velferðarráðuneyt-
isins sem gefa vísbendingar um
hvað kostar að framfleyta sér. Þær
upphæðir eru langt frá þeim raun-
veruleika sem fjöldi fólks býr við
í kjörum svo þar fer ekki saman
raunveruleg framfærsluþörf og
kjör fjölda fátæks fólks og barna.
En við höfum tækin til að afla
vitneskju um fátækt meðal lands-
manna og við höfum úrræðin til
að vinna bug á henni. Notum
þau.
Samábyrgð og jöfnuður eru
óvinir fátæktarinnar
Það getur enginn skorast und-
an ábyrgð þegar fátækt er ann-
ars vegar. Samfélag okkar er ríkt
og við búum vel að verðmætum
auðlindum. Það er nóg til skipt-
anna. Við hvorki eigum né þurf-
um að líða að fólk geti ekki lifað
hér mannsæmandi lífi sökum fá-
tæktar.
Við berum öll ábyrgð á því að
gera betur og koma í veg fyrir fá-
tækt í okkar ríka landi. Efnahagur
þjóðarbúsins hefur sjaldan verið
betri en misskiptingin hefur því
miður aukist samhliða ofurgróða
sumra þjóðfélagshópa.
Stjórnvöld, sveitarfélög, stétt-
arfélög, félagasamtök og hvert og
eitt okkar verða að beita tiltækum
úrræðum til að koma í veg fyr-
ir félagslegan ójöfnuð og fátækt.
Það er vissulega ekkert náttúru-
lögmál að einhver hluti þjóðar-
innar þurfi að búa við fátækt eða
örbirgð heldur er það samfélags-
mein sem unnt er að uppræta.
Við getum upprætt fátækt hér á
landi ef við svo kjósum. Við eig-
um til þau úrræði sem þörf er á og
þekkingin á því hvernig unnt er að
koma í veg fyrir fátækt liggur fyrir.
Fjármagnið er til. Er það kannski
svo að við höfum allt nema póli-
tískan vilja til að ganga rösklega
til verka gegn þeirri þjóðarskömm
sem fátækt er innan um ríkidæmi
okkar?
Það yrði þó okkur öllum til góða
að jöfnuður aukist og allt fólk geti
búið hér við sómasamleg kjör og
mannlega reisn.
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Höf. er alþingismaður VG í
Norðvesturkjördæmi.
Pennagrein
Fátækt – smánarblettur á ríkri þjóð!
Þórður
l
LITIR:
i i i
j i
l i ii i
l i
LITIR:
.
I .
I
.
I
.
I
.
I
.
I
LITIR: LITIR:
LITIR:LITIR:
ll i l
.
I
.
I
r i er
langbestur
LITIR:
r
.
I
ll r i
,
I
LITIR:
,
.
e
Gjafavöruhugmyndir
Skagabraut 6
Akranesi
www.smaprent.is
Sími: 6665-110