Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 40. tbl. 20. árg. 4. október 2017 - kr. 750 í lausasölu Loratadin LYFIS - fæst án lyfseðils Yfir ��� tilboð Allir viðskiptavinir Arion banka eru í Einkaklúbbnum Náðu í appið og nýttu þér tilboðin Til alþingismanna Tökum upp US Dollar Pétur Geirsson SK ES SU H O R N 2 01 7 Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi SK ES SU H O R N 2 01 7 14. október kl. 20:00 frumsýning uppselt 15. október kl. 16:00 20. október kl. 20:00 Fleiri dagsetningar má finna á landnam.is Miðapantanir: landnam@landnam.is sími 437-1600 Minnum á hádegishlaðborðið okkar alla daga vikunnar. Auður djúpúðga sagan öll á Sögulofti Landnámsseturs í flutningi Vilborgar Davíðsdóttur Hin formfagra brú yfir Hvítá við Ferjukot í Borgarfirði er 90 ára á þessu ári. Hún þótti á sínum tíma mikil samgöngubót á þjóðleiðinni milli landshluta. Gegndi stóru hlutverki í samgöngukerfinu einkum þar til Borgarfjarðarbrúin var opnuð í september fyrir 36 árum. Brúin er ein örfárra bogabrúa sem enn eru í notkun hér á landi og hefur verið prýðilega við haldið af Vegagerðinni. Meðfylgjandi mynd var tekin um liðna helgi. Þarna hefur Kristján Gauti Karlsson, blaðamaður á Skessuhorni, sest á undirstöðubogann og horfir niður strauminn á grænblátt vatn Hvítár. Ljósm. Hrefna Svanborgar Karlsdóttir. Líkt og undanfarin tíu ár tileink- ar Krabbameinsfélag Íslands októ- bermánuð baráttunni gegn krabba- meini hjá konum. Bleika slaufan er komin í sölu en söfnunarfé sem aflast mun að þessu sinni renna til Ráðgjafarþjónustu Krabbameins- félags Íslands með það að mark- miði að efla stuðning, fræðslu og ráðgjöf um allt land til einstaklinga sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þriðji hver einstaklingur greinist með krabba- mein einhvern tímann á lífsleiðinni og afar mikilvægt er að þeir og að- standendur þeirra geti gengið að áreiðanlegri ráðgjöf og stuðningi í veikindunum. Í tilefni þessa átaks er í Skessu- horni í dag rætt við eina af þeim hvunndagshetjum sem árlega heyja baráttuna við krabbamein. Anna Dröfn Sigurjónsdóttir er ein þeirra. Hún veikist fyrir tæplega tveimur árum og var heppin að því leyti að greinast tímanlega. Í viðtalinu lýs- ir þessi unga og atorkusama kona og móðir þriggja barna á opinská- an hátt því hvernig allt tekur dýfu eftir að greining krabbameins ligg- ur fyrir. Rætt er um sjúkdómssög- una, batann og ómetanlegt bakland fjölskyldu og vina. Meðal annars kemur fram hjá henni að hlutir sem áður höfðu þýðingu skipta engu máli í dag, en önnur gildi öðlist hins vegar nýja merkingu. Marg- ir sem gengið hafi í gegnum lífs- hættulega sjúkdóma upplifa svipað. Sjá bls. 16-18 Bleika slaufan komin í sölu Spá formanna, þjálfara og fyrir- liða fyrir Domino‘s deild karla og kvenna í körfuknattleik og 1. deild karla og kvenna var kynnt í gær á fundi í Laugardalshöllinni í Reykja- vík. Skallagrími er spáð 4. sæti Dom- ino‘s deildar kvenna en Snæfelli 5. sæti. Ríkjandi Íslands- og bikar- meisturum Keflavíkur er spáð efsta sætinu. KR-ingum er spáð efsta sætinu í Domino‘s deild karla, en þeir unnu einnig tvöfalt á síðasta ári. Í 1. deild karla er Skallagrími spáð toppsætinu og þar með beint upp í efstu deild á nýjan leik. Snæ- felli er spáð 6. sætinu en ÍA því 7.-8. ásamt Vestra, sem fékk jafn mörg stig í spánni. KR er síðan spáð efsta sætinu í 1. deild kvenna. Spána má sjá í heild sinni á heimasíðu Körfu- knattleikssambands Íslands, www. kki.is. Í Skessuhorni í dag er rætt við forsvarsmenn vestlensku liðanna um leiktíðina framundan. kgk Skallagrími og Snæfelli er spáð 4. og 5. sætið í Domino‘s deild kvenna. Ljósm. úr safni. Vesturlandsliðum spáð misjöfnu gengi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.