Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2017 13 Rau ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar Verð frá aðeins kr. 155.000 m.vsk Midea MOB12 Max 4,92 kW 2,19 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,44) f. íbúð ca 60m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Sunnudaginn 1. október voru 25 ár liðin frá því að Félag eldri borg- ara í Grundarfirði var stofnað. Var þessara tímamóta minnst á aðal- fundi félagsins sem haldinn var á afmælisdaginn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Aðalhvatamaður- inn og fyrsti formaður félagsins var Guðmundur Runólfsson og með honum í stjórn voru Ólafur Gísla- son gjaldkeri og Vigdís Gunnars- dóttir ritari. Meðstjórnendur voru Páll Torfason og Kristín Friðfinns- dóttir og endurskoðandi Elís Guð- jónsson. Frá stofnun hefur félagið látið muna um sig í félagsstarfi eldri borgara í Grundarfirði sem og látið sig varða hagsmuni þeirra. Ýmsar skemmtanir og uppákomur hafa verið fastir liðir í starfi félagsins þessi 25 ár. Má þar nefna þorrablót, spilakvöld og ýmis ferðalög lengri og skemmri. Þá hefur verið starfandi kór eldri borgara svo eitthvað sé nefnt. Allir þeir sem orðnir eru 60 ára geta gerst félagar og var lögð áhersla á það á aðalfundinum að hvetja þyrfti til aukinnar þátttöku þeirra sem orðnir eru gjaldgengir í félagið til þess að styrkja starfið. Meðal verkefna félagsins er að annast um svokallað Nesball á þriggja ára fresti en það er sameiginlegur fagnaður félaga eldri borgara á Snæfellsnesi en Nesballið verður einmitt haldið í Samkomuhúsinu Grundarfirði laugardaginn 7. október nk. Á Nesballi er boðið upp á glæsilegan kvöldverð og síðan endað á dansleik. Á aðalfundinum félagsins urðu nokkrar breytingar á stjórn og varastjórn og er ný stjórn þannig skipuð. Formaður er Gunnar Kristjánsson, ritari Steinunn Hansdóttir og gjaldkeri Kristján Guðmundsson. Meðstjórnendur eru Ragnheiður Sigurðardóttir, Sverrir Karlsson og Fríða Tómasdóttir. gk Út er komin áfangaskýrsla um heilsueflingu í Borgarbyggð en gengið var frá samningi við emb- ætti landlæknis síðastliðið vor um þátttöku Borgarbyggðar í verk- efninu Heilsueflandi samfélag. Verkefninu er skipt upp í fjóra áhersluþætti, þ.e. næringu og mat- aræði, hreyfingu og útivist, líðan og geðrækt og lífsgæði. Að mati þátt- takenda á íbúaþinginu í vor liggja tækifærin og lausnirnar í sveitarfé- laginu í að efla heilsu íbúa með því að leggja göngu- og hjólastíga víða í sveitarfélaginu, að setja niður úti- hreystibrautir, bjóða hollari nær- ingu sem víðast og að eiga jákvæðar fyrirmyndir sem hvetja íbúa áfram. „Íbúar gætu sett sér hreyfingaráætl- un, nýta morgunleikfimi og snyrta til í kringum sig. Einnig geta þeir breytt viðhorfi með jákvæðu tali og verið hvetjandi. Þeir geta geng- ið í vinnuna og sópað í kringum heimilin sín,“ segir meðal annars í áfangaskýrslu starfshóps sem skip- aður var í vor til að vinna að fram- gangi verkefnisins. Heilsueflandi samfélag setur heilsu og heilsueflingu í forgrunn í allri stefnumótun og þjónustu og býr þar með til aðgengi og umgjörð sem gerir öllum íbúum kleift að taka heilsusamlegar ákvarðanir. Horft er til allra þátta heilsu, þ.e. líkam- legrar, andlegrar og félagslegrar heilsu og vellíðunar. Unnið verður að þeim þáttum sem fram komu á þinginu í vor á næstu þremur árum og tillit tekið til þeirra við gerð fjár- hagsáætlunar Borgarbyggðar. mm Næstu skref til heilsu- eflingar í Borgarbyggð Félag eldri borgara í Grundarfirði er 25 ára Ný stjórn í Félagi eldri borgara í Grundarfirði. Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is SK ES SU H O R N 2 01 7 1261. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 10. október kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfstæðisflokkurinn í Stúkuhúsinu, laugardaginn • 7. október kl. 10.30. Björt framtíð að Smáraflöt 1, sunnudaginn 8. október • kl. 20.00. Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, • laugardaginn 7. október kl. 11.00. Frjálsir með Framsókn í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut, • mánudaginn 9. október kl. 20.00. Bæjarstjórnarfundur Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.