Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201724
Gamalt smíðaverkstæði í hjarta
Ólafsvíkur gengur í gegnum end-
urnýjun lífdaga um þessar mundir.
Húsið, sem stendur við Ennisbraut
1, hefur í gegnum tíðina gegnt
ólíku hlutverki. Þar hefur meðal
annars verið símstöð, félagsmið-
stöð, kosningaskrifstofa Sjálfstæð-
isflokksins og Sparisjóður, en nú
á að breyta því í íbúðahús. Jóhann
Már Þórisson og Þórir Jónsson fað-
ir hans, sem reka Sheepa ehf smíða-
fyrirtæki, eiga húsið ásamt Ásgeiri
Björnssyni, fyrrum grásleppukarli,
og vinna sjálfir að framkvæmdun-
um. „Húsið var bara ein hæð en við
erum búnir að byggja ofan á það. Á
neðri hæð verða tvær tveggja her-
bergja íbúðir og á efri hæð verð-
ur ein þriggja herberga íbúð með
stórum svölum,“ segir Ásgeir þegar
blaðamaður tók þá félaga tali í lið-
inni viku. „Við byrjuðum á verkinu
í mars á þessu ári og stefnum við á
að klára um næstu páska. Þetta er
nú algjör aukavinna hjá okkur svo
við verðum bara að sjá hvort það
gangi eftir,“ bætir Jóhann við.
Aðspurðir hvað þeir hafi í huga að
gera við íbúðirnar þegar verkinu er
lokið segja þeir það alveg óákveðið.
„Okkur langaði bara að gera þetta
fína hús upp og ég vissi að upphafle-
ga var það teiknað á tveimur hæðum
og að það væri því auðvelt að fá að
byggja ofan á það. Mig hefur líka
alltaf langað til að gera svona þak
og þetta var tilvalið hús í það, svo
ég stóðst bara ekki mátið að kaupa
þetta hús,“ segir Jóhann og hlær.
„Ætli við leigjum þetta ekki út eða
seljum. Það er alveg óákveðið. En
íbúðirnar eru teiknaðar með það
í huga að þar geti fólk hugsað sér
að búa í lengri tíma en það er samt
ekkert útilokað að þær verði líka
leigðar út í styttri tíma. Fyrst ætlum
við að ljúka verkinu og sjá hver eft-
irspurnin verður og svo tökum við
ákvörðun,“ segir Jóhann að lokum.
arg
Breyta gömlu smíða-
verkstæði í íbúðahús
Jóhann Már Þórisson og Ásgeir
Björnsson vinna að endurbótum
að húsi við Ennisbraut 1 í Ólafsvík.
Á myndina vantar Þóri Jónsson
húsasmíðameistara.
Húsið var áður á einni hæð en nú hefur verið byggt ofan á það. Ljósm. af.
„Mig hafði dreymt um þetta lengi,“
segir Justyna Ondycz um veitinga-
staðinn Matarlist sem hún opn-
aði ásamt Mikolaj Ondycz, eigin-
manni sínum, í Ólafsvík í vor. Þau
hjónin fluttu með börnin sín til Ís-
lands fyrir áratug og segja land-
ið hafa heillað þau til sín. „Ég var
búinn að fara víða um heiminn að
vinna sem kokkur, á meðan Justyna
var heima í Póllandi með börnin
okkar, en í Póllandi er ekki auð-
velt fyrir báða foreldra að vinna úti
því maður getur ekki skilið börn-
in mikið eftir ein,“ segir Mikolaj.
„Ég gerði ekki endilega ráð fyrir
að stoppa lengi á Íslandi en þegar
ég var kominn hingað og kynntist
landinu og fólkinu þá var ég heill-
aður. Ég hafði samband við Justyna
og sagði henni að pakka niður og
koma með börnin,“ segir Mikoa-
laj.
Upplifa öryggi og frelsi
„Okkur þykir mjög gott að vera á
Íslandi og aðstæðurnar til að ala
upp börn svo mikið betri en í Pól-
landi. Hér getum við bæði verið
í vinnu og það er ekkert mál þótt
börnin þurfi kannski stundum að
vera ein heima í smá stund, t.d. eft-
ir skóla. Hér finnum við mikið ör-
yggi og frelsi,“ segir Mikolaj. Að-
spurð hvað þeim þykir um veður-
farið og kuldann á Íslandi segja þau
að þeim þyki það ekki slæmt. „Ís-
land er bara svo frábært land og hér
er svo gott að vera. Veðrið trufl-
ar okkur ekkert, okkur finnst það
bara skemmtilegt,“ segir Justyna.
„Áður en við komum til Íslands
vann ég í Kýpur í nokkurn tíma, en
þangað kom Justyna með mér og
börnin voru hjá ömmu sinni í Pól-
landi. Þar var heitt, hvítar strend-
ur og pálmatré um allt og það var
frábært, í svona tvær vikur,“ segir
Mikolaj og hlær. „Ég fékk fljótt leið
á því veðurfari og umhverfi. Hér fæ
ég aldrei leið. Ísland er þannig land
að veðrið breytist mjög ört og þú
getur farið nánast hvert sem er og
smellt af mynd sem gæti þess vegna
verið póstkort, svo fallegt er land-
ið. Við sjáum ekki fyrir okkur að
geta fengið leið á Íslandi,“ bætir
Mikolaj við.
Unnið víða á
Snæfellsnesi
Mikolaj og Justyna hafa mikið unn-
ið saman en hann er kokkur og hún
er þjónn. Upphaflega þegar þau
komu til Íslands var það til að vinna
á Arnastapa en síðan þá hafa þau
unnið víða á Snæfellsnesinu. „Við
erum búin að vinna á Hótel Stykk-
ishólmi, Hótel Ólafsvík, Hellnum
og svo núna Hótel Búðum, þar sem
við höfum verið lengst. Við unnum
bæði á Hótel Búðum þar til núna
nýlega þegar ég hætti þar sem yfir-
þjónn til að sinna Matarlist betur,“
segir Justyna. Mikolaj vinnur enn
á Hótel Búðum, þar sem hann er
yfirkokkur. „Eins og ég hef sagt er
Matarlist minn draumur svo ég hef
að mestu séð um þennan stað en
Mikolaj gerir allan matseðilinn og
kennir svo kokkunum okkar hvern-
ig á að matreiða það sem við bjóð-
um uppá,“ bætir Justyna við.
Áhersla á ferska
matvöru úr héraði
Á Matarlist er lögð mikil áhersla á
íslenskan og ferskan mat úr héraði.
„Við reynum eins og við getum að
vera með mat úr héraði en það er
samt eitthvað smá sem við þurfum
að sækja lengra,“ segir Justyna. „Á
matseðli erum við með eitthvað
fyrir alla og leggjum mikla áherslu
á ferskan íslenskan mat. Við ger-
um allt sem við getum frá grunni
hér á staðnum og erum með frosna
matvöru í algjöru lágmarki. Það er
bara ef varan fæst ekki fersk sem
við kaupum hana frosna,“ bæt-
ir Mikolaj við. Veitingastaðurinn
hefur fengið mjög góðar móttökur
bæði hjá ferðamönnum og heima-
mönnum. „Við erum mjög þakk-
lát fyrir hversu vel fólk hefur tek-
ið á móti okkur og verið duglegt
að koma. Í sumar var alltaf alveg
nóg að gera og bæði heimamenn
og ferðamenn sem komu við, þó
skiljanlega var meira um ferða-
menn. Við erum líka mjög stolt
af því að á vefsíðunni Tripadvisor
erum við í fyrsta sæti yfir veitinga-
staði á þessu svæði,“ segir Justyna
og brosir.
Næstu skref ekki
ákveðin
Aðspurð um hvernig staðurinn
Matarlist verði í vetur segja þau
það ekki alveg ákveðið. „Núna
þegar tímabil ferðamanna er
að líða undir lok er erfitt að sjá
hversu vel reksturinn getur geng-
ið utan ferðamannatímans í svona
litlu bæjarfélagi. Við erum opin
fyrir flestu og erum bara að skoða
hver er besti kosturinn fyrir okkur
og veitingastaðinn,“ segir Mikolaj.
„Stærsti hluti okkar viðskiptavina
í sumar voru ferðamenn því skilj-
anlega fara heimamenn ekki jafn
mikið út að borða. En við gerðum
alveg ráð fyrir þessu í upphafi, að
kannski væri ekki gerlegt að halda
svona stað opnum yfir veturinn á
svona fámennum stað. Núna er
bara framundan að skoða stöðuna
og meta hana og það getur vel far-
ið svo að þetta gangi allt upp en
svo gæti vel verið að við tökum
bara allt aðra stefnu,“ segir Justyna
að endingu um leið og hún býður
blaðmanni upp á bragðgott salat
og nýbakað brauð með smjöri sem
bakað var á staðnum.
arg
Opnuðu Matarlist í Ólafsvík í vor
Veitingastaðurinn Matarlist í Ólafsvík leggur mikið upp úr því að bjóða upp á mat
úr héraði.
Hjónin Justyna Ondycz og Mikolaj Ondycz opnuðu í vor veitingastaðinn Matarlist í Ólafsvík. Á milli þeirra á myndinni er
Weronika Ondycz, dóttir þeirra.