Skessuhorn


Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 20172 Haustið er gengið í garð með sína fögru liti og fallega blæ. Vert er að staldra við eitt augnablik í amstri dagsins og njóta töfranna, þó ekki væri nema bara stund- arkorn. Vestlæg átt, 3-8 m/s á morgun og léttskýj- að að mestu um landið austanvert, annars skýjað en þurrt. Hiti 5 til 12 stig að degin- um, hlýjast suðaustanlands. Suðaustlæg átt með hlýnandi veðri á föstudag. Fer að rigna á suðvesturhorni landsins um kvöld- ið, annars víða bjartviðri. Suðaustlæg átt á laugardag og sunnudag með rigningu eða skúrum, en bjarviðri að mestu norð- an heiða. Hiti 6 til 11 stig. Útlit fyrir suð- austanátt með talsverðri vætu sunnantil á landinu á mánudag, en þurrt að mestu fyrir norðan og fremur milt í veðri. „Hvað áttu mörg pör af vettlingum,“ var spurningin sem lesendum gafst kostur á að svara á vef Skessuhorns í liðinni viku. „3-5“ sögðu flestir, eða 39%. Næstflest- ir, 35%, sögðu „1-2“ og 14% sögðu „5-10“. „Fleiri en 10 pör“ sögðu 7% og 5% kváð- ust ekki eiga vettlinga. Könnunin náði ekki til þeirra sem eiga einn stakan vettling. Í næstu viku er spurt: Ætlar þú að fylgj- ast með körfuboltanum í vetur? Anna Dröfn Sigurjónsdóttir segir í Skessu- horni í dag frá erfiðri hálfs annars árs krabbameinsmeðferð sem hún hef- ur nýlega lokið. Hún er hvunndagshetja Krabbameinsfélags Borgarfjarðar og var í þeim hópi sem fékk fyrstu bleiku slauf- urnar nældar í boðunginn síðastliðinn föstudag. Anna Dröfn er Vestlendingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Haustþing SSV næsta miðvikudag AKRANES: Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verður hald- ið miðvikudaginn 11. októ- ber næstkomandi. Fer það fram á Gamla Kaupfélag- inu á Akranesi og húsnæð- ismál verða þema þingsins. Dagskrá þess er með hefð- bundnu sniði. Lagðar verða fram tillögur að fjárhags- og starfsáætlunum, auk þess sem ályktað verður um hin ýmsu hagsmunamál lands- hlutans. Fyrir hádegishlé flytur Vífill Karlsson, hag- fræðingur SSV, erindi um fasteignamarkaðinn á lands- byggðinni. Gestir þingsins verða Jón Gunnarsson, sam- göngu- og sveitarstjórnar- ráðherra, Haraldur Bene- diktsson, fyrsti þingmaður NV-kjördæmis og Halldór Halldórsson, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfé- laga. Munu þeir flytja ávörp á þinginu. Að þeim loknum verða pallborðsumræður um húsnæðismál. Þátttakendur í pallborði eru Sigrún Ásta Magnúsdóttir, ráðgjafi Íbú- ðalánasjóðs, Vífill Karlsson, Óli Jón Gunnarsson fram- kvæmdastjóri og Rakel Ósk- arsdóttir, formaður SSV. -kgk Kolefnisspor okkar stórt LANDIÐ: Neysludrifið kolefnisspor íslenskra heim- ila er áþekkt því sem ger- ist meðal þjóða Evrópu- sambandsins þrátt fyrir sér- stöðu Íslands í orkumálum. „Um 71% útblásturs heim- ila kemur til vegna innfluttra vara og er útblástursbyrð- in að mestu í þróunarríkj- um. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar sem Jukka Heinonen, prófessor við um- hverfis- og byggingarverk- fræðideild Háskóla Íslands og samstarfsfólk hafa unnið en þetta er í fyrsta sinn sem neysludrifið kolefnisspor Ís- lands er kannað. -mm Um þessar mundir er unnið að því að útbúa aðstöðu til matvælaframleiðslu í eldhúsi í Tjarnarlundi í Saurbæ í Dölum. Þar verður vottað eldhús sem smáframleiðendur geta nýtt sér. Er það sveitarfélagið Dalabyggð sem stendur að baki verkefninu. „Dalirnir eru þekktir sem matvælaframleiðslu- hérað. Við eigum rosalega flotta frum- kvöðla í matarhandverki og smáfram- leiðslu á svæðinu. Þá er ótalin sér- ostagerð Mjólkursamsölunnar í Búð- ardal, sem er líka hluti af okkar mat- arbúri, þó sú framleiðsla snerti þetta verkefni kannski ekki með beinum hætti,“ segir Bjarnheiður Jóhanns- dóttir, ferðamálafulltrúi Dalabyggð- ar, í samtali við Skessuhorn. Því má við það bæta að mikið frumkvöðla- starf í matvælavinnslu hefur einnig verið unnið að Erpsstöðum í Dölum á liðnum áratug. Bjarnheiður er ein þeirra sem koma að verkefninu. Verk- efnið hefur verið auglýst sem Matar- búrið Dalabyggð og stærsti þáttur þess er að koma á fót matarsmiðju í Tjarnarlundi. „Verkefnið snýst fyrst og fremst um að skapa vettvang fyrir fólk til að útbúa matvæli í vottaðri að- stöðu,“ segir hún. Gluggi inn í verslanir Að útbúa vottaða aðstöðu til matvæla- framleiðslu segir Bjarnheiður vera al- gjört lykilatriði. „Hingað til hafa bændur og aðrir heimaframleiðend- ur nær eingöngu getað selt vörur sín- ar á bænda- og sveitamörkuðum. Um leið og hægt er að framleiða í vottaðri aðstöðu geta framleiðendur farið að selja afurðirnar í sælkeraverslanir og veitingahús. Þá opnast allt annar og stærri markaður, gluggi inn í verslan- ir og veitingahús með auknum tæki- færum fyrir framleiðendurna,“ segir Bjarnheiður. Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á aðstöðuna. „Það þurfti sáralítið að breyta húsnæðinu til að það gangi sem vottað eldhús. Vonandi verður þetta tilbúið innan tíðar fyrir Dalamenn að gera tilraun- ir og skapa spennandi afurðir,“ seg- ir hún og bætir því við að henni þyki ánægjulegt að Tjarnarlundur hafi fengið nýtt hlutverk. „Það er gott fyrir sveitarfélagið að geta nýtt hús- næði sem það á fyrir til svona verk- efnis. Tjarnarlundur er eitt af fjórum félagsheimilum í Dalabyggð. Þau eru ekki í mikilli notkun og gaman að geta fundið allavega einu þeirra meiri tilgang,“ segir hún. Vill sjá vörur komast á markað Aðspurð segir hún ekkert hafa ver- ið ákveðið varðandi verkefnið þegar fram í sækir. „Það hefur ekkert ver- ið ákveðið um framhaldið í sjálfu sér, nema að við munum reyna að stofna til fræðslu um matvælaframleiðslu fyrir áhugasama. Fyrst og fremst snýst verkefnið um að útbúa aðstöð- una, síðan er það undir Dalamönnum komið að nýta sér hana til að útbúa vörur og framleiða mat,“ segir Bjarn- heiður. Hún vonast til að svo verði og nýjar vörutegundir muni líta dags- ins ljós í Tjarnarlundi á næstu miss- erum. „Það væri ofboðslega gaman ef til yrðu tvær til þrjár flottar vörur sem komast á markað, það væri frá- bært. Ég hef séð mjög áhugavert matarhandverk hér í Dölum, sem verið er að útbúa í heimahúsum og hefur verið selt beint til neytenda. Mér þætti gaman að sjá einhverjar af þeim vörum verða lyft á hærri stall og gerðar að vöru sem er gjaldgengar eru á alla markaði,“ segir Bjarnheiður að endingu. kgk Dalamenn útbúa matarsmiðju í Tjarnarlundi Fólk geti útbúið matvæli í vottaðri aðstöðu Tjarnarlundur í Saurbæ í Dölum. Ljósm. sm. BÚIÐ AÐ REDDA MATNU M FYRIR NÆSTU VIKU 1 2 3 GSM: 865-2580 SMIÐJUVÖLLUM 17 300 AKRANES SÍMI: 431-2580 Matarskammtar allt frá einum til sex einstaklinga. Hvernig sem matarlistinn eða matarlystin er, Sansa reddar hvoru tveggja, og meira til. - Þú veist, við sönsum og þú eldar. Akranes, Borgarnes og nærsveitungar. Kíktu inná SANSA.IS Hágæða hráefni úr vottuðu eldhúsi. Félagar í björgunarsveitinni Lífs- björgu í Snæfellsbæ notuðu veður- blíðuna um helgina til að halda æf- ingu með fluglínu. Var til þess not- Fluglínuæfing Lífsbjargar í Snæfellsbæ Björgunarsveitarmaður kemur um borð í bátinn til þess að aðstoða skipverja. Landmenn gera sig klára. Skipsverji hífður í land. aður báturinn Sæljós sem dreginn var fyrr á þessu ári upp í fjöruborðið skammt frá Rifshöfn. Hafþór Svansson starfandi for- maður Lífsbjargar sagði í samtali við Skessuhorn að það hefði verið kom- inn tími á að æfa björgun með flug- línu og rifja upp hvernig staðið væri að slíkri æfingu. Aldrei sé hægt að vita fyrirfram hvenær fluglínu þurfi næst að nota við björgun. Sagði Haf- þór að margt mætti læra af æfingu sem þessari. „En þetta gekk eins og í sögu,“ sagði hann. af

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.