Skessuhorn - 04.10.2017, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2017 9
væri gagnlegt að halda íbúafund þar
sem fólk gæti komið með fyrirspurnir
og komið sínum áherslum á framfæri
varðandi framtíðarsýn í sorpmálum,“
bætir hún við.
arg
Samferða Góðgerðarsamtök voru
stofnuð á síðasta ári. Markmið
þeirra er að aðstoða fólk fjárhags-
lega sem orðið hefur fyrir áföllum
í lífinu hvort sem þau eru tengd
veikindum hjá foreldrum eða börn-
um. Verndari samtakanna er séra
Vigfús Bjarni Albertsson. „Ef þú
veist um einhvern sem þú telur að
þurfi aðstoð máttu endilega segja
okkur frá viðkomandi með því að
senda okkur póst. Stjórnin kemur
saman einu sinni í mánuði og vel-
ur þá einstaklinga sem hún telur
að þurfi á aðstoð að halda og setur
sig í samband við þá aðila er málið
snertir. Ef þú vilt styrkja okkur þá
getur þú t.d. haft samband við þinn
banka og fengið hann til að skuld-
færa af þínum reikningi einu sinni
í mánuði nú eða millifært beint
inná okkur sjálfur. Skilaboð okkar
til samfélagsins eru skýr: Hver ein-
asta króna sem safnast, fer inná við-
komandi einstakling eða fjölskyldu.
Allt er unnið í 100% sjálfboðavinnu
og á hugsun einni. Enginn tilkostn-
aður né heldur yfirbygging. Ef ein-
hverjar spurningar kunna að vakna,
ekki hika við að senda okkur póst,“
segir í tilkynningu. Samtökin má
finna á Facebook síðunni Samferða
Góðgerðarsamtök.
-fréttatilkynning
Samferða - Góð-
gerðarsamtök
Gámaþjónusta Vesturlands ehf. tók
við sorphirðu á Akranesi og sorp-
móttökustöð Gámu á Höfðaseli fyr-
ir um mánuði síðan. Að sögn Lilju
Þorsteinsdóttur rekstrarstjóra Gáma-
þjónustu Vesturlands ehf. hefur
gengið mjög vel að sinna þjónust-
unni. „Við erum svo heppin að hafa á
að skipa frábæran hópi starfsfólks og
okkur hefur verið tekið mjög vel af
íbúum Akraness. Fólk er ánægt með
bætta þjónustu en við hirðum endur-
vinnanlegt efni á tveggja vikna fresti
í stað mánaðarlega eins og áður var.
Við höfum fengið nokkrar fyrirspurn-
ir um hvort verið sé að blanda endur-
vinnslu og almennum úrgangi saman
í bílinn hjá okkur en það er misskiln-
ingur sem okkur er mikið í mun að
leiðrétta. Þjónustunni er sinnt á tví-
skiptum bíl sem þýðir að viðkom-
um á hvern stað fækkar þar sem báð-
ar tunnurnar eru teknar í einu, í sitt-
hvort hólfið í bílnum. Þetta þýðir að
sjálfsögðu umhverfisvænan ávinn-
ing með minnkun á útblæstri og hag-
kvæmni í sorphirðu,“ segir Lilja.
Allt endurvinnsluefni er sent suður
í móttökustöð Gámaþjónustunnar hf.
í Berghellu þar sem það er flokkað í
sundur eftir tegundum og flutt áfram
til endurvinnslu erlendis. „Við hvetj-
um fólk eindregið til að halda áfram
að vera duglegt að flokka og munum
við birta magntölur á vef Akranes-
kaupstaðar svo fólk geti fylgst með
þróuninni, bæði hvað varðar sorp-
magn í Gámu og eins sorphirðu frá
íbúum. Það virðist töluverð aukning
vera á sorpmagni en það hefur verið
í nógu að snúast í Gámu undanfarnar
vikur. Ég vil nota tækifærið og minna
fólk á klippikortið þegar það kemur
til okkar og eins á breyttan opnunar-
tíma en nú er opið frá kl. 10:00-18:00
alla virka daga og frá kl. 10:00-14:00
á laugardögum,“ segir Lilja.
„Við stefnum á að að gefa út kynn-
ingarbækling um áramót og jafnvel
Tvískiptur sorphirðubíll er
umhverfisvænni leið við sorphirðu
Gámaþjónusta Vesturlands notar tvískiptan bíl í þjónustu sinni. Með honum er hægt að taka bæði endurvinnanlegt efni og
almennt sorp í sömu ferðinni án þess að blanda því saman í bílnum..