Skessuhorn - 04.10.2017, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201710
regluþjónn, Sauðárkróki, í 3. sæti,
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir,
háskólanemi, Bakkakoti, í 3.-4. sæti
og Guðveig Anna Eyglóardóttir,
hótelstjóri, Borgarnesi, í 3.-5. sæti.
Eva Pandóra leiðir
hjá Pírötum
Píratar kynntu um liðna helgi
niðurstöðu prófkjörs um skipan
efstu sæta á framboðslistum sín-
um. Flokkurinn á einn þingmann
í Norðvesturkjördæmi, Evu Pan-
dóru Baldursdóttur. Hún bar sigur
úr býtum í prófkjöri meðal flokks-
manna á landinu og skipar því
áfram efsta sæti listans í Norðvest-
urkjördæmi. Í öðru sæti er Gunnar
Ingiberg Guðmundsson, Rannveig
Ernudóttir er í þriðja sæti, Ragn-
heiður Steina Ólafsdóttir í fjórða
og Sunna Einarsdóttir í fimmta
sæti.
Guðjón leiðir áfram
lista Samfylkingarinnar
Framboðslisti Samfylkingarinn-
ar í Norðvesturkjördæmi var sam-
þykktur á kjördæmisþingi flokksins
sem fram fór á Hótel Bjarkalundi
á sunnudaginn. Kosið var í fjög-
ur efstu sætin en raðað upp í önn-
ur. Guðjón Brjánsson sem skipaði
efsta sæti listans í síðustu kosning-
um mun leiða hann áfram en breyt-
ing verður á næstu sætum þar á eft-
ir. Í öðru sæti verður Arna Lára
Jónsdóttir, verkefnastjóri Nýsköp-
unarmiðstöðvar, Ísafjarðarbæ, í
þriðja sæti Jónína Björg Magnús-
dóttir, fiskverkakona á Akranesi, í
fjórða sæti Sigurður Orri Kristjáns-
son, leiðsögumaður, Reykjavík og í
fimmta sæti Gunnar Rúnar Krist-
jánsson, bóndi, Blönduósbæ.
Sjálfstæðismenn sam-
þykktu óbreyttan lista
Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvest-
urkjördæmi á nú þrjá þingmenn,
þau Harald Benediktsson formann
fjárlaganefndar, Þórdísi Kolbrúnu
Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra
og Teit Björn Einarsson. Að til-
lögu kjördæmisráðs var samþykkt
á fundi í Borgarnesi síðastliðinn
sunnudag að sami listi verði boð-
inn fram og fyrir réttu ári. Fjórða
sæti listans skipar Hafdís Gunn-
arsdóttir á Ísafirði og fimmta sæt-
ið Jónína Erna Arnardóttir í Borg-
arnesi.
Gunnar Bragi Sveinsson alþing-
ismaður og fráfarandi oddviti
Framsóknarflokksins tilkynnti
með færslu á Facebook síðastlið-
inn föstudag að hann dragi fram-
boð sitt til oddvitasætis fyrir flokk-
inn í Norðvesturkjördæmi til baka
og boðaði um leið úrsögn sína úr
Framsóknarflokknum. „Eftir að
hafa ráðfært mig við fjölskyldu og
vini hef ég ákveðið að draga fram-
boð mitt til baka. Ég hef jafnframt
ákveðið að segja mig úr Framsókn-
arflokknum,“ skrifaði þingmaður-
inn.
mm
Gunnar Bragi genginn úr
Framsóknarflokknum
Gunnar Bragi Sveinsson. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
Eftir rúmar fjórar vikur verður kos-
ið til Alþingis Íslendinga. Stjórn-
málaflokkarnir eru nú margir
komnir vel á veg við að setja sam-
an lista og nokkrir búnir. Nokkuð
misjafnt er hvaða aðferðafræði er
beitt við það, svo sem forval, upp-
stillingarnefnd, rafrænt prófkjör,
tvöföld kjördæmisþing eða jafnvel
að listar frá kosningunum 2016 séu
endurnýttir að mestu eða öllu leyti.
Frestur til að skila inn framboðum
rennur út 13. október. Miðað við
þær upplýsingar sem nú liggja fyr-
ir er líklegt að átta framboð verði
í Norðvesturkjördæmi. Auk gömlu
flokkanna fjögurra; Framsóknar-
flokks, Sjálfstæðisflokks, Samfylk-
ingar og Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs, mun Viðreisn og
Björt framtíð bjóða fram lista. Þá er
stefnt að framboði Flokks fólksins
og nýs Miðflokks Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar í öllum kjör-
dæmum. Dögun mun ekki bjóða
fram að þessu sinni og Alþýðufylk-
ingin í fjórum kjördæmum af sex,
ekki í Norðvesturkjördæmi.
Ásmundur Einar
sækist einn eftir
oddvitasæti í Framsókn
Ljóst er að mikil endurnýjun verð-
ur á framboðslista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi
fyrir næstu kosningar. Flokkur-
inn átti tvo þingmenn á nýliðnu
kjörtímabili og hafa þeir báðir til-
kynnt að þeir gefi ekki kost á sér.
Elsa Lára Arnardóttir tilkynnti það
23. september á kjördæmisþingi en
Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti
flokksins í kjördæminu til átta ára,
tilkynnti úrsögn sína úr flokknum
síðastliðinn föstudag. Kjörnefnd
auglýsti í síðustu viku eftir áhuga-
sömum frambjóðendum með frest
til þátttöku til 1. október. Mun það
ráðast á tvöföldu kjördæmaþingi
sem haldið verður næstkomandi
sunnudag á Bifröst hvernig listinn
verður mannaður. Þar verður kosið
í fimm efstu sætin og raðað í önn-
ur. Sjö bjóða sig fram og eru: Ás-
mundur Einar Daðason, fyrrv. al-
þingism. Borgarnesi, í 1. sæti, Halla
Signý Kristjánsdóttir, fjármála-
stjóri, Bolungarvík, í 2. sæti, Björn
Ingi Ólafsson, starfsm. Mjólkur-
samlags KS, Skagafirði, í 2.-3. sæti,
Lilja Sigurðardóttir, sjávarútvegs-
fræðingur, Patreksfirði, í 2.-3. sæti,
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög-
Stjórnmálaflokkar undirbúa kosningabaráttuna
Í síðustu viku lögðu formaður og framkvæmdastjóri Viðreisnar land undir fót og heimóttu Snæfellsnes. Hófu þar með undirbúning fyrir kosningaslaginn sem fram-
undan er. Benedikt Jóhannesson og Gylfi Ólafsson aðstoðarmaður hans voru á ferðinni og kíktu meðal annars í heimsókn í fiskvinnslu G.Run hf í Grundarfirði. Þar tók
Guðmundur Smári Guðmundsson framkvæmdastjóri á móti þeim og kynnti fyrir gestunum tilvonandi stórframkvæmdir við byggingu nýs fiskvinnsluhúss. Í leiðinni lét
framkvæmdastjórinn nokkur orð falla um skattlagningu sjávarútvegsins, á tandurhreinni íslensku að sjálfsögðu. Ljósm. tfk.
Fimm efstu á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi eftir að niðurstaða
kjördæmisþings á sunnudaginn lá fyrir. F.v. Jónína Erna Arnardóttir, Haraldur
Benediktsson, Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, Teitur Björn Einarsson og Hafdís
Gunnarsdóttir. Ljósm. áas.
Fjögur efstu á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi kosningar. F.v. Guðjón S
Brjánsson, Arna Lára Jónsdóttir, Jónína Björg Magnúsdóttir og Sigurður Orri
Kristjánsson.
Ásmundur Einar Daðason sækist einn
eftir oddvitasæti á lista Framsóknar-
flokks, en kosið verður um efstu sæti
listans á tvöföldu kjördæmisþingi
næstkomandi sunnudag.