Skessuhorn - 04.10.2017, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201712
Sumarið í sumar mun seint verða
kallað metsumar í laxveiðinni. En
víðast fengu menn í soðið og það er
fyrir mestu. Smálaxinn hefði mátt
láta sjá sig meira en raun bar vitni.
Í tilefni þess að veiðum er nú lokið
tökum við hér saman lokatölur úr
veiðiánum á Vesturlandi eftir sum-
arið.
„Við erum hress hérna með veiði
í Hvolsá og Staðarhólsá í sumar, en
árnar gáfu 245 laxa og mikið af sil-
ungi. Stærsti laxinn veiddist undir
lokin; 16 punda fiskur,“ sagði Þór-
arinn Birgir Þórarinsson formað-
ur veiðifélagsins á Hvítadal þegar
við spurðum um lokatölur af svæð-
inu. „Það voru bændadagar núna
síðustu dagana og veiðin gekk vel,
margir fengu vel í soðið,“ sagði
Þórarinn Birgir ennfremur.
„Við fengum fína veiði í Búðar-
dalsá fyrr í sumar og sáum þónokk-
uð af fiski,“ sagði Karl Óskarsson
um Búðardalsá, en hún endaði í
255 löxum þetta sumarið.
„Hollið endaði í tíu löxum, við
vorum við veiðar nú í september,“
sagði Sæmundur Kristjánsson sem
renndi fyrir fisk í Krossá, en loka-
tölur í henni voru 116 laxar.
„Laxá í Dölum endaði í 861 laxi
og það er fiskur víða í henni,“ sagði
Júlíus Jónsson og bætti við: „Það er
gaman að enda sumarið eins og Íris
Kristinsdóttir gerði í Kristnapolli.
En þar veiddi hún fyrsta flugulax-
inn sinn og hann var 21 pund.“
Haukadalsá endaði í kringum 500
laxa sem er minni veiði en í fyrra,
líkt og Laxá í Dölum með tölur.
Margir fengu samt flotta veiði í
báðum ánum og væna fiska.
„Það er kringum 210 laxar og
eitthvað af bleikju,“ sagði Finn-
bogi Harðasson á Sauðafelli, þegar
við spurðum um lokatölur í Miðá í
Dölum.
Lokatölur í Hörðudalsá í Döl-
um eru 44 laxar og eitthvað af sil-
ungi, en silungnum er greinilega að
fækka víða á svæðinu.
Straumfjarðará endaði í 352 löx-
um sem er allt í lagi veiði. „Við
vorum undir það síðasta við veið-
ar. Það er alltaf gaman að veiða
þarna, fiskur víða um ána,“ sagði
Alfreð Jóhannsson, sem oft hefur
í Straumfjarðará og veitt með góð-
um árangri. „Lokatölur eru 1167
laxar sem er gott bara,“ sagði Ein-
ar Sigfússon. Norðurá í Borgarfirði
gaf 1719 laxa, en Einar sér jafn-
framt um söluna þar.
Lokatölur úr Hítará voru 494
laxar, minni veiði en í fyrra. Erfitt
er að henda reiður á veiðitölur úr
Álftá á Mýrum, ekki hefur mikið
verið veitt í henni eftir að Doppler
leigði ána og veiðir þar mest einn
með konunni.
Eitthvað fór að togast upp úr
Urriðaá á Mýrum þegar rigna tók
og nokkrir laxar og silungar veidd-
ust í henni. Áin er sem fyrr verulega
háð vatnabúskapnum.
„Við voru að hætta og lokatalan í
Langá á Mýrum er 1701 lax,“ sagði
Jogvan Hansen sem var með veiði-
bókina í hendinni þegar við rædd-
um við hann. „Þetta er fínt veiði-
ár í Langá,“ bætti hann við. Jogvan
veiddi nokkuð í Langá í sumar eins
og oft áður.
„Þverá í Borgarfirði endaði í
2060 löxum,“ sagði Aðalsteinn Pét-
ursson sem var að leiðsegja mikið
við ána í sumar. „Sem er bara fín
veiði,“ bætti hann við.
„Við fengum ágæta veiði í Gljúf-
urá en höfum aldrei veitt þarna
áður,“ sagði Ingi Stefán Ólafsson,
en hann veiddi í Gljúfurá í sumar
en áin endaði í 294 löxum og eitt-
hvað af silungi kom einnig á land.
Straumarnir í Borgarfirði end-
uðu í 277 löxum og töluverðu að
silungi. Brennan gaf 289 laxa í sum-
ar og mikið af silungi einnig.
Norðlingafljótið endaði í 990
löxum sem verður að teljast býsna
gott. Við fréttum af veiðimönnum
þar efra sem veiddu á tveimur dög-
um á annan tug laxa í fljótinu.
„Það var ekki mikið af fiski þeg-
ar við voru þarna, en fengum þrátt
fyrir það nokkra, flott veiðiá,“ sagði
Gunnar Gunnarsson sem var í
Flókadalsá í Borgarfirði fyrr í sum-
ar. Flókadalsá endaði í 423 löxum
sem er aðeins betri veiði en í fyrra-
sumar.
„Við vorum að veiða undir lokin
og fengum fimm laxa. Lokatölur úr
ánni eru 235 laxar, helmingi meira
en í fyrra,“ sagði veiðimaður sem
var í Reykjadalsá í Borgarfirði. Sú
á stóð sig vel í sumar.
Veiðin í Grímsá var miklu betri í
sumar en fyrir ári og lokatölur urðu
1290 laxar. „Þetta var flott sumar í
Grímsá,“ sagði Jón Þór Júlíusson
þegar við spurðum um lokatölurn-
ar.
„Áin endaði í 624 löxum, sem er
allt í lagi. Það var töluvert af fiski
í henni,“ sagði Ólafur Johnson er
við spurðum Laxá í Leirársveit og
lokastöðuna þar.
Þetta veiðisumar er búið og nú
taka veiðimenn að undirbúa sig
fyrir það næsta. Kannski er stærsta
spurningin hvort smálaxinn skili
sér betur þá, en hann gerði í sumar.
Við sjáum til.
gb
Skrýtið veiðisumar en samt gott í nokkrum ám
Gylfi Sigurðsson þakkar fyrir sig á bökkum Norðurár í Borgarfirði. Hann hóf veiðisumarið að þessu sinni.
Vígalegir veiðimenn við Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum.
Jógvan Hansen á veiðislóðum við Langá á Mýrum.
Veiðiklóin Selma Björk með flotta fiska á Arnarvatnsheiði, en þar var vel haldinn
og fínn silungur að fást í sumar. Margir telja sumarið í röðum bestu veiðitímabila
þar um slóðir.
Tvö einkar glæsileg veiðihús voru tekin í notkun í Borgarfirði í upphafi veiðitímabilsins í sumar. Viðbygging við veiðihúsið
við Helgavatn þar sem veiðimenn í Þverá njóta aðstöðunnar og viðbygging við veiðihúsið á Rjúpnaási við Norðurá þar sem
aðbúnaður er engu síðri. Af palli við það hús er þetta útsýni upp með ánni þar sem Laxfoss blasir við.