Skessuhorn - 04.10.2017, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2017 15
Frá yfirkjörstjórn
Norðvesturkjördæmis
Framboðsfrestur vegna kosninga til Alþingis, sem fram eiga að fara laugardaginn
28. október 2017, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 13. október 2017.
Framboð í Norðvesturkjördæmi skal tilkynna skriega til yrkjörstjórnar kjördæmisins, sem veitir þeim viðtöku á
Hótel Borgarnesi, Egilsgötu 16, Borgarnesi, föstudaginn 13. október 2017 frá kl. 09:00-12.00.
Á framboðslistum skulu vera nöfn 16 frambjóðenda, hvorki eiri né færri. Tilgreina skal greinilega nafn frambjóð-
anda, kennitölu hans, heimili og stöðu eða starfsheiti. Framboðslista skal fylgja skrieg yrlýsing allra þeirra sem á
listanum eru um að þeir ha leyft að setja nöfn sín á listann.
Framboðslista skal og fylgja skrieg yrlýsing frá kjósendum í Norðvesturkjördæmi um stuðning við listann og fyrir
hvaða stjórnmálasamtök listinn er boðinn fram og við hvaða kosningar. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu
hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 240 hið fæsta og eigi eiri en 320. Sami kjósandi má ekki mæla með
eiri en einum framboðslista. Komi það fyrir verður kjósandinn ekki talinn meðmælandi neins þeirra. Einnig skal
fylgja skrieg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.
Til að ýta fyrir yrferð og vinnslu er mælst til þess að meðmælendalistar verði skráðir með rafrænum hætti á þar til
gerðu vefsvæði, www.island.is, áður en þeim er skilað til yrkjörstjórnar. Vakin er athygli á því að skila skal frum-
ritum meðmælendalista til yrkjörstjórnar á tölusettum blaðsíðum í framhaldandi röð.
Óskað er eftir að framboðslistum verði skilað á rafrænan hátt skv. leiðbeiningum landskjörstjórnar á netfangið
ingi@lit.is. Form til þess að skrá listann má nna á vef landskjörstjórnar, www.landskjor.is, undir almennum
leiðbeiningum.
Fundur yrkjörstjórnar til að úrskurða um framboð, þar sem umboðsmönnum framboðslista gefst kostur á að vera
viðstaddir, verður haldinn í Hótel Borgarnesi, Egilsgötu 16, Borgarnesi, laugardaginn 14. október 2017 kl. 13:00.
Meðan á kosningu stendur, laugardaginn 28. október 2017, verður aðsetur yrkjörstjórnar Norðvestur-
kjördæmis á Hótel Borgarnesi, Skúlagötu 16, Borgarnesi, þar sem talning atkvæða fer fram að loknum
kjörfundi kl. 22:00. Símanúmer yrkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis er 860-2181.
Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis 2. október 2017
Ingi Tryggvason oddviti, Kristján G. Jóhannsson,
Katrín Pálsdóttir, Elís Svavarsson og Júlíus Guðni Antonsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Óvenjumiklar rigningar gerði á
suðaustan- og austanverðu land-
inu í síðustu viku og fram á helgi.
Jörð varð mettuð af vatni og urðu
af þeim sökum flóð víðsvegar um
landshlutann með tilheyrandi
skemmdum á mannvirkjum. Bæir
á suðausturlandi urðu um tíma ein-
angraðir og var meðal annars flog-
ið á þyrlu Landhelgisgæslunnar til
að ferja fólk og búnað milli svæða.
Verst varð úti brúin yfir Steinavötn
í Suðursveit. Hún hefur verið úr-
skurðuð ónýt og vinnur Vegagerð-
in nú að byggingu bráðabirgðabrú-
ar á svipuðum stað. Þjóðvegurinn í
Austur-Skaftafellssýslu lokaðist af
þessum sökum og fór áhrifa þess
að gæta samdægurs meðal ann-
ars hjá ferðþjónustu, einkum gisti-
húsaeigendum á Vesturlandi sem
skyndilega fengu hrinu gistipant-
ana frá útlendingum sem breyta
þurftu ferðatilhögun í Íslandsreis-
um sínum. Vel mátti greina aukna
umferð erlends ferðafólks á vegum
á Vesturlandi síðustu daga af þess-
um sökum.
Björgunarsveitir á Suðaustur- og
Austurlandi stóðu í ströngu þessa
daga í síðustu viku eins og meðfylgj-
andi myndir frá Landsbjörgu sýna.
Þarna er verið að bjarga kindum við
Krossaland í Austur-Skaftafellssýslu
en einnig þurfti m.a. að aðstoða
bændur á Fljótsdal og á Héraði var
um hundrað kindum bjargað. Engu
að síður er talið að nokkrir tugi
kinda hafi orðið flóðinu að bráð. Þá
þurftu björgunarsveitir að aðstoða
lögreglu og starfsmenn Vegagerð-
arinnar við umferðarstjórnun þar
sem loka þurfti vegum.
mm/ Ljósm. Landsbjörg
Annasamir dagar hjá björgunar-
sveitafólki fyrir austan
Sú ákvörðun stjórnenda Snæfells-
bæjar að leggja gervigras á Ólafs-
víkurvöll hefur verið nokkuð
umdeild meðal bæjarbúa og stuðn-
ingsmanna knattspyrnufélags-
ins Víkings. Hefur töluvert verið
rætt um málið, einkum á Facebook
og skoðanir verið skiptar. Margir
kalla eftir því að reist verði knatt-
spyrnuhús, en á sama tíma eru aðr-
ir fylgjandi því að leggja á Ólafs-
víkurvöll gervigrasi. Þá er deilt um
hvort hvort völlurinn skuli vera
upphitaður eður ei, en ekki er gert
ráð fyrir að hita völlinn upp.
Gervigrasvöllur kostar
165 milljónir
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur
sent frá sér tilkynningu um mál-
ið þar sem hún kveðst hafa full-
an skilning á því að margir vilji
heldur fá knattspyrnuhús. Gert er
ráð fyrir því að kostnaður við að
reisa hálft knattspyrnuhús, eins og
nefnd um málið mælti með, myndi
nema um 300 milljónum króna.
Þá ætti eftir að gera ráð fyrir sal-
ernum og búningsklefum ef þörf
væri fyrir slíkt. „Það er þó erf-
itt að fullyrða um þann kostnað
þar sem slíkt hús hefur enn ekki
verið byggt á Íslandi,“ segir í til-
kynningu bæjarstjórnar Snæfells-
bæjar. „Kostnaður við byggingu
gervigrasvallar er hins vegar nokk-
uð þekkt stærð, enda hafa margir
slíkir vellir verið byggðir á und-
anförnum árum. Verkfræðistofan
sem valin var til að vinna kostn-
aðaráætlun fyrir Snæfellsbæ hef-
ur mikla reynslu af hönnun gervi-
grasvalla og gerð kostnaðaráætlana
vegna slíkra valla. Kostnaðaráætl-
unin sem unnin var, hljóðar upp á
um 165 milljónir, og var hún lögð
fyrir bæjarstjórn áður en ákvörð-
un um gervigras var tekin,“ segir í
tilkynningunni. Inni í þeim kostn-
aði er búið að gera ráð fyrir jarð-
vinnu, fráveitulögnum, vökvun-
arkerfi, frágangi yfirborðs, gervi-
grasinu sjálfu, rafkerfi og lýsingu,
heimæðum vatns og rafmagns, al-
mennum kostnaði og ófyrirséðum
kostnaði.
Dýrt að hita á
köldu svæði
Yngri flokkar Víkings hafa ekki
fengið að æfa og keppa á Ólafsvík-
urvelli. Hefur verið nokkur óánægja
með það í bænum. „Taldi bæjar-
stjórn að með tilkomu gervigras-
vallar ættu allir flokkar að geta æft
og keppt á vellinum. Góð aðstaða
er þegar fyrir hendi í íþróttahúsinu,
þ.m.t. salernis- og búningsaðstaða,
sem nýtist vel æfendum og kepp-
endum,“ segir í tilkynningunni.
Bæjarstjórn viðurkennir að þegar
illa viðrar og frýs á veturna verði ekki
mikil nýting á gervigrasvellinum. Þó
telur hún víst að notkunartími gervi-
grasvallarins á ársgrundvelli verði
mun meiri en á núverandi grasvelli.
„Burtséð frá tíðafari, þá má gera ráð
fyrir því að slíkur völlur sé að minnsta
kosti nothæfur frá apríl og fram í
nóvember,“ segir bæjarstjórn.
Hvað varðar þá upphitun gervigras-
vallarins segir bæjarstjórn ljóst að það
yrði mjög erfitt fjárhagslega að hita
völlinn. „Hér er enginn jarðvarmi, og
eins og allir sem búa hér vita, er dýrt
að kynda og ekki hægt að bera það
saman við höfuðborgarsvæðið.“
Bæjarstjórn segist meðvituð um
að rekstur og umhirða gervigrasvall-
ar verði ekki lægri en kostnaður við
núverandi völl. „Umhirða og viðhald
Ólafsvíkurvallar og Reynisvallar á
Hellissandi er um 7-8 milljónir króna
á ári núna og gert er ráð fyrir sama
kostnaði áfram.“ kgk
Skiptar skoðanir um gervigrasvöll í Ólafsvík