Skessuhorn - 04.10.2017, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201720
Sauðfjárbændur á Íslandi horfa
fram á mikla tekjuskerðingu í kjöl-
far boðaðrar lækkunar afurðaverðs
til bænda. Stjórnarslit ríkisstjórn-
arinnar hafa síðan hleypt málinu í
mikla óvissu sem er sauðfjárbænd-
um erfið. Skessuhorn ræddi stöð-
una við Davíð Sigurðsson í Mið-
garði, formann Félags sauðfjár-
bænda í Borgarfirði og Þóru Sif
Kópsdóttur á Ystu-Görðum, for-
mann Félags sauðfjárbænda á
Snæfellsnesi. Þau eru sammála um
að ástandið sé erfitt og kalla eft-
ir aðgerðum til að taka á vandan-
um, bæði til skamms tíma og langs.
Vilja þau meðal annars fækka af-
urðastöðvum vegna verðstríðs
þeirra á innanlandsmarkaði sem
bitnar á bændum. Stjórnarslit rík-
isstjórnarinnar hefur síðan hleypt
málinu í enn meiri óvissu.
Áhyggjur af fjárhags-
stöðu bænda
„Menn eiga eftir að átta sig al-
mennilega á þessu en ástandið er
alvarlegt. Ég hef heyrt út undan
mér að einhverjir séu að heltast úr
lestinni, án þess að ég hafi fengið
það staðfest. Ég hef grun um að all-
nokkrir muni fækka verulega fé og
jafnvel bregða búi og hætta,“ seg-
ir Davíð Sigurðsson í samtali við
Skessuhorn. Ekki leið langur tími
frá því sláturleyfishafar höfðu boð-
að stórlækkað afurðaverð til bænda
og þar til ríkisstjórnin féll. Þar með
skapaðist óvissuástand sem Dav-
íð segir bændum erfitt. „Það er af-
leitt að það sé ekki starfandi ríkis-
stjórn í landinu. Ég sé því miður
ekki fram á að neitt verði gert fyrr
en á nýju ári. Ég vona bara að það
verði ekki of seint, en ég er hrædd-
ur um það,“ segir hann. „Mestar
áhyggjur hef ég af fjárhagsstöðu
bænda, að þeir nái ekki að standa
við skuldbindingar sínar og lendi í
greiðsluþroti. Við verðum bara að
bíða og vona að menn nái að semja
við sína lánadrottna,“ segir Davíð
en bætir því við að þar sé ekkert
í hendi.
„Kaupfélag Skagfirðinga til-
kynnti nú fyrir helgi að það ætlaði
að hækka afurðaverðið um 13% frá
því sem áður hafði verið gefið út.
Gróflega reiknað þýðir það 27%
lækkun frá því í fyrra í staðinn fyr-
ir 35% lægra verð. En 27% er bara
allt of mikil lækkun, við erum enn
langt undir framleiðslukostnaði,“
segir hann.
Kallar eftir
sveiflujöfnun
Spurður hvað hann telji til ráða
telur Davíð að semja þurfi við
stjórnvöld um einhvers konar
sveiflujöfnun til að taka á tíma-
bundnum framleiðsluvanda. Það
sé hins vegar erfitt á meðan eng-
in ríkisstjórn er starfandi í landinu.
„Á meðan ástandið er svona slæmt
þá þarf einfaldlega að leggja til
auka fjármagn til stuðnings sauð-
fjárbændum til að koma í veg fyr-
ir mikla byggðaröskun. En fyrst
og fremst þarf að koma á einhvers
konar sveiflujöfnunartækjum til
að hindra að staða sem þessi geti
komið upp,“ segir hann og nefnir
dæmi. „Bæði í Evrópu og Ameríku
tíðkast það að ríki taka tímabund-
ið á vandamálum með uppkaupum
á birgðum. Stjórn Landssamtaka
sauðfjárbænda hefur lagt til að út-
flutningsskylda verði sett á afurða-
stöðvarnar. Þá yrðu þær að losa
kjöt af innanlandsmarkaði með út-
flutningi. Það myndi ekki kosta rík-
ið neitt en gæti aftur á mótið kom-
ið niður á afurðaverði til bænda
þegar illa árar í útflutningi,“ segir
Davíð og bætir því við að sú staða
sé einmitt uppi nú. „Það er ekki
síst vegna þess að gengið er okkur
óhagstætt. Markaðir eru enn opnir
en á afleitum verðum vegna stöðu
gengisins, þó það hafi aðeins ver-
ið að færast í rétta átt. Þá má einn-
ig nefna lokun á Rússlandsmark-
aði og síðan nýlegur fríverslunar-
samningur við Kína, sem virðist
aðeins virka í aðra áttina. Að lok-
um má svo nefna lokun Noregs-
markaðar. Norðmenn eru hættir
að flytja inn íslenskt lambakjöt því
þeir eru orðnir sjálfum sér nógir.
Það var besti markaðurinn,“ segir
hann. „Þannig að þetta eru ótrú-
lega margir samverkandi þætt-
ir sem allir koma upp nú á sama
tíma,“ bætir hann við.
Taprekstri velt
yfir á bændur
Davíð segir þó jákvætt að sala á
innanlandsmarkaði sé góð. „Inn-
anlandsmarkaður hefur tekið kipp
og það hefur orðið aukning í sölu
frá fyrra ári. Markaðssetning inn-
anlands virðist hafa verið að skila
sér í því að ferðamenn séu farn-
ir að borða meira lambakjöt. Lið-
ur í því markaðsátaki hefur verið
samstarf við hótel og veitingahús.
Það starf virðist hafa gengið vel og
vonandi að það haldi áfram,“ seg-
ir hann. „En það breytir því ekki
að staða sauðfjárbænda í dag er
engu að síður afleit og við köllum
einfaldlega eftir því að stjórnvöld
bregðist við,“ segir Davíð og bæt-
ir því við að sláturleyfishafar þurfi
að líta í eigin barm. „Að mínu viti
þurfa sláturleyfishafar að huga
að endurskipulagningu í sínum
rekstri. Taprekstri þeirra virðist
endalaust velt yfir á bændur,“ segir
hann. „Það er deginum ljósara að
það þarf að fækka afurðastöðvum
þar sem innbyrðis verðstríð þeirra
á innanlandsmarkaði bitnar ekki á
neinum nema frumframleiðend-
um, sem hefur svo þegar öllu er á
botninn hvolft ekkert um málið að
segja,“ segir Davíð Sigurðsson að
endingu.
Vandi afurðastöðvanna
„Mín skoðun er sú að þetta sé
vandi afurðastöðvanna. Rekstur-
inn hjá þeim gengur illa og þær eru
að velta vandanum yfir á bændur,“
segir Þóra Sif Kópsdóttir í sam-
tali við Skessuhorn. „Við bændur
stöndum bara á gati yfir stöðunni
en ég sé ekki hvað ríkisvaldið á að
gera til að bregðast við vandanum,
af því ég tel hann liggja hjá afurða-
stöðvunum,“ segir hún.
Þóra minnist þess að strax síð-
asta vor hafi fulltrúar afurða-
stöðvanna farið að ræða að mikil
verðskerðing yrði á afurðaverði
til bænda í haust. „Þeir báru fyr-
ir sig þætti eins og miklum birgð-
um, lokun á mörkuðum og óhag-
stæðu gengi krónunnar sem hefur
auðvitað áhrif á útflutningsverð.
Kaupfélag Skagfirðinga og Slátur-
hús Kaupfélags Vestur-Húnvetn-
inga á Hvammstanga eru náttúru-
lega stærst í útflutningi og gengið
hefur töluverð áhrif á þá. Burtséð
frá því höfum við sauðfjárbænd-
ur einkum horft á íslenska lamba-
kjötsmarkaðinn og þar eru afurða-
stöðvarnar einfaldlega ekkert að
standa sig. Við sjáum vörurnar úti
í búð og þær eru hreint ekki allt-
af lystugar. Sauðfjárbændur hafa
lengi reynt að koma þeim í skiln-
ing um að þetta sé ekki sú vara
sem við viljum selja, en þar hef-
ur okkur orðið lítt ágengt,“ segir
Þóra og er ómyrk í máli. „Ég man
að á fundi í vor boðaði einn af for-
stjórum stóru afurðarstöðvanna
20% sölusamdrátt á lambakjöti á
næstu árum án þess að hafa hug-
mynd um hver staðan yrði núna í
haust. Ef þetta er framtíðarsýnin
hjá forstjóra eins stærsta söluaðila
íslensks lambakjöts, að hann sjái
ekki sölutækifærin sem hann hef-
ur með þessa frábæru vöru í hönd-
unum, þá held ég að hann sé út-
brunninn í starfi,“ segir Þóra og er
ekkert að skafa utan af því.
Costco kemur inn
með nýjar áherslur
„Við sauðfjárbændum sjáum
möguleika enda vitum við að var-
an er góð og það gerir Markaðs-
ráð kindakjöts líka, sem er að gera
marga spennandi hluti í markaðs-
málum. En þegar forstjóri einnar
stærstu afurðastöðvarinnar deil-
ir ekki þeirri sýn með sauðfjár-
bændum þá vinnur hann ekki með
okkur,“ segir Þóra og veltir því
fyrir sér hvort þessum fyrirtækj-
um sé einfaldlega í hag að bænd-
ur fækki fé sínu. „Sum þessara
fyrirtækja standa líka í kjötfram-
leiðslu, til dæmis á kjúklingakjöti.
Kannski hentar það þeim betur að
við fækkum um 20%, þá þurfa þau
minna að hafa fyrir því að selja, án
þess að ég hafi neitt fyrir mér í því
máli. En bændur velta þessu fyrir
sér og hvort sé verið að leika ein-
hvern pólitískan leik,“ segir Þóra.
Þrátt fyrir boðaðan sölusam-
drátt hefur Þóra orð á því að sala
á lambakjöti innanlands hafi auk-
ist töluvert. „Þar tel ég að Costco
spili stóra rullu. Þeir komu ein-
faldlega með nýja framsetningu
og bjóða mjög lystuga vöru. Þegar
maður sér kjötið með þeirra skurði
þá langar mann að kaupa það. Enn
fremur selja þeir kjötið ófrosið svo
hægt er að elda það þegar komið
er heim, það er það sem neytand-
inn vill. Við sauðfjárbændur erum
búin að tala um einmitt þetta á
hverjum einasta fundi í mörg ár
en aldrei hefur verið hlustað á okk-
ur,“ segir hún.
Afurðastöðvar undir-
bjóða hvora aðra
Aðpurð hvað hún telji til ráða til að
bæta stöðu sauðfjárbænda til fram-
tíðar nefnir Þóra Sif að kannski
væri vænlegast að hafa bara eina af-
urðastöð í landinu. „Ég bara spyr?
Er það kannski besta leiðin til að
bregðast við þessu? Við erum búin
að horfa á sláturleyfishafana undir-
bjóða hvern annan ár eftir ár, eyði-
leggja markaðinn fyrir sjálfum sér
og lækka þar með afurðaverð til
bænda. Þeir virðast einfaldlega
ekki kunna að reka fyrirtæki og ég
á hreinlega ekki orð yfir þessum að-
ferðum þeirra. Ég væri löngu far-
in á hausinn með mitt fyrirtæki ef
ég myndi reka það eins og þeir reka
afurðastöðvarnar,“ segir hún. „Þó
það hafi verið þrengingar hjá þeim
í haust, þá hefði afurðaverðslækkun
til bænda átt að vera þeirra síðasta
úrræði. Við þurfum hærra verð fyr-
ir afurðirnar en það sem okkur er
boðið núna. Lækkun á afurðaverði
til bænda þýðir að varan hlýtur að
lækka í verði til verslana. Þar af
leiðandi fá afurðarstöðvarnar lægra
verð og mun það bara auka vanda
afurðarstöðvana enn frekar. Það sér
hver heilvita maður að þetta er ekki
nein leið til að reka fyrirtæki,“ seg-
ir Þóra.
„Ekkert annað í boði
en að þrauka“
Aðspurð kveðst Þóra Sif ekki hafa
orðið vör við að bændur á Snæfells-
nesi hafi ætlað að bregða búi vegna
lækkunar á afurðaverði. Þeir ætli að
þreyja þorrann, freista þess að semja
um sín lán og sínar skuldbindingar.
„Það er ekkert annað í boði en að
þrauka,“ segir Þóra. „Maður heyrði
af einhverjum sem ætluðu að grípa
tækifærið og semja við Þorgerði
Katrínu. En mér fannst það arfa-
vitlaus leið sem hún boðaði, algjör
eyðibýlastefna, því bændum má
ekkert fækka,“ segir hún og bæt-
ir því við að í lok nýgerðs búvöru-
samnings þá verði komið eðlilegra
stuðningskerfi. „Þetta gamla kerfi,
sem núna er búið að leggja niður,
þar sem hægt var að versla með rík-
isstuðninginn, var alveg arfavitlaust
og eitt af stóru vandamálum í dag
hjá ungu bændunum því þeir hafa
þurft að setja sig í stór skuldir til að
kaupa ríkisstuðning. Svoleiðis kerfi
er bara ekki í lagi. Kerfið þarf að
vera sanngjarnt og eðlilegt þannig
að allir standi jöfnum fótum. Rík-
isstuðningur á að vera til að styðja
alla sem stunda sauðfjárbúskap,“
segir hún. „En eins og staðan er í
dag, með enga ríkisstjórn, þá erum
við í óvissu. Það er bara bið fram-
undan og enginn veit hvað verður,“
segir Þóra Sif Kópsdóttir að end-
ingu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Rætt við formenn FSB og FSS um stöðu sauðfjárbænda:
„Taprekstri afurðastöðva velt yfir á bændur“
Sala lambakjöts á innanlandsmarkaði
hefur aukist á árinu, meðal annars
vegna markaðssetningar beint til
ferðamanna. Þóra Sif segir skurðinn á
kjötinu og framsetninguna mun betri
en verið hefur og segir Costco spila
stóra rullu í þeirri breytingu.
Forystukind á leið í Ljárskógarrétt í Dölum nú í haust.
Kindur í Þverárrétt í Borgarfirði í haust.
Davíð Sigurðsson, formaður Félags
sauðfjárbænda í Borgarfirði. Auk
bústarfanna í Miðgarði rekur hann
Bifreiðaþjónustu Harðar í Borgarnesi.
Þóra Sif Kópsdóttir á Ystu-Görðum,
formaður Félags sauðfjárbænda á
Snæfellsnesi.