Skessuhorn - 04.10.2017, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 2017 21
Þeir Guðni Ágústsson og Jóhann-
es Kristjánsson munu láta gamm-
inn geysa með skemmtun sína;
Eftirherman og orginalinn, í Bíó-
höllinni á Akranesi laugardaginn
14. október nk. Þeir boða magnað
skemmtikvöld með gamansögum
og eftirhermum. Þeir félagar byrj-
uðu að skemmta saman í fyrravor
og komu þá fram á 18 skemmtun-
um, flestum í Salnum í Kópavogi,
Landnámssetrinu í Borgarnesi og
á Suðurlandi. Nú hafa þeir tekið
upp þráðinn að nýju og skemmta
víða um land. Jóhannes eftirherma
á 40 ára upptroðsluafmæli á þessu
ári og segir Guðni Ágústsson það
afar skemmtilegt og gefandi að
koma fram með honum.
„Það er mikið hlegið, mik-
ið grín,“ segir Guðni og kveður
sterkt að orði eins og landsmenn
þekkja. „Það er gott fyrir alla að
komast í gott leikhús og hlæja í tvo
tíma, það hreinsar lungur og nærir
andann. Við gerum góðlátlegt grín
að mörgum, lífs og liðnum, marg-
ir orginalar sem koma við sögu,“
segir Guðni.
Sjálfur segist Guðni vera einn af
þeim karakterum sem Spaugstof-
an, Jóhannes eftirherma og fleiri
grínarar tóku fyrir meðan hann var
enn í pólitík. „Það var fyrir okkur
stjórnmálamenn lífsnauðsynlegt
að gert væri grín að okkur sem oft-
ast. Það tryggði okkur einatt far-
sæla endurkosningu, við vorum
ekki auðgleymanlegir,“ segir hann.
Guðni bætir við að þeir hyggi á
ferðalag víðar um Vesturland á
komandi vikum þótt tímasetning-
ar liggi ekki fyrir. „Við ætlum m.a.
að koma fram í Stykkishólmi og
örugglega hjá vinum okkar sauð-
fjárbændum í Dölum. Við fyll-
um húsin,“ sagði Guðni sem lofar
skotheldri skemmtun. mm
Spéfuglar á fjalir
Bíóhallarinnar
Nýtt greiðslufyrirkomulag hefur
verið tekið upp dósamóttöku í Öld-
unni, iðjunni í Brákarey í Borgar-
nesi. Í stað þess að fá grænu mið-
ana getur fólk fengið greitt fyrir
drykkjarumbúðir beint inn á kortið
sitt. Eftir að búið er að telja flöskur
og dósir fær fólk miða með strika-
merki. Miðinn er svo skannaður
inn í vél sem staðsett er í dósamót-
tökunni og því næst rennir viðkom-
andi kortinu sínu í gegn um vélina
og þá er greitt beint inn á það.
arg
Nýtt greiðslufyrirkomulag í
Öldunni dósamóttöku
Pétur Helgi Pétursson, starfs-
maður hjá Öldunni dósamót-
töku í Borgarnesi, útskýrði
fyrir blaðamanni hvernig nýja
greiðsluvélin virkar.
Lárus L Blöndal, forseti Íþróttasam-
bands Íslands, var ásamt fríðu föru-
neyti á ferðinni um Snæfellsnes í
síðustu viku. Tilefnið var heimsókn
til HSH þar sem starfsemi héraðs-
sambandsins var skoðuð. Á mynd-
inni er hópurinn í Sögumiðstöð-
inni í Grundarfirði ásamt nýráðnum
framkvæmdastjóra HSH, Laufeyju
Helgu Árnadóttur, en þetta var jafn-
framt hennar fyrsta embættisverk í
nýju starfi. tfk
ÍSÍ fólk á ferð um landið