Skessuhorn - 04.10.2017, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201722
Spánverjinn Ricardo Gonzalez Dá-
vila tók við þjálfun kvennaliðs Skalla-
gríms á liðnu sumri. Hann er fluttur
í Borgarnes ásamt fjölskyldu sinni og
segir þau una hag sínum vel í bænum.
„Ég og fjölskyldan mín erum ánægð í
Borgarnesi. Fólkið er mjög almenni-
legt og hjálplegt í einu og öllu,“ segir
Ricardo í samtali við Skessuhorn.
Æfingar Skallagríms gátu ekki
hafist fyrr en 15. september síðast-
liðinn og liðið náði ekki að spila æf-
ingaleik fyrir tímabilið. „Það eru
ýmsar ástæður fyrir því en af þeim
sökum erum við langt frá þeim stað
sem við verðum á þegar komið verð-
ur inn í mótið,“ segir hann og bæt-
ir því við að liðið sé ekki fullmann-
að ennþá. „Okkur vantar enn tvo til
þrjá leikmenn til að vera með heild-
stæðara lið og meiri dýpt. Við þurf-
um að styrkja nokkrar stöður og fá
fleiri gæðaleikmenn til að auka gæði
æfinganna. Ég veit að félagið vinnur
að því um þessar mundir að fá leik-
menn,“ segir hann.
Ricardo tekur þó skýrt fram að
hann sé ánægður með þá leikmenn
sem fyrir eru. „Liðið er skipað góð-
um leikmönnum og góðum stelpum.
Ég tel okkur vera með mjög gott, lík-
amlega sterkt lið, skipað hæfileikarík-
um leikmönnum sem geta leyst ólík-
ar stöður á vellinum. Leikmennirnir
hafa góða reynslu, en umfram allt er
mikill samhugur í liðinu, spenna og
eftirvænting fyrir því að gera góða
hluti í vetur,“ segir hann.
Vill draga fram
það besta í liðinu
Til að liðið geti gert góða hluti
segir hann að bæta þurfi ýmislegt.
Það sé hins vegar eðlilegt að eitt-
hvað vanti upp á þegar lítið hefur
verið hægt að æfa. „Þar að auki eru
aðeins fimm leikmenn í liðinu sem
voru í fyrra, sem og nýr þjálfari.
Það eru því margir nýir sem þurfa
tíma til að kynnast og læra að skilja
hvora aðra,“ segir Ricardo.
Aðspurður um sýn þjálfarans á
leikinn kveðst hann leggja mikla
áherslu á æfingar og framfar-
ir leikmanna. „Ég hef alltaf ver-
ið þeirrar skoðunar að gæði liðs-
ins aukist eftir því sem gæði leik-
mannanna aukast. Þess vegna hef
ég alltaf lagt áherslu á æfingar
og að bæta hæfni leikmannanna,
hjálpa þeim að verða betri,“ seg-
ir Ricardo. „Þegar kemur að leikj-
unum sjálfum þá vil ég spila þétta
vörn, frákasta vel og hlaupa. En
þjálfarinn verður alltaf að aðlaga
leikskipulagið að þeim leikmönn-
um sem eru til takst hverju sinni.
Við munum því leita eftir því að
draga fram það besta í liðinu, með
það markmið að reyna að vinna
sem flesta leiki,“ segir hann.
Leikmenn vilja gera vel
Ricardo setur stefnuna hátt og
kveðst treysta leikmönnum sínum
fullkomlega til að gera vel í vet-
ur. „Ég er mjög ánægður með hve
leikmennirnir leggja hart að sér og
þrá að eiga frábært keppnistíma-
bil,“ segir hann. „Að því sögðu
mun samkeppnin nær alltaf koma
liði á þann stað sem það á skilið að
vera á. Ég vona því að Skallagrím-
ur muni berjast um bæði Íslands-
og bikarmeistaratitilinn í vetur.
Til þess að ná því markmiði er að-
eins ein leið fær, að mér vitandi.
Það er að leggja hart að sér og það
munum við gera á hverri einustu
æfingu og í hverjum einasta leik,“
segir Ricardo að endingu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Þjálfari Skallagríms setur markið hátt
Liðið berjist um Íslands- og bikarmeistaratitilinn
Ricardo segir mikinn samhug í Skallagrímsliðinu og löngun til að
gera vel í vetur.
Sigrún Ámundadóttir í leik með Skallagrími síðasta keppnistímabil. Jóhanna Björk Sveinsdóttir tekur skot í leik gegn Snæfelli í
undanúrslitum bikarsins á liðnum vetri.
Skallagrímur háði harða fallbar-
áttu í Domino‘s deild karla síð-
asta vor, en svo fór að lokum að
liðið féll eftir tap í næstsíðasta leik
tímabilsins. Leikur Skallagrím-
ur því í 1. deild í vetur. „Planið
er að fara beint upp aftur. Ég tel
það vera raunhæft markmið og við
erum brattir,“ segir Finnur Jóns-
son, þjálfari karlaliðs Skallagríms,
í samtali við Skessuhorn.
Liðið er þó nokkuð breytt frá
síðasta ári. „Við missum nánast
heilt byrjunarlið frá því í fyrra
en höldum að sama skapi góðum
kjarna ungra leikmanna, heima-
manna sem eru árinu eldri en í
fyrra. Nokkrir hafa verið í pró-
grammi með yngri landsliðunum
í sumar og æft vel þar. Þeir sem
og aðrir hafa verið duglegir og
lagt hart að sér til að bæta sig, all-
ur hópurinn, og þess vegna hafa
þeir tekið framförum frá því í vor,“
segir Finnur. „Ég er því bara mjög
bjartsýnn þrátt fyrir að liðið sé
ungt og í raun og veru reynslulít-
ið heilt yfir. Við munum gera eins
vel og við getum, ætlum að reyna
að vera í efri hlutanum og setjum
stefnuna óhikað á eitt af þrem-
ur efstu sætunum,“ segir Finnur.
Verða tilbúnir í slaginn
Skallagrímur samdi í sumar við
bandarískan leikstjórnanda, Zac
Carter. Rétt eins og hjá liðsfélög-
um hans í Skallagrími fer þar ung-
ur og efnilegur leikmaður. „Þetta
er ungur strákur, 23 ára gamall,
sem er nýbúinn að klára sinn skóla
úti í Bandaríkjunum og er að stíga
sín fyrstu skref í atvinnumennsku.
Hann verður leikstjórnandinn okk-
ar í vetur,“ segir Finnur. Aðspurð-
ur segir þjálfarinn engra stórra
breytinga að vænta í spilamennsku
liðsins heldur reynt að spila upp
á styrkleika hópsins eins og und-
anfarin ár. „Undanfarin ár höfum
við reynt að spila nokkuð hrað-
an bolta. Hópurinn er enn yngri
núna en síðustu tímabil og við
erum með mjög kvikt og snöggt
lið. Við munum því reyna að sækja
hratt þegar við grípum varnarfrá-
kast og reyna að keyra upp tempó-
ið í okkar leikjum,“ segir Finnur.
„Þessa dagana erum við einmitt
að vinna í taktík, bæði varnar- og
sóknarlega. Sumarið framan af fór
í að bæta styrk leikmanna og þol
með einstaklingsæfingum. Eftir
því sem nær dregur móti leggjum
við síðan stöðugt meiri áherslu á
leikskipulag,“ segir hann. „Síðustu
vikur höfum við spilað nokkra æf-
ingaleiki og gengið ágætlega. Það
eru nokkrir hlutir sem við erum að
vinna í að fínpússa með því að æfa
vel. Við ætlum okkur að vera til-
búnir í slaginn. Það er stemning í
liðinu og það er alltaf stemning í
Borgarnesi fyrir körfunni,“ segir
Finnur Jónsson að endingu.
kgk/ Ljósm. Skallagrímur
„Planið er að fara beint upp aftur“
- segir Finnur Jónsson, þjálfari karlaliðs Skallagríms
Liðið sem Skallagrímur teflir fram í vetur verður skipað góðum kjarna ungra og
efnilegra leikmanna. Þar verða væntanlega í eldlínunni þeir Eyjólfur Ásberg Hall-
dórsson, sem hér tekur skot og Bjarni Guðmann Jónsson, sem er í baráttu undir
körfunni.
Finnur Jónsson þjálfari fagnar innilega eftir sætan sigur Skallagríms á Snæfelli síðasta vetur.