Skessuhorn - 04.10.2017, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201728
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Auka kjördæmisþing Framsóknar í
Norðvesturkjördæmi fór fram fyr-
ir stuttu síðan. Þar gaf ég ekki kost á
mér til áframhaldandi starfa á þingi,
að minnsta kosti ekki á næsta kjör-
tímabili. Þegar ákvörðun sem þessi
er tekin, þá er vel við hæfi að skrifa
nokkur orð niður á blað og þakka
fyrir það traust sem mér hefur ver-
ið sýnt í störfum mínum sem þing-
maður.
Þingmannsstarfið hefur verið afar
lærdómsríkur tími og ég er þakklát
fyrir svo margt. Fyrir traustið sem
mér hefur verið sýnt, fyrir vináttu-
sambönd milli mín og þingmanna í
hinum ýmsu flokkum og fyrir þann
skóla sem starfið hefur verið.
Ég er ekki sammála þeim sem
segja að þingmenn séu eingöngu
stimpilpúði fyrir ráðuneytin. Þing-
menn geta haft áhrif á stefnumótun
og ákvarðanatöku um strauma og
stefnur ríkisstjórna. Þetta snýst um
að undirbúa sig vel, mæta vel og hafa
þannig áhrif.
Í ríkisstjórnartíð Framsóknar-
flokksins fékk ég sæti í Verkefna-
stjórn um framtíðarskipan húsnæðis-
mála þar sem grunnur var lagður að
nýju húsnæðiskerfi. Ég náði í gegn
mikilvægum breytingartillögum í
almannatryggingakerfinu, í barna-
verndarmálum, húsnæðismálunum
og barðist gegn matarskatti Sjálfstæð-
ismanna, svo að eitthvað sé nefnt. Á
síðasta ári samþykktu allir þingmenn
tillögu mína um stefnumótun í heil-
brigðiskerfinu og sú vinna var komin
á fullt innan heilbrigðisráðuneytis-
ins og mikilvægt er að sú vinna verði
kláruð á nýju kjör-
tímabili. Á þessu
þingi voru forgangsmálin mín, hús-
næðismál og afnám verðtrygging-
ar. Þau mál voru bæði tilbúin þeg-
ar það slitnaði upp úr þinginu. Auk
þessa vann stór hluti þingmannahóps
Norðvesturkjördæmis að lagasetn-
ingu um Teigsskóg. Ekkert þessara
mála komst á dagskrá þingsins fyrir
þinglok og er það miður.
Ákvörðunin um að gefa ekki kost
á mér að þessu sinni, var ekki auð-
veld, sérstaklega ekki þar sem ég fékk
fjölda áskorana um að gefa kost á
mér til áframhaldandi starfa. Ég finn
þó að ákvörðunin er rétt við þess-
ar aðstæður. Ánægjulegt er að fjöldi
frambærilegra einstaklinga hefur
gefið kost á sér á lista Framsóknar í
Norðvesturkjördæmi og kosið verð-
ur um listann á tvöföldu kjördæmis-
þingi sem fram fer næsta sunnudag.
Ég óska þeim öllum góðs gengis.
Næstu vikur verða notaðar í tíma
með fjölskyldu og vinum. Þeim sem
hafa verið á hliðarlínunni undanfarin
ár og stutt mig til allra verka.
Ég er sannur Framsóknarmaður
og trúi á gildi Framsóknarflokksins.
Þess vegna ætla ég að halda áfram
að vinna fyrir flokkinn, þó á öðrum
vettvangi, að minnsta kosti um sinn
fái ég brautargengi til þess.
Ég þakka ykkur enn og aftur það
mikla traust sem þið hafið sýnt mér.
Það er ómetanlegt.
Elsa Lára Arnardóttir
- fráfarandi þingmaður
Framsóknarflokksins
Takk fyrir traustið
Þegar maður knýr dyra og óskar
inngöngu er það gamall og góður
siður að kynna sig.
Framsóknarmenn í Norðvest-
urkjördæmi blása til kjördæmis-
þings þann 8. október nk á Bif-
röst þar sem kjósa skal listann sem
verður í framboði til alþingiskosn-
inga nú í haust. Ég hef ákveðið að
bjóða mig fram til kjörs í 2. sæti
á listann. Halla Signý Kristjáns-
dóttir heiti ég og er búsett í Bol-
ungarvík.
Ég er viðskiptafræðingur að
mennt auk þess sem ég er með
diploma í opinberri stjórnsýslu.
Hef starfað við fjölbreytt störf var
m.a. bóndi í 10 ár og starfa nú sem
fjármálastjóri Bolungarvíkurkaup-
staðar, auk þess sem ég hef starfað
að félagsmálum.
Það sem brennur á í þessu kjör-
dæmi eru byggðamálin og jafn-
rétti til búsetu, bæði hvað varðar
grunnþjónustu eins og heilbrigð-
isþjónustu og skóla. Jafna þarf
mun á milli svæða hvað samgöng-
ur, raforkuöryggi og atvinnumál
varðar. Stryrkja þarf stoðir at-
vinnulífsins til sjávar og sveita svo
tryggt verði í öllum fjórðungum
öflugur atvinnuvegur á fjölbreytt-
um grunni. Málefnum aldraðra
og öryrkja þarf að hlúa að og sem
og mannrétt-
indum fatlaðra
til náms og heil-
brigðisþjónustu hvar sem þeir búa
á landinu.
Ég býð mig fram til heiðarlegr-
ar þátttöku í stjórnmálum lands-
ins þar sem haft verður að leiðar-
ljósi samtal ólíkra aðila og skoð-
ana til framfara öllum landsmönn-
um. Það verður verkefni komandi
kjörtímabils að koma á festu í ís-
lenskum stjórnmálum og vinna
af heilindum til að auka traust á
þeim sem vinna að stefnumótun í
íslenskum stjórnmálum.
Halla Signý Kristjánsdóttir
Bank bank...Kosningahugleiðingar
Pennagrein
Pennagrein
Í störfum mínum sem sveitarstjórn-
armaður hefur það kristallast hve
háð sveitarfélögin á landinu eru rík-
inu með ákvarðanir og samþykktir er
snúa að þeim brýnu verkefnum sem
nauðsynlegt er að ráðast í til að við-
halda nýsköpun og atvinnuþróun á
landsvísu.
Mikilvægt er að ráðist verði í það
að forgangsraða verkefnum sem snúa
að því að bæta innviði kjördæmisins
svo skilyrði til búsetu og atvinnuupp-
byggingar verði ásættanleg. Tryggja
þarf rekstrarumhverfi hefðbundinna
greina til framtíðar. Huga verður
að þeim atvinnugreinum sem eru í
örum vexti. Fjárfest hefur verið í um
land allt í ferðaþjónustu. Greinin
hefur með sínum fjölbreyttu störfum
skapað tækifæri til að tryggja byggð
og heilsársbúsetu, bætt lífsgæði og
búsetuskilyrði ásamt því að vera virk-
ur þátttakandi í því að byggja undir
afþreyingu og framleiðslu sem bygg-
ir á varðveislu og viðhaldi menning-
ararfs landssvæða.
Nauðsynlegt er að gera gangskör í
að tryggja viðunandi samgöngur, fjar-
skipti og lagningu 3ja fasa rafmagns.
Í allri umræðu um orkuskipti, frekari
nýtingu rafbíla, aukið hlutfall end-
urnýjanlega orkugjafa til verndunar
loftlags og umhverfis til framtíðar
þarf að huga að aðgengi og tækifæri
einstaklinga og fyrirtækja til að fara í
breytingar á orkugjöfum. Hvatinn til
þátttöku helgast af þeim aðstæðum
sem við búum við. Það er því með
öllu ótímabært að knýja á frekari
skattheimtu vegna notkunar olíu fyrr
en rafmagnsmál landsbyggðarinnar
verði færð til nútímans.
Sú staðreynd
hefur blasað við
í tugi ára að ein-
fasa rafmagn er
aðeins í boði á sumum svæðum.
Þau bú sem aðeins hafa einfasa raf-
magn skipta enn hundruðum. Síðust
ár hefur réttilega verið lögð áhersla
á lagningu ljósleiðara. Því hefur öll
umræðan um þriggja fasa rafmagn
fengið minni áheyrn. Skortur á 3ja
fasa rafmagni stendur nýsköpun og
atvinnuþróun fyrir þrifum í því að
styrkja byggð í landinu.
Dýrara er að dreifa orku í dreifbýli.
Virðisaukaskattur er lagður ofaná
orkuverð og flutning. Það er því aug-
ljóst að þeir sem greiða hæsta verðið
leggja fleiri krónur í ríkissjóð.
Það er sanngirniskrafa að for-
gangsverk í byggðastefnu samtímans
verði skilvirkari uppbygging ljósleið-
ara, 3ja fasa rafmagns og vegasam-
gangna á landsbyggðinni. Það mun
styðja við vöxt og viðgang atvinnu og
búsetu á landsbyggðinni.
Undirrituð er hótelstjóri og BA
í ferðamálafræði frá Háskólanum
á Hólum og óskar eftir að taka 3. –
5. sæti á framboðslista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi fyr-
ir alþingiskosningarnar 28. október
2017. Fyrst og fremst hef ég áhuga
á að nýta krafta mína til að vinna að
framgangi stefnumála með Fram-
sóknarflokknum í þágu kjördæmisins
og landsins alls.
Guðveig Eyglóardóttir.
Höf. er oddviti Framsóknarmanna
í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
Forgangsverkefni
Pennagrein
Í febrúar síðastliðnum lagði und-
irrituð fram fyrirspurn á Alþingi
til umhverfis- og auðlindaráð-
herra sem sneri að skilgreiningu á
auðlindum Íslands og hvaða auð-
lindir borga auðlindagjald. Það
kom ekki á óvart að af sex skil-
greindum náttúruauðlindum er
auðlindagjald í formi skattlagn-
ingar eingöngu lagt á auðlind-
ir sjávar, sbr. lög um veiðigjöld,
nr. 74/2012. Í svarinu kom svo
fram að náttúruauðlindir landsins
eru flokkaðar í sex yfirflokka, eða
náttúruauðlindir a) lands, b) hafs,
c) stranda, d) vatns, e) orkuauð-
lindir og f) villt dýr, þ.m.t. fiskar,
fuglar og spendýr. Þessum flokk-
um er síðan skipt í fjölmarga und-
irflokka.
Að mínu mati er sjálfsagt að
skattleggja, í hófi, þær atvinnu-
greinar sem nýta sér náttúruauð-
lindir Íslands, og þá sérstaklega
þær auðlindir sem liggja til grund-
vallar helstu útflutningsatvinnu-
vegum þjóðarinnar, eins og auð-
lindir sjávar, stórbrotin náttúra og
orkuauðlindir. Þó heyrir maður
lítið um að skatt skuli leggja á aðr-
Auðlindagjald eða landsbyggðarskattur?
Pennagrein
ar auðlindir, en á
sama tíma heyr-
ast stöðugt raddir um að hækka
skuli veiðigjöldin ennþá frekar.
Nú þegar fiskeldi er að ryðja sér
til rúms sem stór atvinnugrein á
Íslandi, og þá sérstaklega á Vest-
fjörðum og Austfjörðum þar sem
ekki hefur verið lokað fyrir mögu-
leikann á eldi á þeim landssvæð-
um, þá hafa bæði umhverfis- og
auðlindaráðherra og sjávarútvegs-
ráðherra sagt að þeim finnist eðli-
legt að ríkið taki auðlindagjald
fyrir þessi takmörkuðu gæði sem
örfáir firðir við Íslandsstrendur
bjóða upp á, þ.e. að vera það djúp-
ir að þeir geti borið fiskeldi.
Ég er ekki ósammála því að
skoða þurfi skattlagningu á eldi en
ég held að það sé kominn tími til
að ráðumenn þessa lands fari að
opna augun fyrir því hversu land-
ið okkar er ríkt af náttúruauðlind-
um og endurskoða stefnur varð-
andi auðlindagjöld, því ef stefnan
er sú að einungis sé horft til skatt-
lagningar á sjávarútvegsfyrirtæki
og fiskeldisfyrirtæki, þá er alveg
eins gott að kalla þessa skattlagn-
ingu því nafni sem það er; lands-
byggðarskattur.
Lilja Sigurðardóttir.
Höf. er 2. varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi og býður sig fram í 2.-3. sæti á
lista flokksins í sama kjördæmi fyrir
komandi kosningar.