Skessuhorn - 04.10.2017, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 201730
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
„Hvað finnst þér vera
það besta við haustið?“
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Ólafsvík)
Ólafur H. Steingrímsson
Fallegir litir í náttúrunni.
Elsa Bergmundsdóttir
Að það sé farið að skyggja og
orðið svo „kósý“ og allt komið í
rétta rútínu aftur.
Heiðar Magnússon
Að það styttist í jólin og vertíðin
á sjónum að byrja.
Vigfús Kristin Vigfússon
Bara að hafa gaman og vera mik-
ið úti.
Síðastliðið laugardagskvöld hélt
meistaraflokkur Víkings í knatt-
spyrnu lokahóf sitt. Fyrr um dag-
inn mátti liðið sætta sig við jafnt-
efli í lokaleik sumarsins og fer nið-
ur um deild ásamt nágrönnum sín-
um á Akranesi. Hófið var haldið á
heimili Jónasar Gests Jónassonar
formanns.
Á hófinu var sumarið gert upp,
enda engin ástæða til annars en gera
sér glaðan dag þó liðið hafi kannski
ekki endað þar sem það ætlaði. Lið-
ið sló stigamet sitt í efstu deild, með
22 stig í sumar. Veittar voru viður-
kenningar og var Christian Mart-
inez valinn leikmaður ársins hjá fé-
laginu annað árið í röð, fyrirliðinn
Guðmundur Steinn Hafsteinsson
var markahæstur í liðinu og efni-
legasti leikmaðurinn var Leó Örn
Þrastarson. Pape Mamadou Faye
og Christian Martinez spiluðu sína
50. leiki í sumar fyrir Víking Ó og
fengu þeir afhent 50 leikja merki
KSÍ á lokahófinu. Guðmundur
Steinn Hafsteinsson spilaði 100.
leikinn sinn á tímabilinu fyrir fé-
lagið og fékk 100 leikja merki KSÍ
afhent við þetta sama tækifæri. Al-
freð Már Hjaltalín fékk einnig
merki KSÍ en hann lék sinn 200.
leik með félaginu á tímabilinu.
Á lokahófinu tilkynnti Jónas
Gestur Jónasson formaður knatt-
spyrnudeildar Víkings að hann
myndi stíga til hliðar. Jónas Gestur
hefur starfað að knattspyrnumálum
í Ólafsvík frá árinu 2001 þegar hann
tók að sér knattspyrnudeildina þá
leikmaður og var hann spilandi for-
maður til ársins 2005 og formaður
eftir það. Jónas Gestur ásamt öðr-
um stjórnarmönnum og öðru að-
stoðarfólki hefur unnið mikil og
góð störf fyrir Víking á þessu tíma-
bili. Nýr formaður var kynntur á
lokahófinu, en Jóhann Pétursson
tekur við af Jónasi Gesti. Með Jó-
hanni í stjórn sitja reynsluboltar
sem unnið hafa að knattspyrnu-
málum af miklum eldmóð: Hilm-
ar Hauksson, Kristmundur Sumar-
liðason, Gunnar Helgi Baldursson
og Atli Már Gunnarsson.
þa
Ný forysta kynnt á lokahófi Víkings Ólafsvík
Jónas Gestur Jónasson fráfarandi formaður knattspyrnudeildar Víkings, Christian
Martinez, leikmaður ársins, Leó Örn Þrastarson, efnilegasti leikmaður Víkings
2017 og Guðmundur Steinn Hafsteinsson, markahæsti leikmaður liðsins.
Alfreð Már Hjaltalín fékk merki KSÍ fyrir 200 spilaða leiki með Víkingi Ó, Pape
Mamadou Faye fékk merki KSÍ fyrir 50 spilaða leiki með liðinu, Christian Martinez
merki KSÍ fyrir 50 spilaða leiki og Guðmundur Steinn Hafsteinsson merki KSÍ fyrir
100 spilaða leiki með liðinu.
Dregið var í 32 liða úrslitum Malt-
bikars karla í körfuknattleik í síðustu
viku. Alls voru 34 lið skráð til leiks og
því var dregið í forkeppni samhliða.
Þá eru fjögur neðri deildar lið dregin
út og munu keppa um tvö laus sæti í
næstu viku.
Þrjú Vesturlandslið eru skráð til
leiks í bikarkeppninni að þessu sinni;
ÍA, Skallagrímur og Snæfell. Þegar
dregið var upp úr pottinum varð ljóst
að ÍA mætir úrvalsdeildarliði Hattar
á Akranesi, Skallagrímur heimsækir
2. deildar liðið Njarðvík B og Snæfell
heimsækir 3. deildar lið Álftaness.
Allir leikirnir í 32 liða úrslitum
Maltbikarsins fara fram dagana 14.
til 16. október næstkomandi.
kgk
Skallagrímur mætti Keflavík þegar
leikið var um meistara meistaranna
í körfuknattleik kvenna á sunnu-
dag. Leikurinn fór fram í Keflavík.
Heimaliðið vann tvöfalt á síðasta
tímabili en Skallagrímur hlaut silf-
urverðlaun í bikarkeppninni.
Íslands- og bikarmeistarar Kefla-
víkur höfðu undirtökin í leiknum
frá því snemma í fyrsta leikhluta.
Heimakonur slökuðu hvergi á og
héldu Skallagrímskonum í skefj-
um allan leikinn. Fór svo að lokum
að Skallagrímsliðið varð að játa sig
sigrað með 20 stigum, 93:73.
Cameron Tyson-Thomas átti
stórleik fyrir Skallagrím, skoraði 25
stig og reif niður 18 fráköst. Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir var með 15
stig, 8 fráköst og 5 stolna bolta og
Jóhanna Björk Sveinsdóttir var með
14 stig og 7 fráköst. Hjá Keflavík
skoruðu þær Birna Valgerður Ben-
ónýsdóttir og Emelía Ósk Gunn-
arsdóttir 18 stig hvor og Brittany
Dinkins var með 16 stig, 9 stoð-
sendingar og 6 fráköst.
Í karlaflokki áttust við KR og Þór
Þorláksson og endaði sú viðureign
með sigri Þórs, 90:86. kgk
Keflavík er meistari meistar-
anna í kvennaboltanum
Síðastliðinn laugardag fór fram
uppskeruhátíð meistaraflokka ÍA og
2. flokks karla og kvenna. Hátíðin
var haldin á Gamla Kaupfélaginu
og var með hefðbundnu sniði með
borðhaldi og skemmtiatriðum í
boði flokkanna. Hápunktur kvölds-
ins var að vanda þær fjölmörgu við-
urkenningar sem veittar eru á loka-
hófinu.
Albert Hafsteinsson, Gylfi Veig-
ar Reykfjörð Gylfason, Helga Sjöfn
Jóhannesdóttir og Þórður Þor-
steinn Þórðarson fengu viðurkenn-
ingu fyrir að hafa leikið 100 leiki
fyrir meistaraflokk. Hallur Flosason
fékk viðurkenningu fyrir 150 leiki,
Árni Snær Ólafsson og Ólafur Val-
ur Valdimarsson fyrir 200 leiki og
Arnar Már Guðjónsson fékk við-
urkenningu fyrir að hafa leikið 300
leiki fyrir meistaraflokk.
Bergdís Fanney Einarsdóttir var
valin besti leikmaður meistaraflokks
kvenna og Fríða Halldórsdóttir
efnilegust. Arnar Már Guðjónsson
var valinn besti leikmaður meistara-
flokks karla og Steinar Þorsteinsson
þótti efnilegastur. Bergdís og Arn-
ar fengu einnig viðurkenningar sem
bestu leikmenn meistaraflokkanna
að mati stuðningsmanna ÍA.
Í 2. flokki kvenna var Hrafnhild-
ur Arín Sigfúsdóttir valin best og
Karen Þórisdóttir efnilegust. Eva
María Jónsdóttir fékk TM-bikar-
inn, sem veittur er fyrirmyndar-
leikmanni ársins. Í 2. flokki karla
var Guðfinnur Þór Leósson best-
ur, Sigurður Hrannar Þorsteinsson
efnilegastur og Atli Teitur Brynjars-
son hlaut Kiddabikarinn sem fyrir-
myndarleikmaður ársins.
Dómarar ÍA hluti einnig viður-
kenningar á lokahófinu. Ívar Orri
Kristjánsson var valinn besti dóm-
arinn, Sveinn Þór Þorvaldsson
verðmætasti dómarinn og Valgeir
Valgeirsson fékk heiðursverðlaun
KDA. Adolphsbikarinn, veittur
besta dómara yngri flokka að mati
þjálfara, kom í hlut Sveins Þórs
Þorvaldssonar.
Að lokum var nokkur veittur sér-
stakur þakklætisvottur fyrir óeigin-
gjarnt starf í þágu félagsins. Meist-
araflokkur karla færði Katrínu Leifs-
dóttur sérstakar þakkir fyrir matseld
fyrir þá eftir leiki. Meistaraflokkur
kvenna færði Erni Arnarsyni þakk-
ir fyrir mikið og óeigingjarnt starf
við útsendingar frá leikjum þeirra
í sumar. Þá fékk Sigrún Ríkharðs-
dóttir viðurkenningu sem öflugasti
stuðningsmaðurinn.
kgk
Bergdís og Arnar valin
best á lokahófi ÍA
Þau voru valin best og efnilegust í meistaraflokkum kvenna og karla. F.v. Fríða
Halldórsdóttir, Steinar Þorsteinsson, Bergdís Fanney Einarsdóttir og Arnar Már
Guðjónsson. Ljósm. gbh. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og liðsfélagar hennar í Skallagrími þurftu að játa sig
sigraðar í leiknum um meistara meistaranna. Ljósm. úr safni/ jho.
Dregið í Maltbikarnum
Indriði Viðar
Sjóbirtingsveiði.