Skessuhorn


Skessuhorn - 23.05.2018, Side 8

Skessuhorn - 23.05.2018, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 20188 Helmingur andvígur vegtollum LANDIÐ: Töluverð and- astaða er gegn innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi, samkvæmt nýrri könnun MMR. Alls kváð- ust 50% svarenda andvíg- ir innheimtu slíkra gjalda en 31,4% hlynntir. Samtals svöruðu 910 manns könn- uninni. Stuðningur við inn- heimtu af þessu tagi hefur aukist lítillega á milli ára, eða um sex prósentustig frá því í könnun MMR frá því á síðasta ári. Hlutfall and- vígra hefur að sama skapi lækkað um sex prósentu- stig. Lítill munur var á af- stöðu til vegtolla eftir kyni og búsetu svarenda. -kgk Aflatölur fyrir Vesturland dagana 12. - 18. maí Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 22 bátar. Heildarlöndun: 48.090 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 10.282 kg í tveimur róðr- um. Arnarstapi: 23 bátar. Heildarlöndun: 119.330 kg. Mestur afli: Bárður SH: 66.178 kg í fimm löndunum. Grundarfjörður: 29 bátar. Heildarlöndun: 325.475 kg. Mestur afli: Hringur SH: 66.047 í einni löndun. Ólafsvík: 50 bátar. Heildarlöndun: 551.437 kg. Mestur afli: Guðmundur Jensson SH: 80.858 í þrem- ur róðrum. Rif: 32 bátar. Heildarlöndun: 774.391 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 134.750 kg í tveimur lönd- unum. Stykkishólmur: 8 bátar. Heildarlöndun: 49.156 kg. Mestur afli: Gullhólmi SH: 39.507 kg í tveimur löndun- um. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH - RIF: 75.270 kg. 12. maí. 2. Hringur SH - GRU: 66.047 kg. 15. maí. 3. Tjaldur SH - RIF: 59.480 kg. 17. maí. 4. Rifsnes SH - RIF: 52.451 kg. 17. maí. 5. Grundfirðingur SH - GRU: 52.207 kg. 12. maí. -kgk Gunnlaugur A Júlíusson sveitar- stjóri Borgarbyggðar vill koma á framfæri athugasemdum vegna efnisatriði sem komu fram í viðtali við hjónin Trausta og Ásu í Lækjar- koti, sem birtist í síðasta tölublaði Skessuhorns. Í viðtalinu fara þau ít- arlega yfir viðhorf sín varðandi fyr- irhugaðar skipulagsbreytingar sem varða hugsanlegt skotæfingasvæði í Hamarslandi ofan við Borgarnes. Í viðtalinu kemur m.a. fram hörð gagnrýni þeirra hjóna á stjórnsýslu Borgarbyggðar. Af þeim sökum vill Gunnlaugur sveitarstjóri koma nokkrum ábendingum á framfæri sem varðar gagnrýni á stjórnsýslu Borgarbyggðar og eru þær raktar hér að neðan. Fundur sannanlega auglýstur „Í fyrsta lagi er því haldið fram í viðtalinu að kynningarfundur um lýsingu á fyrirhuguðum breyting- um á aðalskipulagi í landi Ham- ars, sem halda átti mánudaginn 30. apríl síðastliðinn hafi einungis ver- ið auglýstur föstudaginn 27. apríl, eða þremur dögum áður en hann fór fram. Hið rétta er að fundurinn var auglýstur í Íbúanum og Skessu- horni 18. apríl og í Morgunblaðinu 20. apríl auk þess sem sagt var frá honum á vef Borgarbyggðar 27. apríl,“ segir Gunnlaugur. „Þetta var ég búinn að segja Trausta í tölvu- pósti. Það er því ekki rétt með far- ið að fyrrgreindur fundur hafi ein- ungis verið auglýstur föstudaginn 27. apríl á vef Borgarbyggðar eða þremur dögum áður en hann var haldinn.“ Málsmeðferð skýr samkvæmt lögum Þá gagnrýnir Gunnlaugur val blaðs- ins á fyrirsögn að viðtalinu, en hún hljóðar svo: „Okkur líður eins og ætlunin sé að þvinga þetta í gegn fyrir kosningar.“ „Í þessu sambandi er rétt að benda á ákvæði skipu- lagslaga nr. 123/2010 þar sem m.a. kveðið er á um tímafresti við aug- lýsingu á breytingu á aðalskipulagi sem lesa má um í 31. og 32. grein laganna. Hægt er að draga tímalín- una í þessu sambandi saman á eftir- farandi hátt: 1) Í auglýsingu á breytingu á að- alskipulagi skal eigi gefa skemmri frest en sex vikur til að gera athuga- semdir við auglýsta breytingu á að- alskipulagi. 2) Sveitarstjórn fjallar um tillöguna á nýjan leik að athugasemdarfresti loknum svo og innkomnar athuga- semdir. 3) Innkomnum athugasemdum skal svarað með rökstuðningi. 4) Sveitarstjórn skal senda Skipu- lagsstofnun tillöguna ásamt inn- komnum athugasemdum og rök- studdum viðbrögðum sveitarstjórn- ar innan tólf vikna frá því frestur til að gera athugasemdir rann út. 5) Skipulagsstofnun skal innan fjög- urra vikna frá því tillaga að breyt- ingu að aðalskipulagi barst henni staðfesta skipulagstillöguna ef ekki eru gerðar athugasemdir við hana. 6) Telji Skipulagsstofnun að synja beri tillögunni skal stofnunin senda ráðherra erindi þess efnis innan fjögurra vikna frá því henni barst tillaga að aðalskipulagi. 7) Ráðherra skal taka ákvörðun innan þriggja mánaða eftir að til- laga Skipulagsstofnunar barst ráðu- neytinu.“ 8) Á það skal bent að umrædd skipulagsbreyting hefur ekki enn verið auglýst. Gildishlaðin og röng fyrirsögn Eins og fram hefur komið í frétt- um Skessuhorns samþykkti sveit- arstjórn Borgarbyggðar á fundi sínum þann 14. maí síðastlið- inn að auglýsa fyrrgreinda tillögu um breytingu á aðalskipulagi sem varðar skotæfingasvæðið. „Fyrr- greint viðtal birtist í Skessuhorni miðvikudaginn 16. maí. Kosið verður til sveitarstjórna á Íslandi tíu dögum eftir að það birtist, eða 26. maí. Það segir sig sjálft hversu fráleit sú fullyrðing eða tilfinning er að þvinga eigi niðurstöðu í fyrr- greindu máli í gegn á þeim 12 dög- um sem voru fram til kosninga frá samþykkt sveitarstjórnar frá 14. maí. Samkvæmt framangreindu yf- irliti um tímasetningar skipulags- laga, getur tekið allt að sex mánuði að vinna þennan feril. Reyndin t.d. varðandi skipulagsbreytingar varð- andi Borgarbraut 57-59 í Borgar- nesi var að þessi ferill, sem er lýst hér að framan, tók hátt í sex mán- uði. Því vekur það nokkra eftirtekt hvernig aðalfyrirsögn viðtalsins er valin,“ segir Gunnlaugur. Fyrst nú í auglýsingu Gunnlaugur segir að í viðtalinu sé því haldið fram og gagnrýnt að sveitarstjórn hafi aldrei svarað innsendum athugasemdum vegna þessa máls. „Við vinnu að breyt- ingum á skipulagi sveitarfélags er unnið eftir ákvæðum skipulags- laga í einu og öllu eins og gefur að skilja. Ef það er ekki gert fær sveitarstjórn verkefnið allt í fang- ið aftur. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi á Hamarslandi hef- ur aldrei komist svo langt fyrr en nú að ákveðið sé að auglýsa form- lega fyrirhugaða breytingu á aðal- skipulagi vegna skotæfingasvæðis- ins. Sveitarstjórn er ekki skylt skv. skipulagslögum að svara form- lega ábendingum sem berast þeg- ar lýsing á breytingunni er kynnt. Ábendingar um þessi ákvæði skipulagslaga hafa verið sendar til Trausta í Lækjarkoti með tölvu- póstum. Það er ekki fyrr en fyr- irhuguð breyting á aðalskipulagi hefur verið formlega auglýst af sveitarstjórn með samþykki Skipu- lagsstofnunar að skylt er að svara formlega þeim athugasemdum sem kunna að berast í kjölfar aug- lýsingarinnar. Sá hluti þessa ferils er nú að hefjast í fyrsta sinn í þessu máli í kjölfar samþykktar sveitar- stjórnar Borgarbyggðar þann 14. maí sl. eins og áður segir. Því er ekki rétt með farið að sveitarstjór- nin hafi brugðist skyldum sínum hvað það varðar að svara innsend- um athugasemdum vegna skotæf- ingasvæðisins. Það verður gert þegar frestur til að skila athuga- semdum vegna auglýsingar um fyrirhugaða breytingu er liðinn ef athugasemdir berast. Eins og kem- ur fram í 32. grein skipulagslaga þá þarf að senda Skipulagsstofn- un allar innkomnar athugasemd- ir við auglýstri skipulagsbreytingu og rökstudd svör sveitarstjórnar við þeim. Ef það er ekki gert verð- ur skipulagsbreytingunni hafn- að. Vitaskuld verður það gert þeg- ar / ef sú stund rennur upp,“ segir Gunnlaugur. Að endingu tekur Gunnlaug- ur tekur skýrt fram að hann virði fullkomlega sjónarmið Trausta og Ásu í Lækjarkoti hvað varðar staðsetningu skotæfingasvæðisins. „Það er allt annar hlutur og kem- ur efni þessa máls ekki við. Það sem ég er að gera athugasemdir við er að ofangreindar fullyrðingar um óvandaða stjórnsýslu Borgar- byggðar komi fram í fyrrgreindu viðtali í Skessuhorni þegar þær eiga hvergi við rök að styðjast.“ mm Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra kynnti í síðustu viku ákvörðun sína um að auka til muna fjármuni til að efla og þróa heilsugæsluþjón- ustu á landinu: „Markmiðið er ekki síst að jafna aðgengi landsmanna að þessari mikilvægu grunnþjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjón- ustunnar og stuðla að nýjungum,“ segir heilbrigðisráðherra. Þróunar- miðstöð sem sett verður á laggirn- ar mun hafa 13 starfsmenn. Árlegur rekstrarkostnaður er áætlaður tæp- ar 230 milljónir króna og mun þró- unarmiðstöðin verða til húsa inn- an Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins. „Þróunarmiðstöð heilsugæsl- unnar á landsvísu mun byggja á grunni hennar, en fær aukið sjálf- stæði, víðtækara hlutverk og mun sem fyrr segir leiða faglega þróun allrar heilsugæsluþjónustu í landinu, hvort sem hún er veitt af hinu opin- bera eða einkarekin.“ Þá er horft til þess að með Þró- unarmiðstöð heilsugæslunnar skap- ist stóraukin tækifæri fyrir fagfólk heilsugæslunnar um allt land, til virkrar þátttöku í gæða- og þróunar- verkefnum sem torvelt hefur verið að sinna á minni stöðum. Þetta muni styrkja faglegt starf innan heilsu- gæslu á landsbyggðinni og einn- ig skapa aukin tækifæri til að miðla þekkingu og reynslu milli stofnana og rekstrareininga. Heilbrigðisráð- herra hefur staðfest reglugerð sem kveður á um starfsemi Þróunarmið- stöðvar heilsugæslunnar og verður hún birt í Stjórnartíðindum á næstu dögum.“ mm Ný stofnun á að bæta gæði heilsugæslu um allt land Svandís Svavarsdóttir kynnir væntanlega þróunarmiðstöð heilsugæslu. Svipmynd af fundi þar sem ráðherra kynnti hugmyndir sínar og væntanlega reglugerð. Athugasemdir vegna fullyrðinga í viðtali við Lækjarkotshjón

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.