Hlynur - 15.02.1978, Side 5
Stjórn og fulltrúaráð NSS starfsárið 1972—'73. F. v.: Dagbjört Torfadóttir, fulltr. '58; Guðmundur R. Jóhannsson, ritstjóri
Hermesar; Þorsteinn Sívertsen '65, Steingerður Einarsdóttir '62, Helga Guðmundsdóttir '70, Guðmundur Bogason, spjaldskrár-
ritari; Hallfríður Kristinsdóttir, ritari; Vigdís Pálsdóttir, formaður; Gunnlaugur Sigvaldason, gjaldkeri; Reynir Ingibjartsson,
meðstj.; Sigurður Sigfússon '68, Þorgerður Baldursdóttir '67, Sæmundur Alfreðsson ‘69, Tryggvi Geirsson '72, Gunnar Ingi
Jónsson '57 og Þór Símon Ragnarsson '59. Nokkra fulltrúa mun vanta á myndina, sem tekin er í Hamragörðum.
er og vil ég þá nefna nærtækasta
verkefnið, sem er útgáfa Árbókar-
innar. í henni er að finna upplýs-
ingar um alla þá, sem stundað
hafa nám í Samvinnuskólanum síð-
an 1918. Petta er ákaflega viða-
mikið verk og kostnaðarsamt, en
við erum ákveðin í því að ljúka
því á tilsettum tíma. Ritstjóri fyrstu
þriggja bókanna var Sigurður
Hreiðar, en síðan tók viðmælandi
minn, Guðmundur R. Jóhannsson
við, og er fyrsta bókin frá hans
hendi og sú fjórða í röðinni komin
í prentun og undirbúningur hafinn
að þeirri fimmtu. Ég get ekki stillt
mig um að nota tækifærið í þessu
viðtali og auglýsa bókina dálítið.
Við viljum auðvitað að sem flestir
eignist þetta verk og hverjum
stepdur það þá nær, en einmitt því
fólki, sem les Hlyn, starfsfólki sam-
vinnuhreyfingarinnar Bækurnar
eru til sölu á mjög hagstæðu verði,
og vonandi virðir Reynir mér það
ekki til lasts, þó ég vísi til hans
í Hamragörðum um sölu á bókinni
til þeirra, sem áhuga kunna að
hafa.
— Nú var baldin ráðstefna á
vegum NSS veturinn 1976, sem
var stefnumarkandi fyrir framtið-
ina. Hvað hefur verið gert í þeim
málum?
— Því er til að svara að fram-
kvæmdir hafa verið í lágmarki.
Par kom fram að eðlilegt væri að
NSS ætti aðild að yfirstjórn skól-
ans. Nú hefur verið skipuð skóla-
nefnd og munum við fara fram á
að fá aðild að henni og verður
það vonandi auðsótt. í því sam-
bandi vil ég taka fram að mér
finnst sjálfsagt að LÍS fái einnig
aðild að skólanefnd. Nú munu
ýmsar breytingar á döfinni um
menntun samvinnustarfsmanna og
námskeiðahald að Bifröst, og er þá
mjög eðlilegt að þeir sem stundað
hafa nám í skólanum og hafa
reynslu úr atvinnulífinu, hafi þar
sitt að segja. NSS hefur ætíð sýnt
málefnum skólans mikinn áhuga.
Auk þessarar ráðstefnu sem þú
nefndir, má líka benda á mikla
umræðu sem kom í Hermes nr.
23 árið 1972, en þar ræddu ýmsir
góðir menn málefni Samvinnuskól-
ans og tengsl hans og NSS. Pví
miður held ég að þetta blað sé í
of fárra höndum, en það er vel
þess virði að kynna sér það.
— En er NSS tekið alvarlega,
er ekki aðeins litið á þessi samtök
sem skemmtiklúbb?
— Jú, það er eflaust að ýmsu
leyti rétt, og ég álít að samkomur
og skemmtanir eigi að skipa mikinn
sess á félagsstarfinu, einfaldlega
vegna þess að þá næst til allra.
Að ofan eru árbækur NSS, I, II og III
og að neðan er forsíðan á síðasta tölu-
blaðinu, sem kom út af Hermesi.