Hlynur - 15.02.1978, Page 7
[• n H ~
f * * v
** , j % ■: * , i
Á stofnfundi félags lífeyrisþega I Hamragörðum. F. v. og áfram hringinn: Sigurður Þórhallsson, Ágústa Rafnar, Björn
Gunnarsson, Þórey Helgadóttir, Regína Guðjónsdóttir, Hermann Þorsteinsson, Hafliði Guðmundsson, Þórður Magnússon,
Á ■,'nr>a Guðmundsdóttir, Sveinn Guðmundsson, Hallgrímur Sigtryggsson, Gunnar Grímsson, form.; Geir Magnússon, Sigur-
9eir Stefánsson, Úlla Árdal, Sigríður Einarsdóttir og Björg Ágústsdóttir.
Pann 18. febrúar sl. var stofnað
i Hamragörðum, félag lífeyrisþega
í lífeyrissjóðum samvinnufélaganna.
Tæpu ári áður hafði verið haldinn
á sama stað, umræðu- og könnunar-
fundur um stofnun slíks félags,
þar sem undirtektir voru jákvæðar
og í framhaldi af því hafði sam-
bandsstjórn LÍS og síðar þing LÍS
sl. haust, hvatt til að lífeyrisþeg-
arnir innan samvinnuhreyfingarinn-
ar stofnuðu með sér félag.
1 undirbúningsnefnd fyrir þenn-
an fund voru þeir, Geir Magnússon,
Gunnar Grímsson og Sigurður Pór-
hallsson, en mest mæddi undir-
búningsstarfið á Geir. Var öllum
lífeyrisþegum í Reykjavík sent til
að byrja með bréf, þar sem m. a.
var leitað álits þeirra á stofnun
slíks félags. Voru undirtektir mjög
jákvæðar. Á stofnfundinum mættu
svo 18 manns, þar af tveir fulltrúar
frá Akureyri, þau Hafliði Guð-
mundsson frá lífeyrisþegum í Líf-
eyrissjóði verksmiðja Sambandsins
á Akureyri og Olla Árdal frá líf-
eyrisþegum í Lífeyrissjóði KEA.
Fundarstjóri á stofnfundi var
Sigurður Pórhallsson, formaður LlS,
en Geir Magnússon, framkvæmda-
stjóri og fulltrúi samvinnustarfs-
manna í Lífeyrissjóði SfS, kynnti
drög að samþykktum fyrir félagið.
Pá gerði Hermann Porsteinsson,
framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs SÍS,
grein fyrir starfsemi sjóðsins og
svaraði fyrirspurnum.
Fyrsti formaður þessa nýja fé-
lags var kjörinn, Gunnar Grímsson,
fyrrum starfsmannastjóri Sambands-
ins og önnur í stjórn þau, Sveinn
Guðmundsson, Anna Guðmunds-
dóttir, Björg Ágústsdóttir og Haf-
Iiði Guðmundsson, en í varastjórn
þau, Olla Árdal og Hallgrímur
Sigtryggsson.
f fyrstu samþykktum félagsins
segir m. a., að nafn þess sé: Félag
lífeyrisþega í lífeyrissjóðum sam-
vinnufélaganna, skammst. FLS.
Rétt til inngöngu hafa allir, sem
eiga lífeyrisréttindi sín hjá lífeyris-
sjóðum Sambandsins og samvinnu-
félaganna og eru byrjaðir að veita
móttöku greiðslum úr þeim sjóðum.
Um tilgang og verkefni þessa
félags vísast frekar til viðtala við
þá Gunnar Grímsson og Geir
Magnússon í þessu blaði, en það
var samhljóða álit allra, sem mættu
á þennan fund, að þessa félags
biðu mikil verkefni og brýn. Sam-
þykkt var, að allir, sem gengu í
félagið fyrir 1. maí n. k. teldust
stofnfélagar.
Nú munu vera starfandi tvö slík
félög hér á landi, þ. e. innan
Starfsmannafélags ríkisstarfsmanna
og hjá símamönnum. Annars staðar
á Norðurlöndum eiga lífeyrisþegar
með sér sterk og fjölmenn samtök.
Hinu nýja félagi er hér með
óskað alls velfarnaðar með von um
að því auðnist að leggja steina í
þann varnarmúr, sem brýn þörf
er á að reisa til varnar hagsmunum
lífeyrisþeganna í þessu landi á
tímum óðaverðbólgu. — R. I.
HLYNUR 7