Hlynur - 15.02.1978, Side 10
SÍS 3% á móti. Nú eru það 4%
frá sjóðsfélögum og 6% frá fyrir-
tækjunum, eða 10% alls.
— Og hvað eru sjóðsfélagar
margir í dag?
— 1 árslok 1976 voru þeir 3213,
en ég hef ekki nákvæma tölu
sjóðsfélaga um sl. áramót. Hér er
um að ræða starfsmenn hjá SÍS
og samstarfsfyrirtækjum, s. s. Olíu-
félaginu, Samvinnutryggingum og
Andvöku, Samvinnubankanum,
Osta- og smjörsölunni og Dráttar-
vélum og fl. Einnig eru starfsmenn
38 kaupfélaga og fyrirtækja þeirra
í sjóðnum. í upphafi voru það
hins vegar aðeins starfsmenn SÍS.
— Ekki eru þá allir samvinnu-
starfsmenn í þessum sjóði?
— Nei. KEA hefur sérsjóð, sem
reyndar var stofnaður ári á undan
SÍS-sjóðnum, og þá er sérstakur
lífeyrissjóður fyrir starfsmenn í
verksmiðjum Sambandsins á Akur-
eyri. Loks munu starfsmenn hjá
Mjólkursamsölunni og Mjólkurbúi
Flóamanna hafa sérstakan lífeyris-
sjóð og sama er hjá Sláturfélagi
Suðurlands.
— Hvað finnst þér um samein-
ingu þessara sjóða?
— Mín skoðun er sú, að þessir
sjóðir eigi að sameinast, a. m. k.
þeir þrír fyrsttöldu, og það var
einmitt samþykkt á síðasta LÍS-
þingi að mynda einn sameigin-
legan sjóð. Par með er ekki sagt,
að Reykjavík eigi að draga til sín
fjármagn og stjórn lífeyrissjóðanna.
Pvert á móti mætti koma á ein-
hvers konar deildaskiptingu.
— En hvað þá um einn lífeyris-
sjóð fyrir alla landsmenn?
’ — Ég er persónulega þeirrar
skoðunar, að það eigi að vera fáir
en stórir sjóðir í stað eins lífeyris-
sjóðs, og samvinnuhreyfingin hefur
meiri möguleika á því að halda
lífeyrissjóðunum, ef þeir yrðu sam-
einaðir í einn sjóð. Pað mælir líka
gegn einum sameiginlegum sjóði
fyrir alla landsmenn, að eftir því
sem sjóðurinn yrði stærri, yrði hann
ópersónulegri og minni möguleikar
á að sinna persónulegum þörfum
hvers og eins.
— Hvað nutu margir lífeyris úr
Ltfeyrissjóði SÍS á sl. ári?
10 HLYNUR
— Ég hef ekki við hendina tölur
fyrir 1977, en 1976 voru það 183
einstaklingar, sem fengu greiddan
lífeyri, samtals rúml. tuttugu millj-
ónir. Ellilífeyrisþegar voru 65, ör-
orkulífeyri fengu 4, makalífeyri 76
og barnalífeyri 38.
— Hvernig er háttað reglum um
greiðslu lífeyris?
— Samkvæmt reglum sjóðsins er
fyrsti réttur eftir 10 ára starf, þ. e.
réttur á ellilífeyri og er hann
121/2% af launum síðasta starfsárs.
Hlutfallið hækkar í allt að 60%
af launum síðasta árs eftir að hafa
greitt til sjóðsins í 30 ár.
Hjá sumum lífeyrissjóðum hækk-
ar þessi prósenta enn við lengri
starfstíma en 30 ár, t. d. um Vi%
við hvert ár til viðbótar, og það
væri mjög æskilegt, að Lífeyrissjóð-
ur SÍS gerði slíkt hið sama. öll
endurskoðun á reglum sjóðsins vill
hins vegar dragast meðan heildar-
endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu
stendur yfir, og það getur verið
erfitt að breyta hlutum, sem svo
standa aðeins í eina nótt, ef svo
má að orði komast.
Ef við höldum áfram með líf-
eyrisréttindin, þá öðlast maki
starfsmanns sem fellur frá, rétt til
makalífeyris, ef greitt hefur verið
til sjóðsins í a. m. k. eitt ár, en
hinn árlegi lífeyrir er 11% af
síðustu árslaunum maka og síðan
til viðbótar, 1% fyrir hvert starfs-
ár, uns hámarkinu, 40% er náð,
ef starfstími maka hefur verið 30
ár.
Barnalífeyrir tekur hins vegar
mið af greiðslum almannatrygginga
og eru það einu lífeyrisgreiðslurnar,
sem eru verðtryggðar í raun.
— Er ekki verðbólgan að gera
lífeyrisréttindi að einskisverðum
hlut?
— Pað má segja það að fáir eða
engir hafa farið verr út úr verð-
bólgunni en lífeyrisþegarnir, þ. e.
þeir sem eru í óverðtryggðum líf-
eyrissjóðum. Hér áður mun upphæð
lífeyris hafa verið miðuð við laun
10 síðustu starfsár. Síðan var þetta
lækkað í fimm ár og fyrir stuttu
var farið að miða lífeyri við laun
síðasta starfsárs. Pegar það var
samþykkt, þurfti til ábyrgð allra
Hermann Porsteinsson, framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs SÍS.
samvinnufélaganna samkvæmt kröfu
tryggingafræðings sjóðsins.
Pað segir sig svo sjálft, að þegar
verðbólga er kannski 30—50%
milli ára, rýrnar lífeyririnn gífur-
lega nema verðbætur komi til.
— Svo er það andstæðan við
lífeyririnn, þ. e. hyggtngarlánin.
Par hafa sjóðsfélagar hagnast á
verðbólgunni.
— Pað má segja það, sérstaklega
þeir, sem fengu lán áður en .vextir
urðu breytilegir eftir 1960 og fóru
að fylgja almennum vöxtum. Á
stofnfundi félaga lífeyrisþega í
Hamragörðum fyrir stuttu, nefndi
Hermann Porsteinsson fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs SÍS ein-
mitt dæmi um þetta, þ. e. fyrsta
lánið, sem tekið var um 1956 hjá
Iífeyrissjóðnum. Lánið var til
tuttugu ára og síðasta afborgunin
var fimm þúsund krónur. Hefði
lánið verið verðtryggt, hefði síðasta
afborgunin verið um 120 þúsund
krónur, og þennan mismun getum
við kallað verðbólgugróða.
Pað er svo hins vegar mikilvæg-
ur þáttur í öryggi lífeyrisþega að
hafa eignast eigið húsnæði á hag-
kvæman hátt, m. a. vegna hag-
stæðra lána úr lífeyrissjóði.
— Á ekki að stefna að þvt að
verðtryggja lánin eins og lífeyri?
— Fyrst á að verðtryggja líf-
eyririnn og það er hægt í dag að
nokkru marki. Svo ætti að koma
til skoðunar að þrengja lánaréttinn,
þannig að lengri tími líði þar til
hægt væri að fá viðbótarlán, en í
dag er það fimm ár. Einnig kemur
til skoðunar að fella niður hálf
lán, sem veitt hafa verið eftir 3 ár,