Hlynur - 15.02.1978, Qupperneq 12
Við veiðar í Hofsá í Hofsdal. Víða eru skjólgóð og fögur tjaldstæði í Hofsdal.
Frá
starfsmannafélagi
K.B.F. á Djúpavogi
Sigurjón Hjartarson.
Pað má með sanni segja, að það
sé áhugi í hinu nýstofnaða starfs-
mannafélagi Kf. Berufjarðar á
Djúpavogi, sem var stofnað 15.
maí 1977, því á félagsfundi, sem
haldinn var 14. janúar sl. var
ákveðið að kaupa sumarbústað, er
Væntanlegt orlofshús starfsmanna K. B.
skyldi vera staðsettur á lóð kaup-
félagsins inn í Hofsdal.
Pað land var gefið kaupfélaginu
á 40 ára afmæli þess 1960 af Birni
Jónssyni, þáverandi bónda á Hofi.
Pá var landið girt með skógræktar-
girðingu og plantað þar trjám, sem
F.
nú eru fullvaxin tré. Petta land
er nú sannkölluð paradís eins og
Hofsdalurinn allur.
Að vel athuguðu máli með
sumarbústað var komist að þeirri
niðurstöðu að kaupa svokallað
„Willerby" hús, sem er svipað að
gerð og hjólhýsi, nema það er
stærra og fest niður á steypta
stöppla.
í sambandi við fjármögnun var
samþykkt, að hver starfsmaður
greiddi 20 þúsund krónur í stofn-
kostnað og kaupfélagið ætlaði að
hlaupa undir bagga. Annars verða
varla erfiðleikar með fjármagn, því
menn vildu þegar fara að greiða
sitt framlag strax eftir fundinn,
þegar húskaupin voru ákveðin.
Svona til gamans má geta þess
að kaupfélagið var einmitt stofnað
á Hofi árið 1920 og verður því
60 ára 1980. Ætli stofnendurnir
hafi velt því fyrir sér þá, að starfs-
menn kaupfélagsins sem þeir voru
að stofna, ættu eftir að flatmaga í
eigin sumarbústað þarna rétt fyrir
innan þá, tæpum 60 árum síðar?
í fyrra á stofnárinu var félagið
að komast í gang og kannski meira
talað en framkvæmt. Við fengum
þó áheyrnarfulltrúa í stjóm K. B. F.
með málfrelsi og tillögurétti. Einn-
ig áttum við fulltrúa á landsþingi
LÍS sl. haust. Félagsmenn eru nú
um 30.
Við lítum björtum augum á
framtíðina, með það í huga að
eyða björtum sumarnóttum inni í
Hofsdal.
Sigurjón Hjartarson,
fréttaritari Hlyns.