Hlynur - 15.02.1978, Qupperneq 14
Jólaferð M
Þótt nokkuð sé liðið frá jólum,
birtist hér frásögn, sem Sigurður
Jónsson, stýrimaður á Helgafelli
sendi Hlyn, þar sem greint er
frá jólahaldi á hafi úti.
Um leið og Hlynur færir grein-
arhöfundi bestu þakkir, þá er
ástæða til að hvetja skipverja á
samvinnufarskipunum til þess,
að gera meira af því að stinga
niður penna og senda Hlyni línu.
Pað var 27. nóv. sl., að m/s
Helgafell hélt frá Reykjavík áleiðis
norður og austur um land með
fóðurfarm til losunar á hinum
ýmsu höfnum. Áætlað var að leggja
síðan í hafið frá Reyðarfirði til
Lubeck, Svendborgar og Larvikur.
Pað ríkti almenn ánægju meðal
áhafnarinnar með áætlunina, þar
sem séð var fram á að ef ekki
yrðu óeðlilegar tafir á afgreiðslu
skipsins, þá næði það heim aftur
fyrir jól og yrði jafnvel í Reykjavík
yfir jólin.
Yfirleitt er það hlutskipti far-
mannsins að dvelja fjarri vinum
og vandamönnum á stórhátíðum,
velkjast þá í hafi eða halda til
á erlendri grund. Það ríkti því
eftirvænting meðal áhafnarinnar í
upphafi þessarar ferðar.
Eftir nokkra daga á ströndinni
fór það að kvisast, að í athugun
væri að lesta fiskimjöl eftir losun
fóðursins. Á Akureyri kom síðan
tilkynning um að ákveðið væri að
lestuð yrði tólg og fiskimjöl til
Kaupmannahafnar og Lubeck. Par
með var draumur farmannsins um
jól heima orðinn að engu.
Heilagur Porlákur rann upp í
Svendborg á Suður-Fjóni. Verka-
menn mættu til vinnu eins og
venjulega, við að lesta sekkjað
fóður, hásetar unnu að jólahrein-
gerningunni og vélamenn lögðu
síðustu hönd á jólaseríuna. Fljót-
lega mátti sjá að dönsku verka-
mennirnir voru staðráðnir í að halda
upp á heilagan Porlák, þar sem
þeir teiguðu bjórflöskur hverja af
annarri, óvenjumargar. Sannsögull
skipverji staðhæfði, að einn Dan-
anna hefði drukkið 13 flöskur fyrir
hádegi. ,,Bjórpásur“ urðu nær sam-
hangandi meðal Dananna eftir há-
degi, svo það ráð var tekið að gefa
þeim jólafrí í fyrra lagi.
Landinn sat lengi vel á sér og
hneykslaðist jafnvel á framferði
Dana; hann skrúbbaði skipið hátt
og lágt með hjálp Gvendarbrunnar-
vatnsins sem óðum þvarr og mörg-
um var eftirsjá í. Pegar Danir höfðu
gengið á land, þá var jólaserían
hengd upp stafna á milli með
hvítum og grænum ljósum á víxl
og var hún til mikillar prýði, en
m/s Helgafell var eitt skipa meðal
margra ljósum skreytt í höfninni í
Svendborg yfir jólin. Pað kom síðan
að því, að landinn lyfti glasi og
var leikið á létta strengi fram eftir
kvöldi.
Arnór Gíslason skipstjóri bauð,
að allir skipverjar borðuðu saman
uppi í íbúð hans yfir jóladagana.
Á aðfangadag voru því sett upp
borð fyrir 20 manns í sal skipstjóra
og stóð Eiríkur bátsmaður að upp
setningunni af sínum alkunna
dugnaði, studdur hásetum sínum.
Að uppsetningu lokinni og þegar
14 HLYNUR
Wli