Hlynur - 15.02.1978, Side 16
T. v.: Pétur Þorgrímsson og fjölskylda, en þau bjuggu í öðru orlofshúsi Sf. KEA
að Bifröst veturinn 1976—'77. T. h.: Auður Torfadóttir og Hafsteinn Hjartarson,
en þau dvöldu í orlofshúsi að Bifröst um sl. jól og áramót. Auður var í hópi
fyrstu nemenda, sem útskrifuðust frá Bifröst.
Pað færist stöðugt meira í vöxt,
að dvelja í orlofshúsunum að Bif-
röst að vetri til. í vetur hafa bæði
nemendur og kennarar búið 1
nokkrum orlofshúsanna, sem e111
orðin alls 24. Voru þau flest byggð
með það fyrir augum að þau mætti
nýta jafnt sumar sem vetur.
Pá gekkst Nemendasamband Sarn-
vinnuskólans fyrir því, að fá hus
til leigu um síðustu jól og áramot.
Dvöldu frá fimm til átta fjölskylB-
ur í húsunum yfir hátíðarnar, °S
þær fjölskyldur, sem komnar voru
á staðinn á aðfangadag, upplifðu
allt í einu það, að jólahátíðina
bar að í kyrrð og ró. Til stóð að
halda áramótafagnað í Hreðavatns-
skála og kveikja í veglegum bál-
kesti, en þetta fórst fyrir sökum
skafrennings. Á nýársdag var hins
vegar hið fegursta veður, og þá vat
kveikt bál að viðstöddum 40—50
manns, sem síðan tóku að stíga
T. v.: f jólaskapi í jólasnjó. Margrét Helga Halldórsdóttir, útskr. '57 frá Bifröst og fjölskylda reyna hæfni sína undir hús-
veggnum. T. h.: Slappað af eftir göngu- og skíðaferðir dagsins, í notalegri setustofu.