Hlynur - 15.02.1978, Síða 17
dans kringum eldinn og kyrja við
raust við harmonikutóna. Björgun-
arsveit slysavarnarfélagsins í Borg-
arfirði sá svo fyrir því, að nóg var
trl að skjóta til himins.
Það er óhætt að fullyrða það,
að allir sem dvöldu í orlofshúsun-
Urn yfir þessar hátíðar, áttu þarna
°venjulega og skemmtilega daga
ekki síst börnin, og það er fyllsta
ástæða til að hvetja hvern þann,
Sem á þess kost, að bregða sér að
Bifröst, a. m. k. yfir helgar. Helgar-
leiga er 5 þúsund krónur á hús
°8 þeir, sem ekki snúa sér beint til
starfsmannafélaganna, geta fengið
leigð hús í gegnum skrifstofu LlS
1 Hamragörðum. Lyklar eru svo
afhentir hjá húsverðinum á Bifröst,
en reglulegt eftirlit er með hús-
nnum allan veturinn. Pað er því
ekki verið að halda út í neina ó-
vissu, þótt stefnan sé tekin á Bif-
föst.
T. v.: Olga og Leopold líta yfir síðasta veísluborð sitt I Hreðavatnsskála, en í
febrúar í fyrra héldu nokkrir gamlir nemendur úr Samvinnuskólanum þorrablót
þar, skömmu áður en þau hættu veitingarekstri. Sú sem hleður á diskinn, er
Björg Karitas Jónsdóttir. T. h.: Biartur bóndi á Hreðavatni, fer með gamanbrag
um byggingarsögu orlofshúsanna að Bifröst.
T. V.: Bjarni Ólafsson gefur tóninn í viðlagi kvöldsins á þor-ablótinu. T. h.: Hljómsveit og söngvarar kvöldsins