Hlynur - 15.02.1978, Blaðsíða 21
Vináttuvika á Islandi í sumar
Eins og áður hefur komið fram,
mun LÍS standa fyrir svokallaðri
vináttuviku á íslandi í sumar með
þátttöku samvinnustarfsmannna frá
öllum Norðurlöndunum. Pað er þó
varla réttnefni að kalla þetta vin-
áttuviku, því ferðalagið frá upphafi
til enda er 10 dagar.
Byrjar 26. júní.
Norræni hópurinn sem sjálfsagt
verður um 50 manns (10 til 13
frá hverju landi), kemur til Kefla-
víkur frá Malmö, mánudaginn 26.
júní, þegar flugvél Arnarflugs hefur
skilað af sér hópi samvinnustarfs-
manna í Malmö. Síðan mun hópur-
inn ásamt íslenskum þátttakendum,
sem vonandi verða ekki færri en
10, halda til Bifrastar og vera þar
fyrstu tvær næturnar. Par verður
jafnframt haldinn fundur í svo-
kölluðu KPA-ráði, en í því sitja
tveir fulltrúar frá samtökum sam-
vinnustarfsmanna í hverju landi
fyrir sig.
í sólina á Norðurlandi.
Frá Bifröst verður haldið til
Akureyrar 28. júní og dvalið í
hinum velbúnu húsakynnum Starfs-
mannafélags verksmiðja SlS til
föstudags. Þegar vináttuvika var
haldin hérlendis fyrir þremur árum
á Suður- og Vesturlandi, stytti
varla upp allan tímann, meðan
sólin skein fyrir norðan. Þá var
ákveðið, að næsta vináttuvika
skyldi verða á Norðurlandi.
Frá Akureyri verður svo haldið
austur í Pingeyjarsýslur og gist að
Laugum. Jafnframt verður væntan-
lega komið í framkvæmd góðri hug-
mynd frá síðasta landsþingi LÍS,
þ. e. samvinnuhelgi eða móti með
þátttöku samvinnustarfsmanna víða
að. Hér yrði um að ræða helgina
1. og 2. júlí og mótstaður, Laugar.
Væntanlega verður hægt að segja
betur frá þessu móti í næsta Hlyni,
en það eru starfsmannafélögin á
Akureyri og Húsavík, sem hafa
sýnt þessu sérstakan áhuga.
Suður Sprengisand ef færi gefst.
Frá Laugum er svo hugmyndin
að halda suður Sprengisand, ef
vegurinn verður orðinn fær. Ann-
ars verður fylgt byggð, e. t. v. þó
farið suður Kjöl.
Hugsanlega yrði þá gist í Land-
mannalaugum og síðan ekið um
Suðurland á hefðbundna ferða-
mannastaði og komið til Reykja-
víkur, mánudagskvöldið 3. júlí.
Síðustu tvær næturnar verður
dvalið á einkaheimilum í Reykja-
vík og vonandi gefst erlendu gest-
unum færi á því að fljúga til Vest-
mannaeyja. Peir halda svo heim
um hádegi miðvikudaginn 5. júlí.
10 ísl. samvinnustarfsmenn.
Vináttuvikur eða mót eins og
þetta eru fastur liður í starfi KPA,
sem er skammstöfun fyrir samtök
samvinnustarfsmanna á Norður-
löndum. Parna er um að ræða
mjög góða blöndu af ferðalögum,
skemmtun og fróðleik um viðkom-
andi land og ekki síst samvinnu-
starfið. Reynt verður að stilla þátt-
tökugjaldi í hóf eins og hægt er,
en nánari upplýsingar gefur skrif-
stofa LlS í Hamragörðum, sími
21944.
Vináttuvikunefnd.
Um skipulag og framkvæmd vin-
áttuvikunnar sér sérstök fram-
kvæmdanefnd, sem er sérstæð að
því leyti, að annar helmingurinn
er sunnan fjalla, en hinn fyrir
norðan. Nefndina skipa þau, Ann
Marí Hansen Sf. Kf. Hafnfirðinga,
Marta Svavarsdóttir Sf. Samvinnu-
bankans, Örnólfur örnólfsson Sf.
Sambandsins, Gunnar Jónsson Sf.
Kf. Þingeyinga, Jóhann Sigurðsson
Sf. verksmiðja SlS og Páll A.
Magnússon Sf. KEA.
Frá vináttuviku á íslandi sumarið 1975. F. v.: Hans Jörgen Iversen, Danmörku;
Ann Marí Hansen og Sigurður A. Magnússon, sem var fararstjóri á vináttuvikunni,
með blómskrúð úr Garðyrkjuskólanum í Hveragerði, sem heimsóttur var.
HLYNUR 21